
Leikhópurinn Baksviðs frumsýndi í gær í Tjarnarbíó Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu eftir Vigdísi Gunnarsdóttur. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir sem líka leikur í sýningunni. Sviðsmynd og búninga hannaði Rebekka A. Ingimundardóttir en lýsinguna Fjölnir Gíslason og tónlist og leikhljóð skapaði Íris Thorarins.
Við förum í leikhús til að sjá fullbúna leiksýningu en í Heimsókninni í leikhúsið hennar Thalíu, leiklistargyðjunnar, fáum við að fylgjast með því sem gerist baksviðs meðan verið er að skapa sýninguna. Glæsileg kona í búningi sem minnir á sirkusstjóra tekur á móti gestum í forsalnum og kynnir sig sem Ráðhildi leikhússtjóra (Sigríður Ásta Olgeirsdóttir). Hún gefur áheyrendum innsýn í störf sín og kynnir síðan fyrir okkur næstráðandann, leikstjórann (Halldóra Björnsdóttir). Munurinn á leikhússtjóra og leikstjóra er kannski ekki öllum ljós en það reynist ekki svo flókið að útskýra hann. Við hittum leikmynda- og búningahönnuðinn (Tómas Geir Howser Harðarson) sem kynnir sitt hlutverk og segir okkur líka frá öllum fiffunum sem leikhúsið kann að gera með ljósum og hljóðum. Við hittum leikarann sem á í vandræðum með að læra textann sinn (Tómas Geir) og meira að segja líka fröken Fýlu (Halldóra) sem finnst allt andstyggilegt í leikhúsinu. Kannski er hún fulltrúi gagnrýnenda? Loks fylgjumst við með sminkunni (Halldóra) sýna listir sínar og þegar hún er búin er kominn tími á sjálfa töfrana.
Allur fyrri hlutinn er leikinn í forsalnum en þegar seinni hluti sýningarinnar hefst fara allir inn í salinn, gestir í sæti sín en leikararnir á svið. Þar takast þau á fröken Fýla og leikarinn en þegar fýlupokinn fær hlutverk í leikritinu sem verið er að æfa verður hún ljúf eins og lamb. Þá birtist sjálf Thalía (Sigríður Ásta) og leikritið getur hafist. Ævintýrið er tilbrigði við Þyrnirós: illur dreki hefur stolið hjarta prinsessunnar sem síðan hefur sofið í hundrað ár, öllum í ríkinu til sárrar sorgar. Góð álfkona (fröken Fýla/Halldóra) fær prinsinn (Tómas Geir) til að kyssa prinsessuna (Thalía/Sigríður Ásta) – það ráð hefur stundum dugað vel, en ekki í þetta sinn … Allt fer þó vel að lokum!
Þetta er vel hugsuð kynning á innra starfi leikhússins fyrir börn frá fimm ára aldri og áhorfendur í gær tóku henni afar vel. Þó var greinilegt að þau börn voru öll hagvön í leikhúsi og kom ekki margt stórlega á óvart sem þeim var sagt á sviðinu. Það þarf þó ekki að vera galli. Okkur finnst svo gaman að láta segja okkur það sem við vitum fyrir. Sigríður Ásta, Halldóra og Tómas Geir voru heillandi í hlutverkum sínum, búningarnir voru litríkir og fallegir og textinn var skemmtilegur.
Sex ára félagi minn var hjartanlega ánægður með sýninguna og gaf henni fjórar stjörnur.
Silja Aðalsteinsdóttir