Þú ert hér:///maí

Vandinn við tvo menningarheima

2026-05-31T20:22:42+00:0031. maí 2026|

Handbendi brúðuleikhús kom með sýningu sína Rót til Reykjavíkur í dag og sýnir hana í Tjarnarbíó á Listahátíð. Höfundur handrits og leikstjóri er Greta Clough, Sigurður Líndal Þórisson þýðir textann á íslensku en Tessa Rovarola þýðir hluta af honum á spænsku og guarani. Brúðuhönnun önnuðust Katanari, Pilkington Props, Greta Clough og Auður Ösp Gilsdóttir. Leikmynd, ... Lesa meira

Áskorunin að skrifa um fordæmda sögulega persónu

2026-05-21T10:38:28+00:0021. maí 2026|

Kristín Svava Tómasdóttir: Fröken Dúlla, ævisaga Benedikt 2025 Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af sínum nánustu, er meðal alræmdari persóna í íslenskri 20. aldar sögu. Flestir sem ólust upp um og eftir miðja síðustu öld hafa heyrt sögur af þessari kerlingu sem elti uppi ungar stúlkur í Reykjavík sem sóttust eftir að skemmta sér þar sem ... Lesa meira

Hvað varð um pælinguna?

2026-05-21T10:58:54+00:0021. maí 2026|

Andri Snær Magnason: Jötunsteinn. Mál og menning, 2025.   Jötunsteinn Andra Snæs Magnasonar var einn stærsti senuþjófur jólabókaflóðsins 2025. Sagan, sem kalla mætti nóvellu eða langa smásögu, segir í stuttu máli frá arkitektinum Árna, sem kastar hellusteini frá BM Vallá, þeirri tegund hellusteina sem bera einmitt heitið jötunsteinn, í átt að bílrúðu Range Rover-bifreiðar Bigga ... Lesa meira

Heimsendir á prentsafninu

2026-05-21T11:01:09+00:0021. maí 2026|

Þórdís Helgadóttir: Lausaletur Mál og menning 2025 Við byrjum á tilvitnun í 24. upplýsingafundinn vegna kórónuveirunnar, sem fór fram 24. mars 2020. Daginn áður höfðu samkomutakmarkanir verið hertar og fjöldatakmarkanir færðar niður í 20 manns í stað 100, og við öll mannamót átti að tryggja að fjarlægð milli manna yrði aldrei minni en tveir metrar.[i] ... Lesa meira

Hjartað og hvörfin

2026-05-21T10:20:43+00:0021. maí 2026|

Rán Flygenring: Blaka Angústúra 2024 Eftir lestur Blöku röltu afi og fjögra ára snáði niður í fjöru, ekki bara til að leita að kuðungum og dauðum kröbbum og skyggnast um eftir flugfiskum heldur líka leðurblökum. Við þurftum síður að hafa áhyggjur af hákörlum því þeir voru svo langt úti í sjónum. Sagan heldur vel athygli ... Lesa meira

Orðstír of gat / Benedikt at þat

2026-05-16T13:11:21+00:0016. maí 2026|

Um þessar mundir eru tuttugu ár síðan ævintýrið hófst á söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þær eru ófáar ánægjustundirnar sem ég hef átt þar og ekkert lát á. Í tilefni af tímamótunum er nú um helgina endurfrumsýndur einleikur Benedikts Erlingssonar, Mr Skallagrímsson, sem var einmitt fyrsta sýningin á Söguloftinu, verðlaunuð, lofuð og dáð. Hér segir ... Lesa meira

… og svo kom rauða blaðran

2026-05-03T21:22:00+00:003. maí 2026|

Þeir hafa margt lært af meisturum látbragðsleiksins, piltarnir tveir sem frumsýndu verk sitt Innblástur í Tjarnarbíó í dag, til dæmis varð mér stundum hugsað til Nútímans eftir Chaplin og ekki leiðum að líkjast. Við erum stödd í verksmiðju, kannski að næturlagi. Einn vaktmaður (Nikulás Hansen Daðason) gengur sínar föstu eftirlitsferðir um svæðið uns hann verður ... Lesa meira