Á fimmtudagskvöldið frumsýndi Gaflaraleikhúsið í Bæjarbíói í Hafnarfirði uppistandið eða farsann eða söngleikinn Þetta reddast eftir Selmu Björnsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Björk Jakobsdóttur sem líka leika öll hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Óli Gunnar Gunnarsson, tónlistin er eftir Mána Svavarsson, Sölku Sól og Selmu, leikhópurinn sér um búninga en leikmynd hönnuðu Óli Gunnar, Freyr Vilhjálmsson og Björk. Freyr hannaði líka lýsingu og Máni hljóðmynd.

Þær eru komnar aftur, fimm árum síðar, Selma, Salka Sól og Björk. Fimm árum eldri og reyndari en þær voru í Bíddu bara í Gaflaraleikhúsinu um árið, og þær taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Ýmislegt hefur gerst í lífi þeirra, Salka Sól er orðin tveggja barna móðir, Selma er komin í traust samband við vænan mann og upplifir nú breytingaskeiðið en Björk er komin yfir öll helstu kvennavandamál og orðin amma. Á tveimur klukkutímum fara þær með okkur í tussubíltúr þar sem allt er látið flakka, og snerta á eiginlega öllu sem hægt er að ímynda sér að konur hugsi um og tali um, hvort sem er í einrúmi eða hópi. Inn á milli koma bráðskemmtilegir söngvar sem þær sungu til skiptis, og Björk reyndist ekki síðri söngkona en söngstjörnurnar Selma og Salka Sól.

Bæði talaður texti og sunginn er virkilega fyndinn og hárbeittur og engu hlíft, ekki eiginmönnum, ekki blessuðum litlu börnunum og allra síst hlífa þær sjálfum sér, þessar grimmu konur. Enda var mikið hlegið á sýningunni og eiginlega ekki hægt að tína úr atriði sem meira var hlegið að en öðrum. „Frí“ Sölku með fjölskylduna á Tenerife var gráthlægilegt, draumurinn um að vera ung að eilífu var beisklega fyndinn, yfirlætisfull umfjöllun um fordekraða unglinga og stranga unga foreldra vakti mikla lukku, og yfirreiðin um hátíðastundir á mannsævinni, skírnir, fermingu, brúðkaup og þó einkum jarðarfarir, var skarplega hugsuð en heldur hröð, hefði vel mátt taka lengri tíma. Söngur Selmu um hvað það er ömurlegt hlutskipti að vera heimsfrægur á Íslandi var kannski toppurinn, drepfyndinn en um leið svo afhjúpandi og upplýsandi.

Þetta er frelsandi uppistand sem sannarlega er bæði fyrir karla og konur þótt konur hafi verið í miklum meirihluta á frumsýningunni. Það er dauður maður sem ekki getur hlegið að tíðahvarfaböli kvenna og þvinguðum eltingarleik þeirra við grannan kropp og slétt hörund fram eftir öllum aldri. Sjálfar eru þær þrjár, Salka, Selma og Björk, yndi á að horfa og hlýða, lifandi sönnun þess að konur eru frábærir skemmtikraftar.

Silja Aðalsteinsdóttir