Í tilefni Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum birtum við hér viðtal sem Kristín Ómarsdóttir tók við Anne Carson árið 2018 fyrir Tímarit Máls og menningar. 

Anne Carson. Teikning: Kristín Ómarsdóttir

Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á kaffibar í Kaupmannahöfn á sænskt skáld lesa upp úr þýðingu bókar sem heitir Red Doc> (2013); ég skildi næstum allt þó ég skilji ekki sænsku. Í október sem leið fór ég í sund. Þegar ég sneri mér við hjá bakkanum í þriðja sinn stakk manneskja sér ofan í brautina og sagði hæ. Út synti ég og hugsaði: var þetta íslenskt hæ eða útlenskt? Næst þegar við mættumst við bakkann spurði ég: ertu skáld? Sundkonan kinkaði kolli. Má Tímaritið taka við þig viðtal? Viku síðar sátum við við eldhúsborð í kjallara Gröndalshúss á nýrri lóð þess í Grjótaþorpinu.

Skömmu eftir að viðtalið hófst kom maður hennar Robert Currie úr símanum og settist hjá okkur, úr varð án skipulags að við Currie tókum viðtalið saman; spurningar hans og athugasemdir eru merktar honum.

Ætti maður að skrifa ástarbréf til guðs, hugsaði ég og las samnefnda ritgerð Anne Carson um þær Saffó, Marguerite Porete og Simone Weil í bókinni Decreation (2005), sem samanstendur af ljóðum, ritgerðum og óperu. Þannig bindur Anne oft bækur sínar. The Beauty of the Husband (2001) er skálduð ritgerð í tuttugu og níu tangóum og fleyguð brotum úr ljóðum og skrifum eftir John Keats sem hún tileinkar verkið. Autobiography of Red (1998) er skáldsaga í bundnu máli en fyrstnefnda bókin [Red Doc>] er framhald hennar, sögu Rauðs og félaga. Í þessum tveimur verkum vinnur hún með forngríska goðsögu og færir til nútímans.

Anne nam klassísk fræði og þýðir úr forngrísku og kennir. Þessi bakgrunnur litar og styrkir frábært ímyndunarafl hennar og grundvallar kannski frelsi og öryggi verkanna. Að lesa bækur eftir Anne er einsog að taka örvandi ímyndunaraflslyf um leið og ég sit undir tré og sýp te úr viskubrunni.

Nú í sumar kom út hjá Tunglforlaginu frumsamin bók og tvítyngd eftir Anne og myndskreytt af Currie, Vör: Naumt skömmtuð sonnettusyrpa, í þýðingu Ingibjargar Sigurjónsdóttur. hjónin komu til landsins um Jónsmessuna af því tilefni, lásu upp og fluttu gjörninga í Hnitbjörgum, Listasafni Einars Jónssonar, og Mengi við góðan orðstír.

***

Takk fyrir að koma í viðtal fyrir Tímarit Máls og menningar, kæra Anne Carson. Viltu segja mér hvar þú ert fædd og hvenær, hvað foreldrar þínir heita, áttu systkini, hvað heita þau – ef þú kærir þig um að svara því – hvar í röðinni ertu fædd og hvar ólstu upp?
Sjáum nú til. Ég fæddist 21. júní 1950 um sumarsólstöður í Torontoborg.
Foreldrar mínir hétu Margaret og Robert. Ég átti einn eldri bróður Michael.
Við ólumst upp í smábæjum í Kanada og fluttum oft.

Hvaðan komu foreldrar þínir?
Þau komu frá Toronto.

Og hvaðan komu foreldrar þeirra?
Líka frá Toronto.

Við hvað starfaði pabbi þinn?
Bankastjóri.

Við hvað starfaði mamma þín?
Hún gerði lífið mögulegt fyrir okkur hin.

Geturðu sagt mér frá umhverfinu – landslaginu – á stöðunum þar sem þú ólst upp?
Mjög litlir bæir og þorp með lágreistum húsum, venjulega í norðurhluta Ontario – þar snjóar mikið – hvítt landslag með furutrjám og björnum. Á sumrin dvöldum við hjá vatni. Í flestum minningunum frá því ég er barn syndi ég í þessu vatni.

Umkringd trjám?
Já. Currie hefur komið að vatninu. Það er umkringt skógi, kofum og litlum húsum sem fólkið byggði sér.

Hvenær manstu eftir þér fyrst?
Fyrsta minning mín er draumur sem mig dreymdi þegar ég var um það bil þriggja ára. Mig dreymdi að ég fór niður – í húsinu þar sem við bjuggum – og inní stofu og stofan var alveg einsog hún var nema hún var líka breytt. Hún var einsog herbergi sem hafði misst vitið. Ég gat ekki nefnt eða bent á breytingarnar en hvert smáatriði hafði breyst þannig að það var ekki lengur venjulegt. Og þannig var sá draumur.

Þú skrifar um drauminn í lofgjörð þinni til svefns í ritgerðinni Every Exit is an Entrance sem kom út í Decreation. Ég er mjög hrifin af þeirri bók.
Já, ég líka, já, þar skrifaði ég um drauminn og líkti stofunni við breyttan hug persónu sem maður hefur þekkt vel og lengi en hugur hennar er ekki lengur það sem kalla má heill. Persónan heldur áfram að vera sú sama en hún er samt algerlega einhver önnur.

Dreymir þig mikið?
Nei, varla nokkuð svo heitið geti.

Varstu snemma læs? Manstu hver kenndi þér að lesa? Lastu mikið og hver var uppáhaldsbókin þín þegar þú varst lítil?
Pabbi kenndi mér að lesa áður en ég byrjaði í skóla. Við vorum með litla bláa lestrarbók sem fjallaði um líf hvolpa og ég man vel hvernig hann benti á orðin á meðan við lásum okkur gegnum bókina. Ég elskaði strax að lesa. Ég veit ekki um neitt sem mér finnst jafn skemmtilegt að gera fyrir utan að synda.

Og uppáhaldsbækurnar?
Við lásum Önnu í Grænuhlíð [e. Lucy Maud Montgomery], þekkta kanadíska barnabók; það er skemmtileg bók með breiðu tilfinningarófi. Heiðubækurnar [eftir Joanna Spyri] voru líka í uppáhaldi. Svo var t.d. bandarísk barnabókasería sem fjallaði um Nancy Drew – Nancy-bækurnar [e. draugahöfunda]. Ég minnist þess ekki að hafa lesið göfugar og fágaðar bækur
þegar ég var lítil. Þetta var allt rusl.

Manstu eftir bókavörðunum og bókasöfnunum sem þú sóttir þegar þú varst lítil?
Nei, ekki safnvörðunum en ég man að við pabbi fórum á bæjarbókasafnið á hverjum laugardegi. Safninu var skipt í fullorðinsdeild og barnadeild og börnin skyldu ekki fara fullorðinsmegin. Aldurstakmarkið var tíu ár. Börn eldri en tíu ára máttu taka bækur í fullorðinsdeildinni og ég hafði lokið við að lesa allar bækur barnadeildarinnar áður en ég varð tíu ára og ákvað að þegar ég yrði stór yrði ég að skrifa margar margar margar margar margar margar bækur fyrir krakka til að brúa skarðið fyrir þau sem hafa klárað barnadeildina og mega ekki fara inn í næstu.

Currie: Hvað máttirðu taka margar bækur?
Ég man það ekki – hvers vegna?

Currie: Þegar ég var krakki var hámarkið fimm.
Venjulega tókum við stafla af bókum heim af safninu.

Manstu eftir fyrstu bíómyndinni sem þú sást? Fórstu oft í bíó?
Nei, ég hafði aldrei mikinn áhuga á bíó. Við sáum Disneymyndir. Við bjuggum í smábæjum þar sem stóð eitt bíó sem sýndi stórmyndirnar og hverja þeirra í langan tíma í einu. Ætli ég hafi ekki fyrst séð Bamba eða Mjallhvíti.
Ég fór lítið í bíó.

Þú hefðir ekki kosið bíó frekar en bók?
Engan veginn!

***

Hvert er uppáhaldsorðið þitt?
Currie: Currie.
Ég býst við það breytist frá degi til dags. Ég á ekkert uppáhaldsorð lífs míns.

Hvert er uppáhaldsorðið í dag?
Já, clear-green með bandstriki. Það er vegna þess að um helgina komum við á bæ nálægt Vík í Mýrdal. Vatnið sem tilheyrir jörðinni var fullkomlega stillt, þögult og grænt en það var ekki bara grænt, það var: clear-green. Orðið er ef til vill til á íslensku?
Anne bendir á grænan lit á bókarkápu.

Gæti verið eiturgrænn sem er samt örlítið dekkri. Líklega heitir liturinn á íslensku heiðgrænn. Og hvaða orð er ekki í uppáhaldi í dag?
Þessi spurning þykir mér erfið. Ekki vegna þess ég geti ekki fundið orð heldur afþví mér þykir sem við skellum skuldinni fyrir eitthvað sem við sjálf gerðum á tungumálið.

Já, það er satt. Hvað kætir þig og gleður?
Sund, morgnarnir – ég er alltaf frekar glöð snemma á morgnana. Hitta vini mína.

Currie: Hún segir það afþví ég er hérna.
Nei, það held ég ekki.

Currie: Og kvartar undan því síðar.
Reglusemi gleður mig og mér þykir gaman að taka til.

Hvað gerir þig dapra?
Mmm, að vera ekki á leiðinni í sund. Sunnudagar: allur dagurinn. Hvað gerir mig dapra?

Currie: Melankólískar hugsanir kunna að renna í gegnum huga þinn en þú verður aldrei sérstaklega döpur.
Nei, ég held ekki heldur.

Er eitthvað sem reitir þig sérstaklega til reiði?
Látum okkur sjá. Nei, ég verð ekkert sérstaklega reið heldur. Ætli ég sé tilfinningalaus? Jú, óréttlætið sem maður les um í dagblöðunum gerir mig reiða.

Af hvernig hljóðum hrífstu?
Hljóðum í vatni … Mm, af hvernig hljóðum hrífst ég?

Currie: Ég hrífst af hljóðum – yfirleitt – öllum hljóðum. Á næturnar opna ég gluggana til að heyra í fólkinu ganga framhjá húsinu hérna.
Ég kysi fremur að hlusta á vatn.

Hvaða hljóð þolir þú ekki?
Hljóð úr vélum, verkfærum, loftkælingu, rafölum, hamrandi hljóð, óregluleg, krefjandi og hávaðasöm.

Við hvaða annað starf kysirðu að vinna?
Mér finnst gaman að kenna forngrísku en það er nú þegar atvinna mín. Mér finnst gaman að teikna. Mér gæti hafa þótt gaman af að læra fagteikningu, nákvæma teikningu líkamans og grasafræðilega teikningu.

Og alls ekki vilja starfa við?
Kokkur.

Currie: Leigubílstjóri.
Já, ég myndi ekki vilja keyra leigubíl afþví ég villist alltaf.

Currie: Og þú kannt ekki að keyra.
Það er smáatriði.

Hver er uppáhaldsliturinn þinn og -blóm?
Rauður. Ég er ekki mikið fyrir blóm. Mér þykir vænt um kattarrófur – dúnhamar – þau heita líka bulrushes og vaxa við vatnsbakka, hafa langa og beina stilka og loðnar krúnur sem minna á kattarrófu. Svo svigna þau saman í vindinum – ú – ffff – ú f f f f –

Mm – uppáhaldsfugl?
Currie á app sem við notum oft til að hlusta á fugla en ég verð að segja kráka afþví ég skrifaði eitt sinn um krákur. Þær eru skepnur sem var ómaksins vert að fræðast um.

***

Hvernig barn varstu? Óþekk, stillt?
Já, rólegt, þrjóskt barn myndi ég segja – ekki óstýrilátt – snyrtilegt og skipulagt.

Hvernig unglingur?
Skipulagður og skyldurækinn þar til ég varð sextán ára. Eftir það síðhærður og uppreisnargjarn unglingur.

Hvort fannst þér skemmtilegra að vera barn eða unglingur?
Látum okkur sjá. Ég naut mín örugglega betur sem unglingur afþví skólinn var áhugaverðari og erfiðari – ég nýt þess að takast á við erfið verkefni – og ég elskaði að læra heima, maður þurfti ekki að læra mikið heima í barnaskólanum. Mér fannst gaman að læra heima og vanda mig.

Byrjaðir þú snemma að skrifa?
Nei, eiginlega ekki, ég var meira að teikna og skrifa á teikningarnar, skrifin voru í félagi með teikningunum og ekki mikilvæg í sjálfu sér eða þannig man ég það. Ég hafði ekki sérstakan áhuga á því að skrifa.

Varstu trúuð? Ertu trúuð? Fékkstu trúarlegt uppeldi?
Við fórum til kirkju en ekki af ástríðu eða samkvæmt reglu.

Hafðir þú þína eigin trú?
Nei varla, ég trúði á myndheim hins kaþólska helgihalds og himnaríkis en ekki á ígrundaðan hátt.

Ertu félagsvera, einfari?
Anne hlær.

Currie: Þessi er erfið …
Ég veit það ekki … ég er ekki mjög félagslynd og mér þykir gott að vera ein. Eitthvað þarna á milli.

Varstu pabbastelpa? Mömmustelpa? Hvorugt?
Á einhverjum tímapunkti hefði ég líklega sagt að ég hefði verið nánari föður mínum. Mér gramdist við mömmu. Ég myndi segja að í lífi mínu hafi ég tekið föður minn mér til fyrirmyndar.

Hafa foreldrar þínir haft áhrif á bækurnar þínar og verk?
Já, ég hugsa það og ég hef skrifað um þau, mér fannst ég þurfa að útskýra uppruna minn. Ég reikna ekki með að þeim hafi líkað bækurnar mínar og ég veit ekki hvort pabbi las þær. Móðir mín las venjulegast fyrstu tuttugu síðurnar, bretti uppá hornið á blaðsíðunni og lagði bókina upp í hillu.

Currie: Hún hreifst af skrifum þínum um pabba þinn.
Já, hún var ánægð með ljóð sem ég orti um pabba afþví það fjallaði um pabba og var eftir mig. Já, ég held þau hafi haft áhrif á verkin mín. Oft koma höfundar sér hjá því að skrifa um foreldra sína þar til þeir eru ekki lengur hér og geta ekki lesið það sem þeir skrifa.

Currie: Fjögur fet níu … Ég er svo oft að hugsa um sögu sem Anne skrifaði nýlega [Trouble in Paradise, birt í tímaritinu New Yorker 2016] en persónu hennar byggði Anne lauslega á móður minni. Síðan get ég ekki gleymt því að mamma er fjögur fet níu að hæð.
Móðir hans er hundrað og eins árs gömul og keyrir enn á eigin BMW um bæinn – hún býr í Midland, Michigan – þó hún sé fjögur fet og níu þumlungar að hæð og sjái varla upp yfir stýrið. Djörf kona.

Currie: Já og það kemur reglulega upp í hugann að mamma mín er fjögur fet níu á hæð eftir að þú skrifaðir söguna …
Já, hún er fjögur fet og níu þumlungar á hæð. Það er ekkert að því. Þú verður að fara varlega …

1.447,8 sentímetrar. Ég spyr þig ekki um áhrifavalda en áttu bók, bækur sem þú grípur alltaf í, sem þú tækir með á eyðieyju?
Ilíónskviða Hómers.

***

Ertu gift? Hvað heitir maki þinn?
Já, hann heitir Robert Currie og fólk kallar hann Currie.

Hvenær hittust þið fyrst?
1999.
Currie kinkar kolli til samþykkis ártalinu.

Og þið hafið verið saman síðan? Í átján ár?
Já, það er langur tími.

Til hamingju, kæru hjón.
Vel af sér vikið.

Currie: Bestu átján ár lífs míns –
Þetta er kaldhæðni. Við hittumst fyrst fyrir slysni í bæ sem hvorugt okkar bjó í og nú búum við þar og það er annað slys. Ég kom þangað til að lesa upp í bókabúð og hann átti leið hjá. Búðarstrákurinn sem átti að selja bækurnar veiktist og því var hann beðinn um að selja bækurnar á upplestrinum og þannig hittumst við.

Hvað heitir bærinn?
Ann Arbour, Michigan.

Áttu börn?
Nei.

Hvort þykir þér skemmtilegra/betra að elska eða vera elskuð eða hvort tveggja?
Ó, ég er frekar passíf, frekar viðbragðslaus.

Hefur ástin mótað persónu þína og líf og verk og hvernig?
Þessi spurning gæti verið of stór spurning. Eða réttara sagt: allar spurningar í einni.

***

Viltu segja mér frá skólagöngunni?
Ég nam klassísk fræði, forngrísku og latínu frá menntaskóla og uppúr og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Toronto. Eftir að ég lauk námi kenndi ég og geri enn.

Hvaða önnur nútímatungumál en ensku lestu?
Stundum frönsku, ég les Proust á frönsku og ég les þýsku með átaki.

Hvernig áhrif hafa aðrar listgreinar á ritstörf þín? Myndlist, tónlist, leikhús, dans …
Þær hafa ekki mikil áhrif nema þegar við Currie vinnum saman. Við búum til gjörninga saman. Hann fær auðveldlega margar myndrænar, dans – og rýmislegar hugmyndir sem ég hlusta á og saman búum við til sýningu. Frá honum verð ég fyrir djúpum og ígrunduðum áhrifum. Það er ekkert tilviljunarkennt við samstarf okkar.

Hvernig varðstu skáld? Hvenær vildirðu verða skáld?
Ég veit það ekki. Það gerðist einsog hvert annað slys og vegna teikninganna minna. Ég var alltaf að teikna og lauk handriti með teikningum sem með fylgdu textar. Mig langaði til að gefa handritið út í bók en engum líkuðu teikningarnar. Mér líkuðu þær, engum öðrum. En útgefendunum líkuðu skrifin svo ég tók út teikningarnar, bætti við skrifin og breytti þeim í fyrirlestra, hvern með ákveðið umfjöllunarefni: til dæmis Mónu Lísu, Gertrude Stein, silungsveiðar, flugtak. Bókin Short Talks (1992) kom út og það var gaman að gefa út bók svo að ég hélt bara áfram að skrifa.

Þú varst ekki: hei, ég ætla að verða skáld?
Nei, hugmyndin um ritstörf knúði mig ekki áfram.

Currie: Að þýða úr grísku knýr þig áfram.
Nei, það var líka fyrir slysni að ég byrjaði að þýða úr grísku.

Er kennslan köllun þín?
Já, ég held það.

Í bókum þínum sækirðu í brunn forngrískra bókmennta. Sækirðu líka í áhrif bókmennta frá öðrum tímum og stöðum?
Alls staðar að, alltaf. Hvers konar tvítyngdar útgáfur er uppáhaldslesefni mitt. Ég elska bilið á milli tveggja tungumála – stökkið þar á milli. Líklega leita ég meira í evrópska hefð afþví hún kallar fram hina klassísku hefð, þar sem suðuramerískar, kínverskar og japanskar bókmenntir hafa sínar eigin hefðir.

Eru það forréttindi að skrifa á ensku? Geturðu lýst fyrir mér ást þinni til tungumálsins?
Ég veit ekki hvort ég elska ensku. Henni var bara dömpað á mig. Ef til vill eru það fjárhagsleg forréttindi að skrifa á ensku en öðruvísi eru forréttindin ekki.

Gæti enskan vegna stöðu sinnar í heiminum og eðlis tungumálsins ef til vill haft ríkari og fleiri möguleika fyrir skáldskapartjáningu en önnur tungumál?
Nei og hún hefur líklega færri möguleika. Enska er ekki jafngott verkfæri fyrir skáldskap og forngrískan. Það eru atriði í Proust sem ekki er hægt að orða jafn vel á ensku.

Ég ímynda mér að yrki skáld á ensku yrki það úr hásæti. Enskt tungutak hljómar um heim allan, vísur, frasar, dægurlagatextar og tungumálið orðar hugsanir og tilfinningar persóna í samtíma kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem sýnd eru hnattrænt.
Ég hef ekki hugsað þannig um það en mér finnst ég alls ekki vera í yfirburðastöðu þó sitji ég í hásæti.

***

Hvað metur þú mest í fari annarra?
Kímnigáfu. Nákvæmni – (við Currie:) Hvað er svona fyndið við það? Skýrleika og heiðarleika.

Hvað metur þú minnst í fari annarra?
Bíddu nú við, best að hugsa um einhvern sem mér fellur ekki við – jæja – hávaða, ónákvæmni, hírarkísk viðhorf, fyrirlitningu, vald.

Currie: Hvað áttu við með ónákvæmni? Eðli síns vegna sækist skáldskapur ekki eftir nákvæmni.
Nákvæmni þarf ekki að vera sönn. Þegar maður hugsar á egginni leikur maður á egginni, einsog Sófóklos segir einhvers staðar, kannski í Fíloktetesi: ἂκρον φρόνειν ἂκρον δρᾶν –

Mhm. Hvað metur þú mest í eigin fari? Hverjar eru dyggðir þínar?
Úff, sjáum til. Já, ég lýk hlutum á réttum tíma – það er dyggð mín – það er mín eina dyggð.

Hvað metur þú minnst í eigin fari? Hverjir eru lestir þínir?
Mmm –

Currie: Þú hefur enga.
Jú, jú. Net annmarkanna flýtur á botninum. Já, ég gæti sagt: níska! Ég held ég sé nísk.

Currie: Einsog ef þér verður orðavant þá steinþagnarðu?
Já, ég held ég sé nísk á vettvangi orðanna og tilfinningalega og efnislega.
Þau hlæja.

Stundarðu líkamsrækt?
Já, á hverjum degi fer ég annað hvort í sund eða spinning.

Finnst þér gaman að syngja – syngurðu?
Nei, ég er hræðilegur söngvari.

Currie: En þér finnst gaman að syngja.
Ég flauta. Ekki mjög vel.

En syngurðu í hljóði innra með þér?
Já, á meðan ég syndi syng ég af einhverjum ástæðum alltaf Tea for Two. Lagið hefur sama takt og sundtökin.
Anne syngur: Tea for two …

Leikurðu á hljóðfæri?
Nei, það geri ég ekki.

Og þú teiknar, málar.
Já, stundum, í rispum, ekki stöðugt.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Currie getur sagt það – mér finnst ég aldrei skemmtileg. Jú: að klippa á mér fingurneglurnar með vinstri hendi á meðan fingurnir skipa sér í fylkingu.

Mm. Hver er hugmynd þín um (fullkomna) hamingju?
Ég veit það ekki, ég geri ráð fyrir að ég sé ekki gefin fyrir fullkomna hamingju.

Currie: Ég held að þegar þú þýðir úr grísku komist þú mjög nærri hamingjunni.
Já, ég er hamingjusöm þegar ég þýði en ég held að spurningin fjalli meira um fullkomna hamingju og hún væri endirinn. Að hverju skyldi maður þá leita og keppa að? Nei, ég hef ekki áhuga á þannig hamingju.

Áttu þér listrænt manifestó?
Nei – að byrja í miðjunni! Biðji nemendur mínir um ráð segi ég þeim að byrja í miðjunni.

Hlustar þú á tónlist á meðan þú skrifar?
Nei aldrei.

Hver er uppáhaldstónlistin þín?
Hún breytist í sífellu, dag frá degi.

Currie: Þú ert alltaf jafn hrifin af tónlist Kjartans Sveinssonar, tónlist hans er alltaf í uppáhaldi hjá þér.
Já, það er satt! Það er eitt af mörgu varanlegu sem mér líkar.

***

Viltu segja mér frá vinnubrögðunum, aðferðunum, sköpunarferlinu? Skrifarðu með penna, á ritvél, tölvu?
Ég skrifa í glósubækur með penna – hún bendir á penna – mér þykir gott að fá úthlutað verkefnum. Verði ég beðin um að skrifa um banana þá rannsaka ég banana og skrifa um þá. Ég veit ekki hvað ég er að hugsa fyrr en ég kem því niður á blað. Þannig eru skriftirnar aðferð mín við að hugsa. Með heimildaröflun opna ég dyr svo fer sköpunin fram og skoðanirnar myndast og hugmyndirnar birtast um leið og ég skrifa. Þá verður allt ljóst. Meikar þetta sens?

Já.
Á meðan ég skrifa leita ég skilnings.

Currie: Þegar þú skrifar í allar þessar glósubækur – segjum að þú sért að skrifa fyrir ákveðið verkefni – myndirðu þá koma aftur að glósubókunum seinna og fyrir annað verkefni?
Já, algjörlega.

Currie: Þannig að þar verður til efniviður fyrir hvað sem er þó hann sé í fyrstunni ætlaður tilteknu ákveðnu verki?
Jabb.

Síðan færirðu skrifin úr bókunum í tölvu.
Já og umskiptin breyta textanum annaðhvort til hins betra eða til hins verra. Í tölvunni býrðu að myndrænum verkfærum til uppsetningar og þessi verkfæri breyta textanum. Venjulega í betra horf – og þó – ég er ekki viss: þau ýta undir að fleiri bækur koma út í heiminum og margar þeirra eru vondar.

Viltu segja mér frá bókunum þínum, nokkur orð, í hvernig skapi þú varst þegar þú skrifaðir þær, hvað triggeraði þær í upphafi – eitthvað, bara fáar línur um hvert verk?
Ég virðist ekki geta fengið huga minn til að hugsa þannig um fyrri verk, útgefnar bækur tilheyra liðinni tíð og það er einsog einhver annar hafi skrifað þær. Autobiography of Red (1998) virkar t.d. á mig einsog bernskuverk þó ég væri á fimmtugsaldri þegar ég skrifaði bókina sem er úrvinnsla á brotum úr ljóðum eftir forngrískt skáld. Mér fannst gaman að skrifa bókina. Satt að segja held ég að þetta sé eina bókin sem fólk lesi eftir mig. Á upplestrum kemur það venjulegast með eintak af henni til að biðja um áritun.

Currie: Er það?
Já, einkum ungt fólk og NOX, bókina sem við gerðum saman.

Einsog ég nefndi þá er ég mjög hrifin af bókinni Decreation (2005).
Ég líka.

Currie: Áttu bókina í harðspjaldi eða kilju?
Kilju.

Currie: Bakið á harðspjaldaútgáfunni er úr gulli.
Eitt hefur mér tekist sem ég er ákaflega stolt af í lífi mínu: það var þegar ég fékk útgefandann Knopf til að sleppa öllum káputexta [„blurb“] og það var einmitt aftan á þessari bók. Og aftan á þýðingu minni á Antígónu (2012) eftir Sófokles fékk ég að setja tilvitnun í Hegel, einsog hann hefði skrifað bókina. Það virkar mjög viðhafnarmikið.

Currie: Það var afþví New Direction gáfu bókina út.
Já, þeir eru skilningsríkir útgefendur, þeir eru óvenjulegir og græða ekki mikið. Knopf er stórt og krípí.

Ertu lengi að vinna að bók?
Já. Að Red Doc> vann ég í níu, tíu ár meðfram öðrum bókum; ég vinn að mörgum bókum í einu og kenni líka forngrísku hluta ársins. Svo kennum við Currie árlega námskeið sem fjallar um samvinnu í listrænni sköpun.

Ertu að skrifa bók, bækur?
Verkefnin nú miðast mörg við performans. Við erum til dæmis að skrifa óperu í samstarfi við Kjartan Sveinsson tónskáld. Svo mun Tunglforlagið gefa út nýja bók eftir mig næsta sumar.

***

Ertu hugrökk?
Nei en ég á sundföt hugrekkisins sem ég ætla að synda í í dag afþví það rignir og er kalt. Þau eru skærrauð á litinn. Annars: ekkert hugrekki.

Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Mér leiðist auðveldlega og maður myndi ætla að það gerði mann nýjungagjarnan. En ég er ekki ævintýragjörn. Mér þykir vænt um venjur mínar.

Ertu kvöldsvæf?
Ójá, ég fer snemma á fætur – hann vakir fram eftir – og yfirleitt fer ég snemma í háttinn.

Hvar annars staðar vildirðu búa? Sveit, land, borg?
Ég vil eiga heima í húsinu mínu í Ann Arbour en mér er sama hvar húsið er staðsett. Það væri fínt ef það stæði hér. Þetta er góður staður enn sem komið er og vonandi breytist það ekki.

Hver er uppáhaldsmálsverðurinn þinn?
Ó! Látum okkur sjá! Gúmmíbirnir – hlaup!

Currie: Og allt sem fer ofan í einn pott.
Heima setjum við allt sem til er í ísskápnum ofan í einn pott. Við erum ekki sælkerar – gúrmenfönixar.

Áttu þér uppáhaldssögupersónu?
Hver er þín?

Kannski Don Kíkóti, að minnsta kosti einu sinni.
Amma Marcels í Proust. Amma hans er æðisleg.

Uppáhaldsrithöfundar?
Hómer, Proust, Daniel Kehlmann, Fleur Jaeggy, Homi Bhabha, Giorgio Agamben, Susan Howe, Frantz Fanon. Hölderlin.

Áttu þér fyrirmynd?
Það held ég ekki.

Hvað óttast þú mest?
Yfirborð þakið pínulitlum holum.

Einsog þú skrifar um í The Beauty of the Husband? (s. 93)
Já.

Hvað er undarlegast við sjálfa þig?
Ég er höfðinglega venjuleg.

Hvenær og hvar varstu glöðust hingað til?
Á hinum og þessum stöðum þar sem ég hef synt. Ég er venjulega mjög glöð þegar ég er að vinna að einhverju verki í kjallaranum heima. Já og við erum glöð þegar við förum út að keyra eitthvert þangað sem við vitum ekki hvert. Einkum á kvöldin og næturnar, með ljósin á, allt svoldið spúkí. Það er þerapían okkar að fara út að keyra á næturnar og við gerum það reglulega, hvar sem við erum stödd í heiminum, einsog núna hér á Íslandi: fáum lánaðan bíl og förum út að keyra. Það er kannski skrítin iðja með tilliti til þess að hér kostar áttatíu dollara að fylla tankinn. Aðeins minna en tíminn hjá sálfræðingi.

Hvaða dyggð er ofmetin?
Forystuhæfileikar.

En vanmetin?
Skýrleiki.

Hvað er það dýrmætasta sem þú átt?
Sundblöðkurnar mínar eru dýrmætasta eign mín – sú efnislega – hin óefnislega er rökkrið, húmið.

Hver er mesta ást lífs þíns?
Ó – hlær …

Ó, ég þarf ekki að spyrja. Hvað líturðu á sem hina mestu eymd?
Leiða.

Uppáhaldspersóna þín í hinu raunverulegasta (snertanlega) lífi?
Hlær: Hann –

Og hvaða persóna er hin aðdáunarverðasta?
Ragnar Kjartansson – hann er útskýringin á aðdáunarverðri persónu.

Ef þú værir ekki þú hver vildirðu vera?
Oscar Wilde – hann er regnhlífin fyrir svo margt.

Hvers iðrast þú mest?
Mörg verkefni hef ég ekki unnið nógu vandlega.

***

Viltu segja mér frá núverandi heimaslóðum ykkar?
Við búum part úr ári í New York borg og part úr ári í húsinu okkar í Michigan. Svo ferðumst við um og dveljum – einsog til dæmis hér í Reykjavík – part úr ári. Við erum á flakki.

Samband þitt við Ísland?
Vinir og listræn verkefni með vinum.

Hefur ákveðið tímabil á ævi þinni haft meiri áhrif á þig sem persónu en önnur tímabil?
Ég býst við því að tíminn sem við Currie höfum verið saman hafi haft mestu áhrifin á mig af öllum tímabilum ævi minnar.

Currie: Tuttugusta og fyrsta öldin!
Já, tuttugusta og fyrsta öldin! Og tímabilið þegar ég lærði forngrísku var líka áhrifamikill tími – ég byrjaði að læra grísku á brún sjöunda áratugarins.

Hvernig hófst áhuginn?
Fyrir slysni: ég var fimmtán ára og stödd í bókabúð. Af óskiljanlegum ástæðum lá þar í hillu tvítyngd útgáfa ljóða Saffóar á forngrísku og ensku, bókin hreif mig og ég keypti hana en gat ekki lesið. Ári síðar fluttum við í annan bæ. Latínukennarinn í menntaskólanum frétti að mig langaði að læra grísku. Hún kunni grísku og kenndi mér í hádegishléinu. Ég á henni allt að þakka. Ég skulda henni allt.

Currie: Já, þar nefnir þú eitt enn sem gleður þig: Alice Cowan.
Já, tilhugsunin um Alice Cowan gleður mig. Hún var róleg, rauðhærð, með freknur og hún lyktaði af sellerí.

Currie: Fólk gleður þig mjög mikið.
Já, kennarar.

Currie: Prófessor Livingstone …
Já, sérstaklega kennarar, kennarar gera mig mjög glaða.

Gætir þú lýst í fáum orðum – þremur línum – hvernig fyrstu sautján ár þessarar aldar birtast þér?
Ég vitna í setningu sem ég las í dag: „Pity sleeps.“ [„Samúðin sefur.“] Frá Shakespeare. Það er ólíkt því sem áður var.

Kannski einsog draugasaga.
Já, hlutir hverfa.

Við aldamótin klæddist fólk í hvítt. Mér fannst eitthvað falskt við það en kannski er það eðlilegur byrjunarlitur. Eða drauga-. Í þessari draugasögu sem nú verður sögð sefur samúðin … í þessari hvítu draugasögu sem hér verður sögð sefur …

Currie: Já, vinkona okkar átti um aldamótin að ferðast með David Byrne [tónlistarmanni] og spurði hann hverju hún ætti að klæðast á ferðalaginu. Hann svaraði: Í öllu hvítu. Hún svaraði: Allt í lagi og klæddist hvítu. Strax að túrnum loknum fór hún á túr með Lou Reed og spurði hann sömu spurningar: Í hverju á ég að vera í ferðinni? Öllu svörtu, svaraði hann. Hún
þurfti að dressa sig upp á nýtt.

Og tilfinningu þinni fyrir síðustu öld?
Efnislegt tál og efnisleg glaðværð – þannig hljómar ágrip mitt af henni.

***

Viltu breyta heiminum?
Já.

Currie: Værir þú viljug til að hjálpa til við að breyta heiminum?
Já, ég væri fús til þess.

Ertu femínisti?
Líklega.

Ertu pólitísk?
Ég held ekki.

Currie: Það er ekki rétt þó pólitík knýi þig ekki áfram …
Nei, en ég hef takmarkaða pólitíska þekkingu – ég myndi ekki vita hvað þyrfti að segja til þess að breyta heiminum en fengi ég verkefnið myndi ég inna það af hendi en þurfa að hafa aðgang að leiðbeiningum á mjög skýru formati.

Er öðruvísi að vera rithöfundur af kvenkyni en af karlkyni? Og ef svo er: hver er munur á stöðu karl- og kvenhöfunda?
Ég held það sé ekki munur.

Skiptir stéttaruppruni manns máli til þess að verða skáld?
Ekki lengur, held ég. Menntun skiptir máli fyrir mann til að verða rithöfundur en ekki stéttaruppruninn nema uppruninn komi í veg fyrir möguleika manns til menntunar.

Hvernig verður manneskja skáld og framfleytir sér í Kanada? Njótið þið svipaðs styrkjakerfis og listafólk á Norðurlöndunum?
Nei, það er ekki lengur marga styrki að fá. Þróunin hefur orðið sú að samkeppni mótar æ meir vettvanginn. Ég held að það sé næsta ómögulegt lengur fyrir listafólk að framfleyta sér í Kanada og Bandaríkjunum.

Skiptir félagslíf rithöfundar, klíkuskapur og partý, máli fyrir lífsbaráttu rithöfundar?
Það skiptir máli að forðast slíkt.

Hver er annars staða bókmennta í dag? Ertu ánægð með bókmenntirnar í dag?
Aðeins kýr eru ánægðar.

Hvernig meturðu mikilvægi bókmennta fyrir tímana sem við lifum?
Ójá – best að skella inn stórri spurningu næst! En ekki veit ég hvernig ég á að svara henni – veist þú það?

Nei.

Bókmenntir eru mjög mikilvægar. Bókmenntirnar munu aðstoða við að bjarga heiminum – ímyndunaraflið gerir það. Viltu segja mér eitthvað um framtíð skáldskaparins?
Nei.

Ertu ljóðelsk?
Það held ég.

Þakka þér fyrir.
Þakka þér fyrir.

Currie: Það hefur verið stórkostlegt að dvelja hér í Gröndalshúsinu, takk
fyrir.

 

Úr 3. hefti 2018