Einar Már Guðmundsson. Allt frá hatti ofan í skó.

Forlagið, 2025.

Á þessum síðustu og verstu, þegar mannkynið hamast við að búa til vélar sem geta hugsað og skrifað, verður meira áberandi hversu magnaður góður texti er. Hversu lipur hann þarf að vera til þess að krækja í almennar hugmyndir á sama tíma og hann miðlar eigin hugmyndum, þvert á tíma og rými. Bestu bókmenntatextar eru skrifaðir með þeim hætti; textinn fangar mismunandi tímabil, er opinn og teygjanlegur en á sama tíma nákvæmur í lýsingu sinni á tilteknu fyrirbæri. Þannig texta er að finna í skáldsögu Einars Más Guðmundssonar, Allt frá hatti ofan í skó (2025), sem má lesa með ýmsum hætti. Verkið er sjálfsævisögulegt, skáldævisögulegt, og vísar í fleiri bókmenntahefðir, eins og ferðabækur. Skáldsagan er því, fyrir utan að höfða til hins almenna lesanda sem lýsing á viðburðum og tímabili, veisla fyrir bókmenntafræðinga sem geta leikið sér að því að greina hana þvera og endilanga.

Verkið hefur yfirbragð sjálfsævisögu Haralds, sem er karakter úr öðrum verkum höfundar, þekktastur sem bróðir söguhetjunnar í Englum alheimsins (1995). Þar með tekur strax í upphafi að glitta í ákveðið bókmenntalandslag í textanum og tengingar við önnur verk en einnig líf höfundar, því eins og alþjóð veit eru Englarnir unnir upp úr fjölskyldusögu höfundar.

Á Íslendingaslóðum

Höfundur heldur því fram, í lok fyrsta kafla í Allt frá hatti ofan í skó, að verkið fjalli um níunda áratuginn, sem sögumaður kallar áttuna. Hann mætir til Kaupmannahafnar í upphafi áratugarins og sest að í miðju menningarlífsins á stúdentagarðinum Sofiegaarden. Hann er ljóðskáld og er í félagsskap við menn á borð við F. P. Jac, Claus Höeg og Sören Ulrik Thomsen. Hér beitir höfundur formgerð ferðabókarinnar og nefnir sjálfur nokkrar slíkar svo til verða flókin textavensl. En hér erum við líka á Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn, sem er nánast sjálfstæð menningarhefð. Til eru bækur,  skipulagðir göngutúrar og minnisplötur sem snúa að afrekum eða afdrifum Íslendinga í fyrrum höfuðborginni við Eyrarsund. Eins og segir í sögunni: „Það má slæða okkur Íslendinga upp úr síkjum fortíðarinnar, sækja okkur í fangelsin, í slaveríið, þrælabúðirnar, í Rasphúsið og Stokkhúsið og í Vestre fængsel síðar meir.“ (32)

Þannig er hægt að lesa bókina sem skemmtilega sjálfsævisögulega frásögn Haraldar um lífið á níunda áratugnum í Kaupmannahöfn, með öllu sem tilheyrir. Skrautlegar sögur af fylleríi, af baslinu og útlöndum, eins og þau birtast ungum Íslendingi. En það er einnig hægt að lesa textann sem íhugun höfundar um eigin tilurð. Allar vísanir virka þannig í sjálfu sér sem texti en þegar nánar er að gáð ávarpa þær sköpunarsögu höfundarins, þær áskoranir og þau deilumál sem hafa litað höfundarlíf hans.

Haraldur ræðir til dæmis það undarlega óréttlæti sem felst í því að Danir viti ekki neitt um Ísland og vísar í Pétur Gunnarsson sem hefur skrifað um þetta þekkingarleysi Dana sem óþægilega viðbót við nýlendusambandið (37). En þar með snertir höfundur líka á valdi minnis og vísar til verksins sem eins konar minningarbókar. Hann rifjar upp atvik sem á sér stað á meðan hann bíður eftir að vera afgreiddur eftir númeri í verslun, en viðurkennir svo: „Kannski bjó ég þetta til í huganum, þetta með númerin, en mig minnir að þannig hafi það verið og þannig er það í þessari sögu, fyrst mig minnir það. (35)“ Hér er sögumaður heiðarlegur í óheiðarleika sínum  – flettir bókstaflega ofan af sjálfum sér. Þetta er hvorki nýstárlegt tilbrigði í bókmenntum, né nokkur bylting, en þessi póstmódernísku stílbrigði eru skemmtilega lítillát og gera verkið einstaklega sjarmerandi.

Stríðni

Allt frá hatti ofan í skó er vönduð skáldsaga en nafn Einars Más á kilinum gefur henni strax vægi og merkingu í bókmenntasögulegu samhengi. Einar Már er einfaldlega þannig höfundur að nafn hans skapar væntingar um gerð og gæði verksins. Við það bætist að uppsetning og efnistök eru til fyrirmyndar, verkinu er skipt í sex hluta og svo eru tólf kaflar þar undir – hver með sínu heiti til að auðvelda lesanda að halda utan um efni. Áður en texti bókarinnar hefst er listi yfir útgefin verk höfundar sem undirstrikar stöðu hans, og hér er líka efnisyfirlit. Við það bætist svo að á titilsíðu er textinn kynntur sem skáldsaga. Svo hefst fyrsti hluti og þá kafli eitt sem nefnist „Nafnkunnir menn á Norðurlöndum“. Þá er bara að halla sér aftur og lesa og svona hefst sagan: „„Enginn veit hvað skáldsaga er,“ segir danska skáldið Poul Borum. Poul Borum! Hver er hann?“ (9) Hér er höfundur að leik, fyrst er lesanda talin trú um að allt sé með felldu og svo er teppinu kippt undan honum. Í stað þess að grípa lesanda bendir höfundur bara á furðufuglinn Poul Borum – og reynir þannig eins og töframaður að afvegaleiða lesanda. Þó að það sé alls óvíst að íslenskir lesendur almennt viti hver þessi Borum er – þá er óvissa þeirra þar með ákvörðuð. Þetta er skemmtilegt.

Haraldur metsölubók

Skáldsagan minnir á tíðum á bókmenntafræðilegan hasar, því þar sem við komum inn í tölu Borums heitins er hann einmitt að velta vöngum yfir sambandi listar og dægrastyttingar. Hvernig er hægt að finna jafnvægi á milli þess að fanga lesendur og vinna á skapandi hátt með textaformið.

Höfundur vísar ekki bara í þessa umræðu heldur leikur sér þematískt með hana þegar Haraldur segist í upphafi hafa verið kallaður til yfirheyrslu vegna morðmáls á Amager og bætir við að hann muni upplýsa um það annars staðar. Morðmál eru hefðbundin leið fyrir höfund til að fanga lesendur og þar með vísun í vangaveltur um eðli skáldsögunnar, og þá sérstaklega í íslenskum samtímabókmenntum þar sem æ fleiri sögupersónur láta lífið á óhugnanlegan hátt.

Hér snertir höfundur á alþekktum vanda, metsölubækur eru ekki endilega góðar bókmenntir og góðar bækur verða ekki endilega metsölubækur. Þetta er erfið umræða, um stigveldi bóka sem oft speglar áherslur í samfélögum og getur verið erfitt að eiga við. Hún tekur auðvitað líka á hugmyndum um fílabeinsturna, snobb og list sem snýr baki við samfélaginu. Þar með fjallar þessi umræða einnig um Einar Má, en þessa strauma má hvora tveggja finna í höfundarverki hans. Hann er ljóðskáld, kom fyrst fram á sjónarsviðið 1980 með ljóðabókunum Er nokkur í kórónafötum hér inni? og Sendisveinninn er einmana og hefur kannski þrammað um miðbæinn og reynt að selja eintök af eigin útgáfu, en hann er líka metsöluhöfundur. Haraldur, sem er aðalsöguhetja bókarinnar, virðist einnig þekkja þessa tvo heima og veltir fyrir sér örlögum ýmissa höfunda sem annaðhvort voru seldir í bílförmum eða í fáum eintökum. Michael Strunge kemur við sögu snemma í verkinu, en hann er einmitt dæmi um höfund sem fléttar þessu saman, róttækt pönkskáld sem kærði sig lítið um sölutölur en seldist samt.

Textinn og ég

Þá er einnig minnst á félaga Strunge, eins og skáldið Sören Ulrik Thomsen sem stendur undir væntingum eins og alltaf. Hann kynnir til sögunnar hugmynd um að allur texti sé sjálfsævisögulegur, að hann, Sören Ulrik Thomsen, geti ekki skrifað texta sem fjalli ekki um hann sjálfan og því eigi hann erfitt með að skilja skáldsöguna sem fyrirbæri. Hér tengjum við aftur við höfundarverk Einars Más og sjálfsævisögulegan ramma þess og þann texta sem hvílir undir. Skilin á milli sjálfsævisögunnar og skáldsögunnar verða þannig á köflum svo gegnsæ að lesandi sér vel í gegnum þau og rakleiðis inn í vélarrúm höfundar. Það er til að mynda mikið rætt um Guðberg Bergsson í upphafi og hann settur í samhengi við Poul Borum, en undir niðri erum við meðvituð um að Tangabækur Guðbergs eru svipað fyrirbæri og hér um ræðir, og þannig berskjaldar textinn sig. Poul Borum, sem var gagnrýnandi og skáld, á sér sögu um mikinn geðrænan vanda og þar með speglar saga hans söguna af bróður Haraldar.

Karlar og konur

Þetta er karlasaga – sem kemur engum á óvart þar sem níundi áratugurinn var karllægur – sérstaklega í bókmenntum. Þó að konur hafi verið að hasla sér völl á þeim tíma var enn talað um kvenhöfunda og kvennabókmenntir, og þær þóttu ekki sérstaklega merkilegar í bókmenntaumræðu í Danmörku, þar sem gagnrýnendur Extra Blaðsins voru áberandi í sleggjudómum og fimmaurabröndörum. Alvöru bókmenntir voru þá enn strákaklúbbur en það tók ekki að breytast fyrr en liðið var langt fram á tíunda áratuginn. Sögumaður lýsir því hins vegar að hafa verið rekinn út úr femínískri bókabúð í miðborg Kaupmannahafnar. Sú reynsla hefur ef til vill gefið honum einhverja hugmynd um hvernig upplifun það er að vera útilokaður úr menningarlífinu á grundvelli kyns. Hann veltir einnig fyrir sér vinsældum Vitu Andersen en konur sem skrifuðu út frá eigin reynslu voru á þeim tíma flokkaðar sem bekendelseslitteratur og þótti ekki fínt. Sögumaður ræðir þetta ekki frekar þó að það verði auðvitað mjög skondið í ljósi þeirrar bókmenntagerðar sem hér er undir og afstöðu manna á borð við Sören Ulrik Thomsen til skáldsögunnar.

Ungur ég var

Sögumaðurinn Haraldur rifjar upp námsárin í Kaupmannahöfn, eins og áður segir, sem eru þau ár sem öðrum fremur mótuðu lífshlaup hans. Ferðasagan verður þannig að mótunarsögu eins og á reyndar gjarnan við um aðrar frægar ferðasögur. Halldór Laxness kemur fyrir í verkinu þegar minnst er á sjálfsævisögu skáldsins, Í túninu heima. En sagan sjálf minnir meira á Ungur ég var eða Grikklandsárið í inntaki, þó að hún vísi í sjálfu sér í allar minningabækur Laxness. Það er þá annars vegar í þessum einkennandi hringsólandi stíl, þar sem er komið aftur og aftur að sömu sögu eða fyrirbæri, á tilviljunarkenndan og áreynslulausan hátt, svo lesandi fær nánast þá tilfinningu að hann sitji á spjalli við höfund. Frásögnin læðist einhvern veginn áfram en þegar nánar er að gáð er hún formföst og útpæld í vísunum og textavenslum. Þetta á við um bæði minningabækur Laxness og þessa bók, á yfirborðinu virðast þær saklaus upprifjun á atburðum fyrri ára en sögumanni er ekki alveg treystandi og kannski fjalla þær um eitthvað allt annað. Gunnþórunn Guðmundsdóttir hefur bent á að minningarbækur Halldórs snúist í raun um tilurð skáldsins.[1] Það má einmitt segja um þessa bók Einars Más sem fjallar um það hvernig Haraldur varð skáld – sem bætir einni vídd við minningarbókina, að hún skuli vera skálduð frásögn sem samt í mörgu minnir á ævi höfundar. En Einar Már bjó einmitt í Kaupmannahöfn, og var hluti af því samfélagi skálda sem Haraldur ferðast í.

Allt frá hatti ofan í skó er slagorð frá reykvískri fataverslun og jafnframt vísun í fyrrnefndan Guðberg Bergsson, sem talaði um menn klædda í jakkaföt frá þessari tilteknu verslun. Auk þess sem Haraldi Kr. buðust föt frá versluninni sem eins konar höfundarlaun. En þessi setning er líka dæmi um það hvernig tungumálið virkar. Ólíkt fataversluninni er hér verið að vinna með allt það sem er frá hatti ofan í skó – sjálfan manninn og tilvist hans. En hann er einmitt það sem ekki er nefnt í titlinum – sjálft inntakið í skóm og hatti – þannig getur tungumálið, með neitunum, vísunum og öfugmælum, fjallað um allt það sem ekki er skrifað og haft að geyma fjölda annarra texta. En svo líka bara verið lítil saga um íslenskan höfund sem flæktist í menningarlífið í Kaupmannahöfn á yngri árum og hefur ekki ratað út síðan.

Það er óhætt að fullyrða að Einar Már Guðmundsson er einn okkar besti höfundur og öruggasti stílisti, og það er unun að lesa verk sem vandað hefur verið til með þeim hætti sem hér er gert. Þetta er áreynslulaus leikur að eigin höfundarverki, íslenskri bókmenntasögu og norrænu menningarlífi, auk þess að vera skemmtileg bók, höfundur er óhræddur við að stríða lesanda og setja sig í spaugilegar stellingar.

Rósa María Hjörvar

[1] Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Becoming a Writer: Halldór Laxness and the Memoir. Scandinavica, 2003, 95-108