Nýstofnuð HinÓperan frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna 27 eftir tónskáldið Ricky Ian Gordon og textahöfundinn Royce Vavrek. Leikstjóri var Bjarni Snæbjörnsson en tónlistarstjóri Matthildur Anna Gísladóttir sem einnig lék hlutverk hljómsveitar á píanó. Leikmynda-og ljósahönnuður var Friðþjófur Þorsteinsson en Andri Unnarsson hannaði búninga. Cameron Corbett sá um sviðshreyfingar en Ray Milano um leikgervi.
Bandaríski rithöfundurinn Gertrude Stein (Íris Björk Gunnarsdóttir) og ástkona hennar Alice B. Toklas (Herdís Anna Jónasdóttir) eru eitt frægasta lesbíupar sögunnar. Gertrude bjó á rue de Fleurus nr 27 í París með bróður sínum Leó (Áslákur Ingvarsson) í upphafi síðustu aldar og hélt þar frægar veislur eða „salon“. Systkinin voru auðug og fóru fljótlega að kaupa listaverk af ungum listamönnum á uppleið, t.d. Picasso (Eggert Reginn Kjartansson) og Matisse (Bjarni Thor Kristinsson). Í eina veisluna kemur Alice, nýkomin til Parísar frá San Francisco, það varð ást við fyrstu sýn og þær bjuggu saman uns dauðinn aðskildi þær fjórum áratugum seinna. Þær voru á sama aldri og samband þeirra var bæði ástríkt og gefandi ef marka má það sem við fengum að sjá í gærkvöldi.
Verkið fjallar um samband þeirra kvennanna innbyrðis og samband þeirra við snillingana sem þær styrkja og hvetja með því að kaupa af þeim verk. Við finnum líka togstreituna í huga Alice yfir því að fá ekki að titla sig eiginkonu Gertrude þótt hún gegni öllum hlutverkum eiginkonu, meðal annars með því að sinna hinum þreytandi eiginkonum snillinganna! Við fylgjumst með því hvernig tíminn líður – fyrri heimsstyrjöldin rennur sitt skeið, millistríðsárin eru kát og hress eins og vel heyrist á tónlistinni og Gertrude trúir ekki að það verði annað stríð. Hún reynist ekki sannspá en seinni heimsstyrjöldin færir henni nýja skjólstæðinga, F. Scott Fitzgerald (Eggert Reginn), Hemingway (Bjarni Thor) og Man Ray (Áslákur) sem ekki eru eins meðfærilegir og þakklátir og þeir gömlu.
Tónlistin fjölbreytt, stundum djössuð en minnir líka á söngleiki, og píanóleikur Matthildar Önnu var fjörlegur og vandaður. Textinn er sunginn á ensku en þýddur á skjám fyrir ofan sviðið. Hann verður dálítið staglkenndur kringum allt snillingstalið en ekki þarf að spyrja að frammistöðu söngvaranna. Íris Björk er að vísu sópran en ekki messósópran eins og upphaflega er gert ráð fyrir í óperunni en hún túlkar Gertrude af dirfsku og fjöri og hefur virkilega fallega lýríska rödd. Herdís Anna er glæsilegur sópran og þarf frekar að halda aftur af sér en beita sér að fullu í hlutverki Alice. Báðar eru góðir leikarar og túlkuðu vel þróunina í sambandi kvennanna og sambandi þeirra við skjólstæðinga sína. Eggert Reginn, Bjarni Thor og Áslákur brugðu sér léttilega í hlutverk snillinganna en léku líka heiminn fyrir utan númer 27 á ýmsan hugmyndaríkan hátt sem vann gegn því hvað óperan er kyrrstæð. Þar áttu búningar Andra Unnarssonar og leikgervi Rays Milano stóran þátt ekki síður en í veislum Gertrude og Alice. Litla sviðið er ekki stórt en leikmynd Friðþjófs gaf góða hugmynd um íbúð fulla af listaverkum.
Þetta mun vera fyrsta uppfærsla óperunnar utan Bandaríkjanna og tónskáldið var sjálft viðstatt í gærkvöldi. Ég treysti því að hann hafi skemmt sér vel.
Silja Aðalsteinsdóttir