Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviðinu Gæðablóð eftir Davíð Þór Katrínarson, Jónmund Grétarsson og Unnstein Manuel Stefánsson, sem allir leika í sýningunni, og Þóru Karítas Árnadóttur sem líka leikstýrir. Ingibjörg Jara Sigurðardóttir skapar verkinu litríka umgjörð með skemmtilega gamaldags baktjaldi og klæðir ungu mennina í jakkaföt í mjög afgerandi litum. Tónlistin er eftir Kristofer Rodríguez Svönuson sem einnig er tónlistarstjóri en Kristján Sigmundur Einarsson sér um hljóðhönnun. Ásta Jónína Arnardóttir hannar lýsingu.
Þrír svartir strákar leggja undir sig stóra svið Þjóðleikhússins – það hefði einhvern tíma þótt fréttnæmt. Ef sá tími er liðinn ber að fagna því en ef marka má reynslusögur leikaranna og höfundanna þriggja þá er enn langt í land. Þeirra líkum þarf að fjölga mikið enn – eins og sá uppgötvaði sem kom til San Francisco og naut þess að verða einn af fjöldanum. Þetta eru fallegir strákar með gullna húð og hrokkið hár, eins og þeir syngja um sjálfir, og miðað við hæfileikana á sviðinu hljótum við að óska þess að þeim fjölgi hratt.
Gæðablóð er ekki eiginlegt leikrit, miklu fremur þrefalt uppistand því þremenningarnir (sem alltaf er ruglað saman, eftir því sem þeir segja) flétta hér saman sögur sínar: sögur af uppruna sínum, barnæsku, uppvexti og margvíslegri reynslu á fullorðinsárum. Og þó að þeim sé kannski alltaf ruglað saman eru þeir í rauninni ólíkir og uppruni þeirra sömuleiðis. Unnsteinn er alinn upp af íslenskum pabba og angólskri mömmu, Davíð Þór af einstæðri íslenskri móður með fjarlægan gambískan föður en Jónmundur er bara vesturbæingur og áttaði sig ekki á því að hann væri eitthvað öðruvísi en vinirnir fyrr en hann var kominn í skóla. Raunar kafa þeir furðu djúpt í ólíka kima reynslu sinnar á þessum klukkutíma og gefa af sér af örlæti.
Allt eru þetta þekktir menn í þjóðlífinu þótt Unnsteinn sé líklega þeirra frægastur, en þeir fullyrða líka að sé maður öðruvísi þá verði maður að meika það! Það er ögrunin sem þeir stóðu frammi fyrir strax snáðar og sem þeir tóku og unnu með. Í fjölmörgum stuttum, snörpum atriðum, sumum hárbeittum, gefa þeir gestum sínum innsýn í hvað við var að eiga og gengu sum verulega nærri manni. En þeir eru einlægir og hlýir, óhræddir við að vera viðkvæmir, aldrei beiskir, ævinlega hafnir yfir væl um leið og þeir láta okkur hin horfa í afhjúpandi spéspegil. Og þeir eru mjög fyndnir!
Tónlistin er að sjálfsögðu vel samin og flutt enda góðir tónlistarmenn sem standa að sýningunni. Frumsýningargestir voru svolítið feimnir við fjöldasönginn í lokin en ég spái því að áheyrendur á síðari sýningum verði duglegri að taka undir. Þetta er dýrindis skemmtun og skilur líka eftir (óþægilega) margt til að hugsa um.
Silja Aðalsteinsdóttir