Haukur Már Helgason: Staðreyndirnar.

Mál og menning, 2025.

Gervigreind er orðin hluti af okkar daglega lífi hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Spunagreind og mállíkön hafa þróast hratt á undanförnum árum og sér ekki fyrir endann á því. Umræðan um gervigreind er að sama skapi síkvik þar sem hún breytist dag frá degi. Það er því mögulegt að skáldsagan Staðreyndirnar verði eins konar tímahylki um stöðu tækninnar í dag en segja má að gervigreindin sé ein af aðalpersónum sögunnar. Bókin er fjórða skáldsaga Hauks Más Helgasonar en hann hefur einnig gefið út fjórar ljóðabækur. Haukur er heimspekingur að mennt og hefur unnið við ýmis önnur ritstörf, blaðamennsku og þýðingar. Síðasta skáldsaga hans, Tugthúsið (2022), fjallaði um Tugthúsið við Arnarhól og varpaði ljósi á lífið í Reykjavík á seinni hluta nítjándu aldar. Að sama skapi horfa Staðreyndirnar til fortíðar en þar er sjónum beint að árum seinni heimsstyrjaldarinnar samhliða okkar samtíma.

Baráttan gegn upplýsingaóreiðu

Steinn er á uppleið í stjórnmálaheiminum þegar hann gerist sekur um alvarlegt mál sem veldur gríðarlegu hneyksli. Hann neyðist til að hætta í pólitík en í upphafi bókar er honum boðin staða skrifstofustjóra hjá nýstofnaðri Upplýsingastofu. Helsta verkefni stofunnar er að útbúa svokallaðan staðreyndagrunn sem er mótsvar stjórnvalda við upplýsingaóreiðunni sem ríkir. Staðreyndagrunnurinn á að vera „nokkurs konar skrá yfir ábyggilegar, vottaðar staðreyndir. Eins konar þinglýsing fyrir staðreyndir.” (12) Áhugavert er að staðreyndagrunnurinn, sem fær síðar heitið Landnáma, er gervigreindarvél en upplýsingaóreiðan er að vissu leyti tilkomin vegna þessarar sömu tækni sem „gerir hverjum sem er kleift að fjöldaframleiða fullyrðingar í áður óþekktum mæli.“ (71) Framkvæmdin á Landnámu virðist í fyrstu hnökralaus. Vandamálið sem starfsmenn Upplýsingastofu reka sig þó fljótt á er að gervigreindin er í eðli sínu óáreiðanleg. Allt fer svo á annan endann þegar háskólanemi spyr gervigreindina hvort íslensk stjórnvöld hafi einhvern tíma verið undir beinum áhrifum frá nasisma og fær jákvætt svar, enda hefur Landnáma ýmis gögn undir höndunum sem styðja það.

Steinn er bæði aðalpersóna og -sögumaður bókarinnar en frásögn hans er brotin upp með texta frá Landnámu þegar hann les úttak gervigreindarinnar. Oft fylgja einnig viðbrögð hans við textanum sem dýpkar jafnóðum texta Landnámu og persónu Steins. Myndast hér í raun eins konar rammafrásögn þar sem gervigreindin rekur atburði fortíðarinnar samtímis fyrir Steini og lesendum. Landnáma verður þar með ekki einungis ein af sögupersónum bókarinnar heldur jafnframt sögumaður. Líkt og segir á upplýsingasíðu bókarinnar byggir höfundur að hluta til á heimildum, líkt og þingræðum, opinberum skjölum og endurminningum. Það er þó ekki alltaf auðséð hvað er satt og hvað ekki. Mörkin á milli skáldskapar og raunveruleika eru þar með máð. Eitthvað sem endurspeglar eðli gervigreindarinnar sem er byggð á heimildum en við getum ekki alltaf vitað hvenær hún er að skálda í eyðurnar, draga eigin ályktanir eða hreinlega að fara með rangt mál. Þrátt fyrir að byggja á áreiðanlegum heimildum, eða staðreyndum, er gervigreindin því ávallt óáreiðanlegur sögumaður.

„Ekkert 1984-dæmi“

Hugmyndin að ríkisvottuðum staðreyndum vekur óneitanlega upp hugrenningatengsl við bókina 1984, rétt eins og stjórnvöld í Staðreyndunum eru meðvituð um. Þessi dystópíska skáldsaga George Orwells sem kom fyrst út árið 1949 fjallar, eins og flest vita, um alræðisríki sem hefur algera stjórn á þegnum sínum, lífi þeirra, hugsunum og minni. Í því felst meðal annars að framleiða eigin „staðreyndir“ og þvinga þeim upp á þegnana. Bókin á enn brýnt erindi í dag en sem dæmi má nefna að sala á henni rauk upp í fyrri valdatíð núverandi forseta Bandaríkjanna, þá sérstaklega eftir að þáverandi starfsmaður hvíta hússins sagði ósanna fullyrðingu forsetans ekki vera lygi heldur „annars konar staðreyndir“ (e. alternative facts).[1]

Yfirmenn Sveins ætla sér hins vegar ekki að gerast sekir um neitt „1984-dæmi“ en hæðni og írónía bókarinnar kemur hvað skýrast fram þegar sagan endurtekur sig og öllu er sópað undir teppið, rétt eins og á árum áður:

[Hermann Jónasson] knýr það svo fram að málinu er stungið undir stól og spyrst varla til þess næstu áratugina, að lögreglustjórinn, maðurinn sem beinlínis hrinti af stað þessum ofsóknum sem við eigum enn ekkert orð yfir, köllum enn bara ástandið, maðurinn sem kom fyrstur skipulagi á Útlendingaeftirlitið, að hann hefði sótt þjálfun sína, á vegum íslenskra stjórnvalda, til Þriðja ríkisins … (125)

Uppgjörið við fortíðina verður því aldrei og hræsni ríkisstjórnarinnar afhjúpast þegar ákveðið er að þagga niður í vélinni og forrita hana til að bægja frá sér óþægilegum spurningum líkt og þeirri um tengsl íslenskra stjórnvalda við nasisma. Þetta vekur óneitanlega upp spurningar sem höfundur virðist sjálfur vera að glíma við í verkinu: Munum við nokkurn tíma losna úr þeim vítahring að endurtaka mistök fortíðarinnar? Hvaða not höfum við af tæknilegum framförum ef maðurinn sjálfur þróast ekki með tímanum?

Hneykslið með hjartað

Staðreyndirnar rekja einnig sögu sambands Steins og Sólveigar. Löngu ástarsambandi þeirra er nýlega lokið þegar Steinn byrjar að starfa hjá Upplýsingastofu en Sólveig er á sama tíma ráðin forstjóri stofunnar. Inn í söguþráðinn blandast því flókið samband þeirra tveggja en rétt eins og gervigreindin er Steinn óáreiðanlegur sögumaður. Hann hefur jafnvel orð á því sjálfur að hann sé ekki áreiðanlegt vitni og að hann geti ekki endursagt samtöl orðrétt. Þetta sést best þegar kemur að hneykslismálinu. Í fyrstu gerir Steinn lítið úr hneykslinu með hjartað en þegar málið fer hægt og rólega að skýrast fyrir lesendum verður ljóst að um gríðarlega alvarlegt mál er að ræða. Sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra fékk Steinn yfirlækni á Landspítalanum til að setja fyrrverandi tengdaföður sinn – föður Sólveigar – í forgang á hjartaígræðslulista. Það er gríðarlega vel gert hvernig höfundur flettir ofan af hneykslismálinu alræmda þegar líður á bókina og gefur þar með skýrari mynd af aðalpersónunni og aðstæðum hennar. Lesendum verður fljótt ljóst að ekki er hægt að treysta sjónarhorni Steins þar sem augljós slagsíða er í frásögn hans af málinu en þessi óáreiðanleiki gerir hann að bæði áhugaverðum sögumanni og persónu ásamt því að dýpka frásögnina.

Annað áberandi stef er undirliggjandi útlendingahatur í íslensku samfélagi. Skýrasta dæmið er sú afstaða íslenskra stjórnvalda að taka ekki á móti flóttafólki af gyðingaættum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Höfundur dregur einnig upp hliðstæður á milli þessa svarta bletts í fortíð Íslands og atburða í nútímanum. Sláandi dæmi er seint í bókinni þegar Steinn rifjar upp samtal við Sólveigu þar sem kemur fram að maðurinn sem átti að fá hjartað var frá „Eritreu eða Sómalíu eða einhvers staðar þar.“ (107) Þar segir Steinn það hafa verið svo fráleitt að erlendur maður hafi verið á undan föður Sólveigar á biðlistanum eftir hjartaígræðslu að það jafnist á við kerfisvillu. Undir niðri má svo finna spurninguna hvort Steinn ætti jafn auðvelt með að breiða yfir dauða mannsins sem átti að fá hjartað ef hann væri innfæddur Íslendingur eins og faðir Sólveigar. Enn fremur setur Steinn samasemmerki á milli þess sem er utanaðkomandi og þess sem er ógnandi þegar hann áttar sig á því að Landnáma er byggð á erlendri tækni: „Hún er utanaðkomandi. Hún er útlendingur. Alltaf og alls staðar, einn eilífðar útlendingur. Og strax í kjölfarið, nánast í sömu mund, hvarflaði að mér ógnin sem stafaði af því. […] Ógn, já, réttast væri líklega að tala um ógn.“ (88) Hér má greina hvernig ótti og afmennskun liggja að baki og ýta undir útlendingaandúð en eins og höfundur bendir á eru þessir fordómar rótgrónir í íslensku samfélagi. Spurningin er því, ætlum við að horfast í augu við þessa bresti okkar eða halda áfram að stinga þeim undir stól, eins og við gerum við óþægilegar staðreyndir um fortíð okkar?

Lokaorð

Þegar á heildina er litið er skáldsagan Staðreyndirnar yfirfull af heimspekilegum pælingum þar sem höfundur veltir upp stórum og flóknum spurningum varðandi gervigreind, upplýsinga- og tjáningarfrelsi, íslensk stjórnvöld og fortíð þeirra. Á tímum mikillar óvissu sem einkennist meðal annars af upplýsingaóreiðu og hraðri tækniþróun ákveður höfundur að horfa aftur til fortíðar. Kastljósinu er þar beint að þungum málefnum en góðu jafnvægi er náð með húmor og íróníu í bland, án þess þó að draga úr alvarleika málsins. Sagan er gríðarlega vel uppbyggð og er óhætt að segja að hún skilji mikið eftir sig.

Unnur Steina K. Karls

[1] Sjá til dæmis Lynn Neary, „Classic Novel ‚1984‘ Sales Are Up In The Era Of ‚Alternative Facts‘“, NPR, 25. janúar 2017, https://www.npr.org/sections/thetwo-way/2017/01/25/511671118/classic-novel-1984-sales-are-up-in-the-era-of-alternative-facts