Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum á stóra sviði Borgarleikhússins í gær. Leikstjóri er Valur Freyr Einarsson. Textinn er byggður á vinsælli barnabók Dr. Seuss en Timothy Mason samdi handrit og söngtexta, Salka Guðmundsdóttir þýðir; Mel Marvin samdi tónlistina og tónlistarstjóri er Vignir Þór Stefánsson. Flókna og ævintýralega leikmyndina hannaði Axel Hallkell Jóhannesson; María Th. Ólafsdóttir skapaði ótölulegan fjölda litríkra og skemmtilegra búninga; Kirsty McDonald samdi dansana; Pálmi Jónsson hannaði lýsingu og fjölbreyttu myndböndin sem tóku drjúgan þátt í sýningunni; Tinna Ingimarsdóttir og Guðbjörg Ívarsdóttir hönnuðu leikgervi. Aðstoðarleikstjóri var Sara Martí Guðmundsdóttir.

Kannski var ég eina manneskjan á frumsýningu Þegar Trölli stal jólunum sem var að upplifa söguna í fyrsta sinn. Ég hef alltaf haldið að þetta verk sé uppsuða úr Skrögg gamla hans Dickens og hef aldrei lagt mig eftir því. Nú veit ég betur. Og það vissi sex ára félagi minn líka og öll barnamergðin í kringum mig á sýningunni. Þetta er sagan um Trölla (Björgvin Franz Gíslason), sem er loðinn, grænn og fúll, býr með hundi sínum Max (Pétur Ernir Svavarsson) í fjöllunum yfir Hvervík og hatar jólin! Ástæðan fyrir þessu hatri er sú, að áliti Hvervíkinga, að hann fæddist með tveimur númerum of lítið hjarta. Í fýlukasti ákveður hann að ræna jólunum frá fólkinu í litla bænum, öllu jólaskrautinu, gjöfunum og jólamatnum – eins og jólakötturinn á sterum – svo að enginn líti glaðan jóladag. En fólkið lætur sér fátt um finnast þótt allt dótið sé horfið og dansar og syngur um jólin eins og ekkert hafi ískorist. Trölli verður auðvitað fyrir áfalli en þá er hann raunar orðinn ástfanginn af henni Hverdísi litlu (Iðunn Eldey Stefánsdóttir) og hjartað hefur náð eðlilegri stærð.

Þetta er falleg lítil saga og ljómandi skemmtileg sýning, skrautleg, fjörug og hávaðasöm með mörgum sniðugum lögum. Textinn er meira og minna rímaður og fór vel í munni en því miður eru söngtextarnir ekki í leikskránni. Sögumaður okkar er hundurinn Max sem nú er við aldur (Hilmir Jensson). Hann rifjar upp þessi merkilegu jól fyrir löngu þegar allt þetta gerðist sem sagan segir frá og horfir á það með okkur. Sviðið er ýmist í helli Trölla eða niðri í Hvervík og þá einkum á heimili Hverdísar þar sem hún býr ásamt pabba og mömmu Hver (Haraldur Ari Stefánsson, Esther Talía Casey) og afa og ömmu Hver (Halldór Gylfason, Sigrún Edda Björnsdóttir), Frænku Hver (Þórunn Arna Kristjánsdóttir) og bróður sínum Randhver (Kári Páll Thorlacius). Kringum þau er hópur glaðra vina á öllum aldri og þau njóta lífsins.

Allt er undir því komið að finna réttan leikara í titilhlutverkið og það var fyrirfram þjóðarsátt um Björgvin Franz. Enda bregst hann ekki væntingum. Hann dansar og syngur af krafti og lipurð, er ótrúlega fyndinn í fasi og hreyfingum en líka andstyggilega leiðinlegur og meinfýsinn, vondur við hundinn sinn sem þó sýnir honum endalausa tryggð og ógeðslega lævís þegar hann brýst inn á heimilin í Hvervík og stelur öllum fallega skreyttu jólagjöfunum. En hann stenst ekki einlægan trúnað Hverdísar, sem sér ekki einu sinni hvað hann er grænn og ljótur þótt hún sitji við hliðina á honum! Bæði gamli Max og ungi Max eru dásamlegir félagar Trölla, þola hann endalaust (eins og hundar gera) en verða óskaplega fegnir þegar hann þroskast.

Allir aðrir þátttakendur sýna sínar bestu hliðar, dansa og syngja leikandi létt. Fjöldasenurnar eru margar og heillandi með flottu dönsurunum og barnaskaranum. Það er gott til þess að hugsa að Trölli steli jólunum aftur að ári svo að ennþá fleiri börn fái að upplifa þetta indæla ævintýri.

Silja Aðalsteinsdóttir