Þú ert hér://2026

Vítahringur hjónaerja

2026-10-16T14:46:54+00:0016. október 2026|

Rúmlega fertuga stofudramað Djöflar eftir sænska leikskáldið Lars Norén var frumsýnt fyrir viku á Nýja sviði Borgarleikhússins en ég sá aðra sýningu á verkinu í gærkvöldi. Þýðandi er Hlín Agnarsdóttir en leikstjóri Stefán Jónsson. Börkur Jónsson hannaði leikmyndina sem var mjög smart og líka furðu yfirgripsmikil, þar var – á einu gólfi – eldhús og ... Lesa meira

Íbúðabrask á Akureyri

2026-10-16T14:07:58+00:0011. október 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu Fasteignamartröðina eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar sem einnig þýðir verkið og staðfærir. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynd og búninga og Fjölnir Gíslason um ljósahönnun og myndbandagerð. Jóhannes Damian R. Patreksson samdi tónlistina en Gunnar Sigurbjörnsson sá um hljóðhönnun. Harpa Birgisdóttir ber ábyrgð á ... Lesa meira

Þetta verður ALLT Í LÆ

2026-10-16T14:09:48+00:0010. október 2026|

Á fimmtudagskvöldið frumsýndi Gaflaraleikhúsið í Bæjarbíói í Hafnarfirði uppistandið eða farsann eða söngleikinn Þetta reddast eftir Selmu Björnsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Björk Jakobsdóttur sem líka leika öll hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Óli Gunnar Gunnarsson, tónlistin er eftir Mána Svavarsson, Sölku Sól og Selmu, leikhópurinn sér um búninga en leikmynd hönnuðu Óli Gunnar, Freyr ... Lesa meira

Ég er höfðinglega venjuleg

2026-10-08T14:28:25+00:008. október 2026|

Í tilefni Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum birtum við hér viðtal sem Kristín Ómarsdóttir tók við Anne Carson árið 2018 fyrir Tímarit Máls og menningar.  Anne Carson. Teikning: Kristín Ómarsdóttir Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á kaffibar í Kaupmannahöfn á sænskt skáld lesa upp úr þýðingu bókar sem heitir Red Doc> (2013); ég skildi næstum ... Lesa meira

Rassaköst á Litla sviðinu

2026-10-16T14:13:53+00:003. október 2026|

Fjöllistahópurinn Visceral Abstraction frumsýndi séríslenska útfærslu á sýningu sinni Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir leikstjórn Juanitu Cardenas og Margrétar Erlu Maack. Juanita hannaði leikmynd og búninga með aðstoð Söru Magnúsdóttur. Jon Joni og hópurinn sömdu dansa en Sigurður „Gógó“ Starr hannaði hljóðmynd. Jóhann Friðrik Ágústsson hannaði lýsingu. ... Lesa meira

„Gleyma öllu nema þér“

2026-09-28T12:55:54+00:0028. september 2026|

Sviðslistahópurinn Spindrift sýnir nú í Tjarnarbíó kammeróperuna Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett eftir tónskáldið Önnu Halldórsdóttur og ljóðskáldið Elísabetu Jökulsdóttur. Leikstjóri er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir en tónskáldið er sjálf tónlistarstjóri. Sara Hjördís Blöndal hannaði leikmynd og búninga en Juliette Louste lýsingu. Ljóðabókin Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur vakti ... Lesa meira

Hjartsláttur leikhússins

2026-09-28T12:53:42+00:0028. september 2026|

Leikhópurinn Baksviðs frumsýndi í gær í Tjarnarbíó Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu eftir Vigdísi Gunnarsdóttur. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir sem líka leikur í sýningunni. Sviðsmynd og búninga hannaði Rebekka A. Ingimundardóttir en lýsinguna Fjölnir Gíslason og tónlist og leikhljóð skapaði Íris Thorarins. Við förum í leikhús til að sjá fullbúna leiksýningu en í Heimsókninni í ... Lesa meira

Tekist á í viðtengingarhætti

2026-10-16T14:18:52+00:0023. september 2026|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í síðustu viku í Kassanum nýtt verk eftir Kriðpleirsliðann Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli. Björn Thors leikstýrir en leikmynd og búninga sjá þær um Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir. Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu, Margrét Bjarnadóttir um sviðshreyfingar,  tónskáld  er Örvar Smárason en þeir Þóroddur Ingvarsson skapa saman sérkennilegan og ... Lesa meira

Fjötrar fortíðar

2026-10-16T14:24:35+00:0020. september 2026|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Svikasögur eftir Maríu Reyndal, höfundur leikstýrir sjálf. Aðstoðarleikstjóri er Egill Andrason en dramatúrgar Maríanna Clara Lúthersdóttir og Æsa Guðrún Bjarnadóttir. Eva Signý Berger hannaði þriggja hæða fjölskylduhúsið á sviðinu sem gaf manni nóg að horfa á og hugsa um, og hún sá líka um búninga sem ... Lesa meira

Vágestur eða sáluhjálp???

2026-09-17T09:52:14+00:0017. september 2026|

Natasha S: Mara kemur í heimsókn. Benedikt 2025   Í afbragðsgóðri ljóðabók Natöshu S, Máltaka á stríðstímum (2022), er þetta hárbeitta ljóð: KONUR fá   grátköst martraðir grátt hár svefnleysi   skilaboð martraðir dánarvottorð svefnleysi   vopn martraðir (17)   Þetta er hlutskipti kvenna í stríðshrjáðum löndum, æði fjarri veruleika íslenskra kvenna, nú en sé ... Lesa meira