Þú ert hér://Vera Knútsdóttir

About Vera Knútsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Vera Knútsdóttir has created 35 blog entries.

Ég er höfðinglega venjuleg

2026-10-08T14:28:25+00:008. október 2026|

Í tilefni Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum birtum við hér viðtal sem Kristín Ómarsdóttir tók við Anne Carson árið 2018 fyrir Tímarit Máls og menningar.  Anne Carson. Teikning: Kristín Ómarsdóttir Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á kaffibar í Kaupmannahöfn á sænskt skáld lesa upp úr þýðingu bókar sem heitir Red Doc> (2013); ég skildi næstum ... Lesa meira

Vágestur eða sáluhjálp???

2026-09-17T09:52:14+00:0017. september 2026|

Natasha S: Mara kemur í heimsókn. Benedikt 2025   Í afbragðsgóðri ljóðabók Natöshu S, Máltaka á stríðstímum (2022), er þetta hárbeitta ljóð: KONUR fá   grátköst martraðir grátt hár svefnleysi   skilaboð martraðir dánarvottorð svefnleysi   vopn martraðir (17)   Þetta er hlutskipti kvenna í stríðshrjáðum löndum, æði fjarri veruleika íslenskra kvenna, nú en sé ... Lesa meira

Fágaður og einbeittur leikur

2026-09-17T09:52:25+00:0017. september 2026|

Anna Rós Árnadóttir. Fyrir vísindin. Benedikt, 2025 Ég hef stundum heyrt því fleygt að þegar kemur að íslenska jólabókaflóðinu eigi ljóðabækur lengri líftíma en prósaverk þó að þau síðarnefndu seljist kannski í fleiri eintökum. Að ljóðabækurnar fái minni athygli á meðan flóðinu stendur en dúkki upp síðar og séu þá langt í frá komnar yfir ... Lesa meira

Hústrú Ólöf og hennar fólk

2026-09-17T09:52:39+00:0017. september 2026|

Sigríður Hagalín Björnsdóttir: Vegur allrar veraldar. Benedikt 2025. Fyrir síðustu jól kom út bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur Vegur allrar veraldar, skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims, riddarasögu, sem út kom fyrir fimm árum. Þessi greinarstúfur fjallar að mestu um þá síðarnefndu en ekki verður samt hjá því komist að hafa þær báðar undir ... Lesa meira

Að finna til með fjalli

2026-09-17T09:52:54+00:0017. september 2026|

Sunna Dís Másdóttir: Postulín. Mál og menning 2025 Sunna Dís Másdóttir gaf út ljóðabókina Postulín haustið 2025. Hún vakti talsverða athygli og var tilnefnd bæði til Fjöruverðlaunanna og Maístjörnunnar. Postulín er heildstæð bók, ljóðin segja ákveðna sögu og þó að þau séu knöpp verður sú saga smám saman býsna stór. Bókin skiptist í þrjá hluta. ... Lesa meira

Áskorunin að skrifa um fordæmda sögulega persónu

2026-05-21T10:38:28+00:0021. maí 2026|

Kristín Svava Tómasdóttir: Fröken Dúlla, ævisaga Benedikt 2025 Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af sínum nánustu, er meðal alræmdari persóna í íslenskri 20. aldar sögu. Flestir sem ólust upp um og eftir miðja síðustu öld hafa heyrt sögur af þessari kerlingu sem elti uppi ungar stúlkur í Reykjavík sem sóttust eftir að skemmta sér þar sem ... Lesa meira

Hvað varð um pælinguna?

2026-05-21T10:58:54+00:0021. maí 2026|

Andri Snær Magnason: Jötunsteinn. Mál og menning, 2025.   Jötunsteinn Andra Snæs Magnasonar var einn stærsti senuþjófur jólabókaflóðsins 2025. Sagan, sem kalla mætti nóvellu eða langa smásögu, segir í stuttu máli frá arkitektinum Árna, sem kastar hellusteini frá BM Vallá, þeirri tegund hellusteina sem bera einmitt heitið jötunsteinn, í átt að bílrúðu Range Rover-bifreiðar Bigga ... Lesa meira

Heimsendir á prentsafninu

2026-05-21T11:01:09+00:0021. maí 2026|

Þórdís Helgadóttir: Lausaletur Mál og menning 2025 Við byrjum á tilvitnun í 24. upplýsingafundinn vegna kórónuveirunnar, sem fór fram 24. mars 2020. Daginn áður höfðu samkomutakmarkanir verið hertar og fjöldatakmarkanir færðar niður í 20 manns í stað 100, og við öll mannamót átti að tryggja að fjarlægð milli manna yrði aldrei minni en tveir metrar.[i] ... Lesa meira

Hjartað og hvörfin

2026-05-21T10:20:43+00:0021. maí 2026|

Rán Flygenring: Blaka Angústúra 2024 Eftir lestur Blöku röltu afi og fjögra ára snáði niður í fjöru, ekki bara til að leita að kuðungum og dauðum kröbbum og skyggnast um eftir flugfiskum heldur líka leðurblökum. Við þurftum síður að hafa áhyggjur af hákörlum því þeir voru svo langt úti í sjónum. Sagan heldur vel athygli ... Lesa meira

Söguleg vandræði: samtal um skáldskap

2026-02-19T13:35:44+00:0019. febrúar 2026|

Sigrún Pálsdóttir, Blái pardusinn - hljóðbók Mál og menning 2025 Sagnfræði og skáldskapur hafa átt í margvíslegum tengslum í gegnum aldirnar og þeirra samband gjarnan mótast af viðtekinni vísindalegri hugsun hvers tíma. Bilið á milli þeirra breikkaði við vísindavæðingu húmanískra greina á 18. og 19. öld og svo mætti segja að þær hafi nálgast aftur ... Lesa meira