Jólin komu samt
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum á stóra sviði Borgarleikhússins í gær. Leikstjóri er Valur Freyr Einarsson. Textinn er byggður á vinsælli barnabók Dr. Seuss en Timothy Mason samdi handrit og söngtexta, Salka Guðmundsdóttir þýðir; Mel Marvin samdi tónlistina og tónlistarstjóri er Vignir Þór Stefánsson. Flókna og ævintýralega leikmyndina hannaði Axel Hallkell Jóhannesson; [...]