Gyrðir Elíasson, Ótíð í víti: Lífsreynslusaga.
Dimma, 2026.
Ég vil byrja á því að taka fram að mér finnst ekki hlaupið að því að skrifa ritdóm af hefðbundnu tagi um þessa bók. Til þess er umfjöllunarefnið of sárt, of nærri höfundi gengið og atburðir of nálægir í tíma og rúmi. Lesturinn kallar á annars konar viðbrögð en skáldskapur og krefst annars af lesandanum, hann verður vitni að trámatískri frásögn sem kallar á skilning og hlustun. En textinn býður engu að síður upp á alls konar vangaveltur og útlistanir, svo hér fylgja nokkrar hugleiðingar sem spruttu af lestrinum.
Þessi áhrifaríka og átakanlega frásögn Gyrðis Elíassonar af reynslu hans af alvarlegri geðröskun lýsir aðdraganda og afleiðingum þess að sökkva í djúpt þunglyndi og kvíða sem heltók líf hans og hugsun. Geðsjúkdómar hafa sérstöðu meðal sjúkdóma í huga fólks og illa gengur að uppræta þá skömm og fordóma sem loðir við þá. Þá reynist oft erfitt að greina rétt og meðhöndla geðraskanir og orsakir eru ekki endilega alltaf ljósar. Eins og segir á einum stað í þessu verki:
Það sem er svo hræðilegt við þennan sjúkdóm, þunglyndi og yfirgnæfandi kvíða er að hann er ósýnilegur, ekki bara þeim sem horfa á manneskjuna úti á götu eða annars staðar þar sem þeir hitta hana, heldur er hann líka ósýnilegur þeim nútíma vísindum sem reyna að skyggnast sem dýpst inn í alla líkamsvefi til að finna hvað sé að. (75)
Í þessu verki reynir höfundurinn og sjúklingurinn að finna út úr þessari hörmulegu reynslu, reynir að skrifa sér til skilnings – eins og fleiri höfundar hafa reynt á undan honum. Hann nefnir nokkra af þessum höfundum og aðra sem deilt hafa reynslu sinni af svipuðum erfiðleikum, eins og til dæmis William Styron og Stephen Fry. Einn þráður sem liggur nefnilega í gegnum þessa bók er hvernig bókmenntirnar og viðhorf sögumanns til lesturs og skrifa eru órjúfanlega tengd reynslu hans af alvarlegum geðsjúkdómi.
Mér kom í huga við lesturinn tímabil þegar móðir mín á efri árum átti erfitt með að greina milli ímyndunar og veruleika, mjög líklega vegna sterkra lyfja sem hún var sett á enda hvarf þetta smám saman eftir að hún hætti á þeim. Þetta lýsti sér meðal annars þannig að hún sá ofsjónir, sumar nokkuð óhugnanlegar, eins og þegar henni virtust skordýr skríða um öll gólf, aðrar nokkuð spaugilegar eins og þegar hún sá mágkonu sína úti á bílaplani fyrir utan blokkina þar sem hún bjó þá í fylgd með tveimur ísbjörnum. Læknir sem ég fór með henni til á þessu tímabili var ungur og áhugasamur og nýkominn úr námi í Svíþjóð og ræddi hversu ofsjónir af þessu tagi væru mjög oft menningar- og staðbundnar. Þar í landi hefði til að mynda verið algengt hjá sjúklingum hans að sjá elgi í stofunni hjá sér eða viðlíka. Ekki það að ísbirnir séu beinlínis algengir í Hvassaleitinu, en engu að síður fannst mér þessi saga hans athyglisverð, enda er fátt merkilegra og óskiljanlegra en heilastarfsemi manneskjunnar, sem kemur ekki síst í ljós þegar eitthvað í starfseminni fer úrskeiðis. Ekki var að sjá á móður minni á þessum tíma að hún eldaði á kvöldin stundum ofan í framliðna og passaði börn sem voru víðs fjarri og löngu orðin fullorðin. Læknarnir greindu hana með ólæknandi heilabilun, en sú greining reyndist sem betur fer ekki rétt þegar þetta bráði smám saman af henni.
Ég vil taka það fram að veikindi móður minnar voru ekkert í líkingu við þau sem lýst er í þessari bók, en vöktu þó svipaðar spurningar um leyndardóma mannsheilans, vanda greiningar og menningarlegt samhengi geðrænna vandamála.
Frásögnin í Ótíð í víti hefst þar sem sögumaður er að hlusta á bókina Vesturfarana eftir Vilhelm Moberg og sú hlustun fær sífellt meira á hann. Hann segir: „Mig grunaði vart að bókin mundi enda í einhverju því sárasta vonleysi og myrkri sem nokkur bók hefur endað í að mínu mati […] fannst nánast einsog ég væri ristur á hol ásamt þeim fórnarlömbum sem Moberg lýsir í frásögn sinni“ (11). Í raun endurspeglar þessi lýsing bókina sem við höfum í höndunum, þar sem svartnættið verður yfirþyrmandi á köflum og lesanda grunar ekki „sárasta vonleysið og myrkrið“ sem bíður hans.
Bóklestur er að jafnaði ein meginstoðin í hversdegi sögumanns, hans andlega örvun og gleði, en þegar vanlíðanin eykst fer hann smám saman að forðast bækurnar, leggst frekar í barnabækur í leit að skjóli:
í mínu tilviki var þetta dálítið einsog þegar snigill snýr inn í kuðung sinn af því hann óttast veröldina fyrir utan. Fullorðinsbækurnar í kringum mig á heimilinu […] voru allt í einu orðnar einhvernveginn ógnvekjandi á hillum sínum, þó þessar sömu bækur hefðu áratugum saman líkt og veitt mér ákveðið öryggi til að takast á við veröldina. Eða höfðu þær kannski bara verið einskonar hækjur til að hökta um í þessari sömu veröld, án þess að vera beinn þátttakandi í henni, heldur bara einskonar óvirkur áhorfandi? (29)
Þarna hriktir í stoðum bókmenntamannsins, eiginlega sjálfum tilverurétti hans. Bækurnar hafa misst merkingu sína, eru orðnar að eitri en ekki lækningu, eins og platónskt farmakon. Það vakna hjá honum efasemdir um gagnsemi þeirra, voru þær þá ekki skjól heldur einhvers konar flótti frá veruleikanum? Og rétt eins og hann lítur hér á lesturinn sem viðsjárverða hækju, þá telur hann sig hafa ofmetið möguleika bókmenntanna:
Mikilvægi orðanna hafði einhvernveginn blásið út í huga mínum, mér fannst þau búa yfir mætti sem varla nokkurt annað tjáningarform hefði, eða yfirleitt nokkrar aðrar mannlegar athafnir. Ég átti eftir að komast að því hvað ég hafði rangt fyrir mér í þessu, því þegar heilsan brast (sú andlega) hrundi máttur orðanna einsog saltstólpi eða spilaborg og ég stóð einn eftir einsog á brunasandi, án þess að geta tjáð mig á pappír, algerlega magnlaus […] (30)
Geðsjúkdómar geta kippt sjálfsmyndinni úr sambandi og þegar sjálfsmyndin byggir á skáldskap í víðri merkingu þess orðs þá er kannski ekki að furða að hann bregðist sem haldreipi á slíkum tímum. Einhvern tíma var sagt við mig, lestrarhestinn og bókmenntafræðinemann, að það væri ekki nóg að lifa bara í bókum, það þyrfti líka að lifa í veruleikanum. En Gyrðir reyndar neitar því að hafa nokkurn tíma litið svo á að listin sé allt: „Ég hef aldrei verið maður sem finnst ekkert hafa gildi nema listin. Hún er bara hluti af lífinu, en ekki lífið sjálft, og ef ekki er í lagi með lífið, missir sköpunargleðin marks“ (24-5).
Það voru Vesturfarar Mobergs sem settu hann út af laginu til að byrja með og í Frankenstein Mary Shelley sér hann „djöfullegar hugarfarslegar tengingar“ (3) sem vekja hjá honum ónot. Þannig er lestur og líðan í gagnvirku sambandi sem hefur áhrif á merkingarsköpun og túlkun verksins og gerð þess og forsendur bókmenntanna yfirleitt. Geðraskanir geta falið í sér mistúlkun eða oftúlkun á veruleikanum, eins og paranoju eða ofsjónir, og lesturinn virðist vekja upp samskonar yfirþyrmandi tilfinningar hjá sögumanni.
Frásagnir af upplifunum af geðsjúkdómum eru ein tegund sjálfsævisögulegra skrifa. Slíkar sögur vekja oft athygli og ef vel tekst til gefa þau okkur hinum innsýn inn í heim sem hefur í gegnum tíðina oft verið hulinn. Þar má nefna bókina Vertu úlfur: wargus esto eftir Héðin Unnsteinsson sem kom út 2015 og Unnur Ösp Stefánsdóttir gerði einleik úr og Björn Thors lék við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu (frumsýnt 2020). Einnig má nefna bók Steindórs J. Erlingssonar, Lífið er staður þar sem bannað er að lifa: bók um geðröskun og von frá 2023. Gyrðir nefnir einmitt bækur eftir höfunda sem hafa lýst slíkum veikindum, eins og t.d. William Styron, en endurminningar hans Darkness Visible frá 1990 hafa löngum þótt sérlega áhrifamiklar eða eins og Gyrðir segir: „Ég held að hann komist eins nálægt því að lýsa þunglyndi og afleiðingum þess og hægt er að gera á pappír“ (137). Verk sem fjalla um meðferð á geðsjúkum koma líka upp í hugann við lesturinn, eins og One Flew Over the Cuckoo‘s Nest (Gaukshreiðrið, Milos Forman 1975) sem Gyrðir nefnir og skáldsaga Einars Más Guðmundssonar Englar alheimsins (1995) og samnefnd kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar (2000) eru miðlæg verk í þeirri umræðu hérlendis. Það er því óskaplega dapurlegt að lesa lýsingarnar á einangrunarherberginu á geðdeild Landspítalans, sem manni finnst geta verið beint frá þessum verkum runnar. Frásagnir af þessu tagi eiga þannig hljómgrunn meðal lesenda/áhorfenda en vekja líka spurningar um möguleikann til að tjá slíka reynslu í texta, á sviði, í kvikmynd.
Trámafræðingar hafa einmitt löngum velt fyrir sér sambandi trámatísks atburðar og frásagnar, má þar nefna rannsóknir Cathy Caruth sem hún setti til að mynda fram í Unclaimed Experience: Trauma, Narrative, and History (1996). Caruth efast um að hægt sé að tjá kjarna trámatísks atburðar nema óbeint, brotakennt og með endurtekningum, þ.e. með svipuðum áhrifum og myndist í áfallastreituröskun, því slíkir atburðir væru handan skilnings og handan venjulegrar tjáningar. Frásögnin miðist einnig gjarnan við eftirköstin og áhrif atburðarins frekar en atburðinn sjálfan.
Trámatíski kjarninn í Ótíð í víti er þegar sögumaður gengur út á heiði til að verða þar úti. Minningin um atburðinn sækir á sögumanninn endurtekið og mikill hluti verksins fjallar um hvernig hann losnar ekki undan minningunni sem eins og segir síðla í verkinu er eflaust tilkomið vegna áfallastreituröskunar. Úrvinnslan úr atburðinum, frekar en atburðurinn sjálfur, er miðlæg í frásögninni. Sektarkennd og skömm sækja að honum og draga hann niður í hít vanlíðanar hvað eftir annað. Hann getur ekki litið á atburðinn sem einhvers konar upprisu – því í raun er það það sem gerist – hann rís upp af heiðinni af ofurmannlegum krafti og kemur sér heim, hann bjargar lífi sínu, en sögumaður er fastur í að reyna að skilja hvað í ósköpunum fékk hann til að gera þetta yfirhöfuð.
Verk Gyrðis eiga sér oft stað í einhvers konar millibilsástandi, milli ímyndunar og veruleika, milli svefns og vöku (upp í hugann koma verk eins og Gangandi íkorni (1987) og Svefnhjólið (1993)), í landi melankólíu og einhvers konar heimstrega eins og Hótelsumar (2003) og í smásagnasafninu Steintré (2005) en eitt af meginþemum þar snýst um líf á mörkum, skilum, eða mærum, í sögunum gerðust atburðir milli lífs og dauða, í miðjum sambandsslitum, við upphaf nýs lífs. Þess konar samhengi kallar á spurningar eins og „hvers vegna er málum svona komið?“ og „hvernig mun þetta leysast?“ Sögur Gyrðis bjóða þó sjaldnast upp á einfaldar og þægilegar lausnir – frekar er dvalið við „millibilið“ og það kannað. Þessi lýsing gæti líka átt við um lífsreynslusöguna, því þar er sögumaður mitt á milli veikinda og bata, dauða og lífs, í millibili eða biðstöðu milli skrifta og myndlistar. Sér til lands, en hefur ekki náð alla leið og svörin sem hann leitar að bjóða ekki upp á einfalt uppgjör við atburðina.
Þessi lífsreynslusaga er þó af öðrum toga en önnur verk Gyrðis. Auðvitað sjást hér margvísleg höfundareinkenni úr hans mikla oeuvri – tungutakið er hans því aldrei er gripið til þekktra klisja, sem loða gjarnan við tal um sjúkdóma, má þar nefna hinn óbærilega ávana að tala um „baráttu“ við krabbamein eða kalla erfiða sjúkdóma „verkefni“ sem er síst skárra. Kannski eru auðsjáanlegustu einkenni skáldsins þar sem hann skrifar um dýr, ekki síst hundinn Myrru sem er mikilvæg persóna í verkinu og lýsingar á henni og sambandi þeirra tveggja einkennast af húmor og hlýju. Gyrðir er nefnilega hlýr höfundur og sú hlýja mætti svo gjarnan beinast að honum sjálfum í þessum skelfilegu hremmingum sem hann er lentur í.
Eins og áður segir þá eru sterk tengsl milli lesturs og líðanar, lestrarvenjur sögumanns umbreytast en það á líka við um skrifin. Það er nokkuð áfall fyrir lesanda Gyrðis að hann segist ekki skrifa lengur, en listin er þó ekki búin í hans lífi því myndlistin hefur komið í staðinn eða tekið yfir, þó það sé ekki endilega á einhverjum jákvæðum „skapandi“ nótum, heldur verður allt að því að þráhyggju: „þetta var einsog barátta upp á líf og dauða, hver mynd var einsog átök mín við óhjákvæmilegan dauða framundan“ (138).
Listin þjónar því mismunandi hlutverki eftir því hvernig hann er stemmdur og Gyrðir er ekki hættur að skrifa því við erum að lesa verk eftir hann. Hér að ofan nefndi ég að hann væri að skrifa sér til skilnings, en spurningin er hvort það hafi borið árangur, því hann nefnir líka efasemdir sínar um gagnsemi þess að rifja þetta stöðugt upp. Sögumaður segir „að í raun sé best fyrir sjúklinginn að tala við sem fæsta um það sem hann hefur reynt, því kveikjurnar magnist upp við að tala um þær. Miðað við mína reynslu hallast ég að því að það sé rétt“ (90).
Sögumaður segir oftar en einu sinni að það sé ógjörningur fyrir þann sem ekki hefur upplifað slíkar tilfinningar að ímynda sér þær. En Gyrði tekst að leiða lesandann inn í hugsanagang sinn á þann hátt að lesanda finnst hann vera staddur mitt inn í skelfilegri vanlíðan án þess að fá rönd við reist. Vissulega segist Gyrðir hafa misst trúna á skáldskapinn og mátt bókmenntanna, en hann staðfestir í raun með þessu verki hvers góðir höfundar eru megnugir. Að gefa okkur innsýn inn í heim sem við þekkjum ekki (en gætum þó átt eftir að kynnast af eigin raun) er það sem bókmenntirnar geta snúist um, að setja sig í spor annarra, að upplifa veruleika annarra, jafnvel innstu myrkur annarra, í gegnum texta.
Gunnþórunn Guðmundsdóttir
