Olga Sonja Thorarensen og Salóme Sól Norðkvist frumsýndu Púðlusafnið í Tjarnarbíó fyrir síðustu helgi. Þar leika þær sjálfar en leikstjórar eru Kara Hergils Valdimarsdóttir og Andrea Elín Vilhjálmsdóttir. Tónheiminn skapaði Ragnheiður Erla, Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir og Alexía Rós Gylfadóttir hanna leikmynd og búninga, Cristina Agueda lýsir sýninguna og Ásrún Magnúsdóttir dansari er dramatúrg.
Olga Sonja heitir eftir ömmum sínum og hjá annarri þeirra ólst hún upp að nokkru leyti. Sú amma varð mikið átrúnaðargoð barnabarnsins enda greinilega heillandi kona eins og bæði mátti heyra af lýsingum í texta og sjá á fjölskyldumyndböndum á baksviði. Þessi amma átti mikið safn púðluhunda úr postulíni sem Olga fékk að leika sér með þegar hún var lítil og áður en amma lést arfleiddi hún barnabarnið að safninu. Það vafðist eðlilega fyrir Olgu Sonju hvað hún ætti að gera við safn af tvö hundruð postulínsstyttum en lausnina á því fann hún eftir lestur skáldsögunnar Night Bitch eftir bandaríska höfundinn Rachel Yoder. Þar finnur ung, einmana og einangruð móðir í stórborg til óvænts skyldleika við hundtíkur, ræktar með sér vissa eiginleika þeirra og flýr inn í þeirra heim, hafi ég skilið rétt. Olga tengir þetta í huga sér við safnið, fær systur sína, Salóme Sól, í lið með sér og saman búa þær til sýninguna sem ég sá föstudagskvöldið 23. október.
Olga Sonja skapar ramma sýningarinnar með frásögn af ömmunni góðu og segir okkur líka lítillega af lífi sínu með tveim börnum. Hið yngra er enn á brjósti og brjóst (og spenar) eru talsvert fyrirferðarmikil í sýningunni. En frásögnin er ekki löng og þegar henni sleppir tekur við sambland af látbragðsleik og dansi þar sem þær systur leika púðluhunda, pósa, dilla sér, urra og fljúgast á. Smám saman bæta þær við búninga sína sem minntu æ meira á dýrin og voru satt að segja alveg sérstaklega vel hugsaðir og skemmtilegir – geggjaðar hárkollur. Sömuleiðis var sviðið einkar hentugt þótt einfalt væri og ljósabeitingin brá töfrandi litbrigðum yfir allt saman. Tónlistin var kunnugleg en þó fjölbreytt.
Þetta er sannarlega ekki viðamikil leiksýning en systurnar tvær eru virkilega aðlaðandi og skemmtilegir dansarar þannig að það er gaman að horfa á þær og sjá hvernig þær breytast í krúttlegar púðlur fyrir framan nefið á okkur! Það vantaði að vísu alveg háskann sem mér skilst að sé í verki Yoder en hann hefði kallað á mun meiri og dýpri texta sem ekki var rúm fyrir í Púðlusafninu.
Silja Aðalsteinsdóttir