Rúmlega fertuga stofudramað Djöflar eftir sænska leikskáldið Lars Norén var frumsýnt fyrir viku á Nýja sviði Borgarleikhússins en ég sá aðra sýningu á verkinu í gærkvöldi. Þýðandi er Hlín Agnarsdóttir en leikstjóri Stefán Jónsson. Börkur Jónsson hannaði leikmyndina sem var mjög smart og líka furðu yfirgripsmikil, þar var – á einu gólfi – eldhús og stofa, baðherbergi með hálfgegnsæjum vegg og svefnherbergi auk gólfflatar þar sem margt mátti gera og láta gerast. Helga I. Stefánsdóttir sá um viðeigandi búninga sem voru einkum spennandi í tilviki persónunnar Katarínu. Gunnar Hildimar Halldórsson sá um lýsingu sem hæfði andrúmslofti verksins hverju sinni en Ísidór Jökull Bjarnason hannaði hljóðmyndina sem andaði líka með verkinu.

Leikritið gerist á einu kvöldi og nóttina sem fylgir í huggulegri íbúð Franks og Katarínu (Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir). Þau eiga von á gestum þetta kvöld en þegar þeir afboða sig dettur Frank í hug að hóa í ungu hjónin á hæðinni fyrir neðan, Jennu og Tómas (Íris Tanja Flygenring, Haraldur Ari Stefánsson). Þau eru með smábarn en koma samt í heimsóknina, spennt að kynnast þessum flottu hjónum. Til öryggis er Jenna með vélræna barnapíu um hálsinn svo að hún heyri í barninu ef það vaknar. Frank og Katarína eru barnlaus og finna má ákveðna öfund í garð yngri hjónanna vegna þess. Félagsskapurinn reynist ekki sérlega hollur ungu hjónunum sem eru dregin sundur og saman í háði af eldri hjónunum og pínd á ýmsa vegu. Að lokum þykjast þau líklega heppin að sleppa lifandi – en ósködduð eru þau ekki.

Lars Norén dregur okkur ekkert á upplýsingum um að verkið snúist um afskaplega vansæl hjón sem skeyta skapi sínu hvort á öðru alveg hiklaust með ljótu orðbragði, meinlegum athugasemdum, poti og pústrum. Þessar orðahnippingar byrja strax og Frank kemur heim með duftker móður sinnar í plastpoka en meiningin er að jarðsetja hana daginn eftir. Í tali þeirra bregður sárasjaldan fyrir einlægni; raunar tala þau ekki saman heldur skiptast á setningum sem yfirleitt eru samhengislitlar og sí og æ er gefið til kynna að allt hafi verið sagt áður og það oft. Við erum að hlusta á endurtekið efni í sambúð þeirra. Ástæðuna fyrir þessum gagnkvæmu pyntingum fáum við ekki í texta og ekki verður heldur uppgjör milli hjónanna, þar skilur einkum milli Djöfla og fyrirmyndarinnar, Hver er hræddur við Virginiu Woolf eftir Edward Albee. Djöflar eru svipmynd úr hjónabandi og hverjum áhorfanda er frjálst að skapa forsögu og skýringar á þessum ósköpum.

Textinn er vissulega þreytandi með sínu eilífa skítkasti en hann er eins vel þýddur og takmarkaður orðaforðinn gefur tilefni til. Og leikurinn er úthugsaður, kaldur og miskunnarlaus. Lengi eru áhöld um það hvort þeirra er grimmara, Frank eða Katarína, og verður hér ekki gefin upp niðurstaða undirritaðrar. Hilmir Snær og Vala Kristín skiluðu hlutverkum sínum vel en erfitt er að finna til hlýrra tilfinninga gagnvart þessu andstyggilega fólki. Líklega er það heldur ekki ætlun höfundar. Mun meiri samúð vekja þau Íris Tanja og Haraldur Ari í sínum hlutverkum og maður fer út úr leikhúsinu verulega áhyggjufullur um afdrif hjónabands þeirra – og hvað verður þá um blessuð börnin? Tómas var fljótur að smitast af eldri hjónunum í túlkun Haraldar en Jenna streitist á móti og varð verulega áhugaverð og sönn persóna í túlkun Írisar. Merkilegt var líka að horfa á limaburð hennar og gervi og minnast lipurtáarinnar fallegu í Moulin Rouge!

Djöflar eru ekki auðvelt verk en salurinn í gær var hrifinn og spenntur – enda ekki á hverjum degi sem maður fær að sjá nakta stórleikara á sviði!

Silja Aðalsteinsdóttir