Gerður Kristný: Míkadó.
Mál og menning 2026
Gerður Kristný hefur sent frá sér nýja skáldsögu, Míkadó, sem er hluti af öflugu jólabókaflóði þessa árs. Gerður hefur, eins og flestum er kunnugt, gefið út ljóðabækur, skáldsögur og barnabækur og er þekkt fyrir meitlaðan stíl og sterkt myndmál. Hún vinnur oft með þung viðfangsefni í verkum sínum og hefur einstakt lag á að sveipa þau kímni og hárbeittum tón. Bækur Gerðar hafa hlotið viðurkenningar og verðlaun, og verið þýddar á fjölda tungumála.
Í Míkadó fáum við að kynnast aðalsögupersónunni, ellefu ára stelpu, sem elst upp á níunda áratugnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem höfundurinn notar sjónarhorn barns eða unglings til að segja sögu en í bókinni Smartís, sem kom út árið 2017, er aðalpersónan unglingur, aðeins eldri en stelpan sem hér um ræðir, þótt þær eigi margt sameiginlegt. Í bókinni Hestvík frá árinu 2016 má einnig finna eftirminnilega persónu tólf ára stráks, þó hann sé ekki sögumaður í því verki. Þar að auki hefur Gerður Kristný skrifað um ógleymanlegar barnapersónur i barnabókum sínum. Í verkum á borð við Ballið á Bessastöðum, Garðurinn og Dúkka eru raddir barna sterkar og eftirminnilegar. Skáldsögur Gerðar eiga það sameiginlegt að vera knappar og láta lítið yfir sér í fyrstu en iðulega býr margt undir niðri og hægt er að ganga að því vísu að engu orði sé ofaukið í textanum.
Æskan sem Míkadó
Verkið Míkadó skiptist í fjóra hluta og segir frá atburðum á ellefta aldursári aðalpersónunnar sem segir söguna frá eigin sjónarhorni. Sagan varpar þannig upp mynd af lífi stelpunnar, tilfinningum hennar og tengslum eða tengslaleysi við fjölskyldu og umhverfi. Við lesendur fáum að dvelja í kvíða hennar yfir vinaleysi en líka björtum augnablikum og fáum innsýn í sjálfsímynd hennar sem byggir að miklu leyti á því viðmóti sem hún hefur fengið heima fyrir.
Leikurinn Míkadó, sem titill bókarinnar vísar til, er spilaður með prjónum í mismunandi litum sem látnir eru falla og passa þarf að hreyfa aðeins einn prjón í einu án þess að hreyfa hina. Þátttakendur þurfa að ná sem flestum prjónum og sigra þannig andstæðinginn. Rétt eins og þegar leikurinn er leikinn þurfa börnin í verkinu að halda niðri í sér andanum til að hrófla ekki við viðkvæmu ástandi þeirra fullorðnu. Þau læra að trufla ekki tilfinningalíf fullorðinna og gæta þess að raska ekki viðkvæmu jafnvægi.
Í fyrsta hlutanum fylgjum við sögupersónunni í jólaboð með bróður hennar og föður. Móðirin tekur fyrir að mæta og brýnir fyrir dóttur sinni að segja að hún sé upptekin. Það er jóladagur og frænka sögupersónunnar er búin að útbúa klassískt kökuhlaðborð með rjómatertu, aspasrétti, rækjusalati og ritzkexi. Það líður ekki á löngu áður en ljóst er að eitthvað hefur komið upp á en önnur frænka í boðinu skartar slæmu glóðarauga eftir eiginmann sinn. Hér er lýst klassísku íslensku fjölskylduboði þar sem börn og fullorðnir mætast og börnin meðtaka það sem á sér stað hjá fullorðna fólkinu. Gerði tekst í fáum línum að lýsa andrúmslofti í aðstæðum þar sem hlutaðeigandi hafa engan áhuga á að vera í.
Í öðrum og þriðja hluta er sagt frá atburðum sem eiga sér stað yfir sumartímann í lífi stelpunnar; annars vegar í kristilegum sumarbúðum sem reknar eru af nunnum og hins vegar atburðum sem eiga sér stað þegar hún og vinkonur hennar taka að sér að passa börn.
Í sumarbúðunum kynnumst við aðalpersónunni betur og sjáum hvernig óöryggi hennar birtist í samskiptum við jafnaldra sína. Hún fylgist vel með umhverfi sínu og virðist greind og næm, en á erfitt með að treysta eigin verðleikum. Á sama tíma upplifir hún frelsi til að sýna á sér skapandi hliðar sem hún hefur ekki haft rými til heima við. Undir niðri liggur stöðugur kvíðinn um að missa félagsskapinn og tengslin sem hún hefur skapað sér fjarri heimilinu. Nunnurnar sem reka sumarbúðirnar verða að nokkurs konar táknmynd fyrir það hvernig börn skynja valdaafstöðu fullorðinna; hver fær athygli, hver fær hrós og hver verður útundan. Það skiptir kannski minna máli hvort þessi mismunun er raunveruleg eða ekki, heldur hvernig stúlkan upplifir hana.
Gerður nær vel að sýna hvernig alvara fullorðinna getur birst börnum sem eitthvað dularfullt og jafnvel fáránlegt. Höfundi tekst að draga fram kímnina sem verður til þegar barn reynir að skilja reglur og siði sem enginn hefur útskýrt fyllilega fyrir því. Þar nýtist hið barnslega sjónarhorn vel, enda byggir stór hluti kímninnar á þeirri spennu sem myndast milli þess sem lesandinn skilur og þess sem sögumaðurinn sjálfur sér ekki að fullu.
Í þriðja hluta bókarinnar erum við lent í dæmigerðu sumri hjá táningsstelpum og lífið gengur út á að vera barnapía. Eins og þruma úr heiðskíru lofti á sér stað hræðilegur atburður sem ekki verður farið nánar út í hér, þar sem hann kemur lesandanum svo gjörsamlega í opna skjöldu miðað við þann tón sem ríkir fram að því í bókinni. Og jafn skjótt og það gerist dettur allt í dúnalogn aftur. Eins hræðilegur og atburðurinn er verður hann örlítið kómískur og goðsagnakenndur, og lesandinn veltir fyrir sér hvað hafi gerst í raun og veru.
Í fjórða og síðasta hlutanum styttist í aðventuna og börnin eru stödd í skólanum að undirbúa jólaleikrit ársins. Alls óvænt stígur hin fjarverandi móðir inn í verkefnið. Þá kemur í ljós að hún hefur sjálf skrifað leikrit sem henni þykir henta fyrir grunnskólabörn og vill sjá sett á svið.
Níundi áratugurinn í bakgrunni
Sögutíminn í bókinni, níundi áratugurinn, hangir í bakgrunni en er ekki jafn áberandi og í fyrrnefndri bók Gerðar, Smartís. Litla tímamola má finna á víð og dreif í köflunum en períóðan tekur ekki yfir viðfangsefni textans. Tímabilið í bókinni snertir kannski frekar streng hjá lesendum sem upplifðu það, en hjá þeirri sem þetta ritar. Það kemur þó ekki að sök, eða þvert á móti. Hér er á ferð fyrst og fremst saga stúlku sem stendur á mörkum æsku og unglingsára, fjölskyldu og ytra umhverfis. Einmitt vegna þessa verður bókin sterkari en ella. Hún krefst þess ekki að lesandinn þekki tímabilið eða deili sameiginlegum reynsluheimi með persónunum. Hún byggir fremur á þeim sameiginlega grunni sem flestir þekkja úr æsku; því að skynja að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera en skorta orðaforðann eða þroskann til að útskýra það.
Yfirbragð æsku barnanna er þó auðvitað ólíkt æsku barna í dag, afskiptaleysi foreldranna á högum barnanna, viðhorf sem birtast í málefnum á borð við heimilisofbeldi og í öðrum flóknum fjölskylduaðstæðum. Þær tilfinningar sem hér eru til umfjöllunar eru tímalausar: löngunin að tilheyra, kvíðinn við að gera mistök og þörfin fyrir viðurkenningu frá þeim sem standa manni næst.
Í textanum nær höfundur að fanga vel hvernig það er að vera barn sem þarf stöðugt að hugsa um þá spennu sem verður til í samskiptum við fullorðna, stöðugt að tipla á tánum og vera á varðbergi. Þannig öðlast hún einnig lestur á umhverfi sitt. Hún finnur fyrir því þegar frænka hennar stífnar upp í jólaboðinu þegar minnst er á pabba hennar, hún tekur eftir því að aðrar stelpur í sumarbúðunum eru í uppáhaldi hjá nunnunum og hún áttar sig á að leikritið sem mamma hennar skrifar fyrir skólann er ekki viðeigandi.
Að því sögðu er stelpan eftir allt saman aðeins ellefu ára svo það er einnig margt sem hún áttar sig ekki á og viðbrögð hennar verða kómísk í aðstæðunum þegar lesandinn veit betur. Þannig nær höfundurinn að koma aldrinum vel til skila. Ellefu ára stelpa stendur á mörkum þess að vera barn og er að stíga inn í unglingsárin. Umhverfið kemur fram við hana eins og barn en þroskinn kemur í stökkum auk þess sem foreldrar hennar hafa skapað henni að mörgu leyti ótryggar aðstæður sem mögulega hafa neytt hana til að þroskast fyrr. Þessi skilningur á textanum getur þó verið lestur manneskju sem er fædd aðeins seinna og tengir því ekki á sama hátt við fjarlægðina sem er til staðar milli barna og fullorðinna á þessum tíma.
Það er einmitt í fjölskyldusamböndunum sem styrkur bókarinnar birtist skýrast. Þótt samfélagsmynd níunda áratugarins gefi sögunni ákveðinn ramma beinist athygli höfundar fyrst og fremst að því sem gerist innan veggja heimilisins. Þar verða til þau mynstur sem móta sjálfsmynd stúlkunnar og samskipti hennar við aðra. Tíðarandinn skýrir að einhverju leyti afstöðu fullorðinna, en hann útskýrir ekki allt. Það sem stendur eftir í huga lesandans er ekki tímabilið eða nostalgía heldur mannleg tengsl sem eru bæði brothætt og flókin.
Flókin fjölskyldusambönd
Við lestur bókarinnar rifjast upp móðurpersónan í fyrri bók Gerðar, Smartís, frá 2017. Þar birtist svipuð móðurpersóna; stöðugt þreytt og fjarverandi. Þar spilar hún þó minna hlutverk því aðalpersónan þar er eldri og vináttusambönd eru það sem skipta mestu máli.
Í Míkadó birtist móðirin fyrst og fremst í gegnum augu dóttur sinnar sem finnur fyrir höfnun hennar, fálæti og stöðugum kröfum. Smám saman verða þó fleiri blæbrigði sýnileg. Lesandinn fer að átta sig á að móðirin er sjálf föst í aðstæðum sem hún ræður illa við og glímir við eigin vonbrigði og óuppgerða drauma. Gerður forðast að skipa persónum sínum í einföld hlutverk gerenda og þolenda. Í stað þess sýnir hún hvernig vanlíðan og óhamingja geta erfst áfram innan fjölskyldna og birst í daglegum samskiptum sem utan frá virðast smávægileg en hafa djúpstæð áhrif á börn. Þegar móðirin lokar sig af inni í svefnherbergi eða krefst þess að börnin tipli á tánum í kringum hana verður hún sjálf hluti af því viðkvæma jafnvægi sem titill bókarinnar vísar til.
Annað samband sem er lýst í bókinni á næman hátt er systkinasamband aðalpersónunnar við eldri bróður sinn, Högna. Ótti, þrúgandi spenna og valdaójafnvægi einkennir öll samskipti þeirra og þau fullorðnu leiða það hjá sér eða beinlínis ýta undir það. Þessi togstreita á milli systkinanna kemur strax fram á fyrstu síðum bókarinnar, þegar börnin tvö sitja í aftursæti bíls þar sem faðir þeirra er við stýrið. Bróðirinn rekur bylmingshögg í systur sína og þá er mikilvægast af öllu að faðir þeirra verði ekki neins var. Í framhaldinu gengur líf aðalpersónunnar mikið út á að forðast mögulega árekstra við bróður sinn. Það var eitthvað sérstaklega óþægilegt við lesturinn á þessu sambandi systkinanna. Kannski vegna þess að við erum vön því að sambönd barna eigi að vera einföld, og systkinaerjur séu hluti af því að alast upp með öðrum börnum. Stelpan upplifir raunverulegt hættuástand, og þau fullorðnu gera lítið til að stíga inn, sem gerir aðstæðurnar jafnvel enn erfiðari en ella.
Gerður hefur einstakt lag á að skapa þrúgandi andrúmsloft og dvelja síðan í tilfinningunni sem liggur í loftinu. Þótt bókin láti ekki mikið yfir sér í lengd, enda knappur stíll eitt höfuðeinkenna Gerðar Kristnýjar, bæði sem ljóðskálds og skáldsagnahöfundar, er hún óvenju þétt í vinnslu sinni á persónum og andrúmslofti. Höfundurinn þarf sjaldan langar lýsingar til að skapa stemningu. Eitt orð, athugasemd eða stutt samtal nægir oft til að gefa í skyn langa sögu sem lesandinn skynjar að hvílir undir yfirborðinu. Þetta er einmitt eitt af því sem gerir lesturinn áhrifamikinn. Gerður treystir lesandanum til að fylla í eyðurnar. Hún segir sjaldan berum orðum hvað persónurnar hugsa eða finna heldur birtist það í hegðun þeirra, því sem er sagt og ekki síður því sem er ósagt.
Viðkvæmt jafnvægi bernskunnar
Míkadó er bók sem skilur eftir sig djúp spor. Hún er á yfirborðinu saga af nokkrum atburðum í lífi ellefu ára stúlku en undir niðri er hún nákvæm rannsókn á fjölskyldutengslum, valdaójafnvægi, einmanaleika og þeirri sérstöku stöðu barna sem verða vitni að vandamálum fullorðinna án þess að skilja þau til fulls.
Líkt og leikurinn sem bókin dregur nafn sitt af snýst sagan um viðkvæmt jafnvægi. Persónurnar hreyfa sig varlega um líf sitt, reyna að hrófla ekki við því sem gæti valdið uppnámi, en á sama tíma verður sífellt erfiðara að halda öllum prjónunum kyrrum. Gerður Kristný vinnur af miklu öryggi með þetta efni og sýnir hversu vel henni tekst að sameina knappt form, sterka persónusköpun og margræða frásögn. Með Míkadó hefur Gerður Kristný enn á ný sent frá sér skáldsögu sem virðist látlaus við fyrstu sýn en geymir mikla dýpt. Hún staðfestir hér styrkleika sína sem höfundur sem kann að skrifa um erfið og flókin viðfangsefni án þess að leyfa því að taka yfir allt og treystir lesandanum um leið til að finna það sem leynist undir yfirborðinu. Það er einmitt sú tiltrú til lesandans sem gerir bókina jafn áhrifamikla og raun ber vitni. Nostalgían sem býr í bókinni er ekki eingöngu bundin við tímabilið sem er til umfjöllunar heldur leyfir frekar lesandanum að tengja það við sammannlegar minningar um það að vera barn í heimi hinna fullorðnu.
Útkoman er áhrifarík skáldsaga sem smellpassar inn í höfundarverk Gerðar Kristnýjar og staðfestir enn á ný styrk hennar sem einn af okkar helstu höfundum í dag, á sviði skáldsagna ekki síður en ljóða.