Sviðslistahópurinn Miðnætti frumsýndi í morgun í samstarfi við Þjóðleikhúsið verk sitt Hreiðrið sem ætlað er börnum frá þriggja mánaða aldri til þriggja ára plús. Verkið er sýnt á Litla sviðinu undir Kassanum og er að mestu setið á gólfi þótt einnig séu stólar meðfram veggjum fyrir þá sem vilja. Agnes Wild leikstýrir, Leikmynd, búninga og brúður gerir Eva Björg Harðardóttir og Sigrún Harðardóttir semur einfalda en ánetjandi eyrnaorma við hversdagslega iðju persónanna. Jóhann Bjarni Pálmason og Aron Þór Arnarsson sjá um ljós og hljóð.

Spóinn (Jóhann Axel Ingólfsson) flýgur um fyrir ofan hreiðrið sitt og stoppar hjá því við og við til að gá hvort eitthvað heyrist innan úr egginu sem þar liggur. Hann þarf ekki að bíða lengi, brátt heyrist bank og unginn (Ylfa Marín Haraldsdóttir) rekur kollinn undan skurninni. Það verða fagnaðarfundir með barni og foreldri sem tekur umsvifalaust til við að kenna unganum ýmislegt sem hann þarf að kunna áður en hann yfirgefur hreiðrið. Um leið er verið að kenna áhorfendum ýmiskonar tækni: að nota hristur, klappa saman lófunum, syngja með rigningunni, tína orma, sulla í pollum, þvo sér og skemmta sér við að skvetta baðvatninu. Svo kynnist unginn líka skordýrum sem ýmist fljúga um loftið eða skríða um gólfið á þúsund fótum.

Eins og ævinlega hjá Miðnætti var allt fallegt við þessa sýningu. „Laufblöðin“ og púðarnir sem við sátum á, sviðið með sínu hreiðri, fuglarnir, skordýrabrúðurnar og búningar spóans og ungans, litríkir og spennandi að skoða. Jóhann Axel og Ylfa Marín voru hlý og opin og sérstaklega var látbragðsleikur Ylfu bæði yndislegur og fyndinn og höfðaði beint til ungra áhorfenda þegar hún vildi ekki fara í bað eða fara að sofa og þegar hún opnaði ginið upp á gátt eins og sá fuglsungi sem hún var þegar hana svengdi!

Við Skorri tæpra þriggja ára og Ásta móðir hans sátum á gólfinu rétt við sviðið og nutum þess að horfa og taka þátt, klappa, syngja og láta rigna. Og við vorum sammála um það öll þrjú að þetta væri ekta leiksýning fyrir sinn aldurshóp og kannski alla hina líka. Agnes Wild reynist sannkallaður happafengur fyrir Þjóðleikhúsið, þar eru nú sýndar þrjár leiksýningar undir hennar stjórn, Lína langsokkur, Blómin á þakinu og Hreiðrið – geri aðrir betur!

Silja Aðalsteinsdóttir