Fjöllistahópurinn Visceral Abstraction frumsýndi séríslenska útfærslu á sýningu sinni Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir leikstjórn Juanitu Cardenas og Margrétar Erlu Maack. Juanita hannaði leikmynd og búninga með aðstoð Söru Magnúsdóttur. Jon Joni og hópurinn sömdu dansa en Sigurður „Gógó“ Starr hannaði hljóðmynd. Jóhann Friðrik Ágústsson hannaði lýsingu. Í hópnum eru þrettán listamenn sérhæfðir í dansi af öllu tagi, sirkuslistum, söng og leiklist auk þess sem þeir semja söngtextana sjálfir.

Í sýningunni kannar hópurinn þá hlið mannlífsins sem snýr að kynlífi. Þetta gerir hann með firnaskemmtilegum látbragðsleik , loftfimleikum og dansi. Eins konar sögumaður sýningarinnar er smokkurinn (Sigurður „Gógó“ Starr) sem leiðir okkur í gegnum framvinduna af öryggi og þokka. Hún hefst á því að uppi á efri hæð sviðsins ekur strætisvagn í hlað, mótaður eins og typpi, hlaðinn hressum sæðisfrumum sem spýtast út á gefnu augnabliki (ein aðeins fyrr…). Þær æða í spretti niður á neðri hæðina en uppi yfir henni svífur eggið (Sally Cowdin) hátignarlega í rólu sinni og tekur á móti frumunni sem hraðast hljóp. Egg og fruma sameinast í undurfallegum dansi í háloftum leikhússins svo yndi var á að horfa. Í þessum loftfimleikum fékk lofthæð Litla sviðsins loksins að njóta sín til fullnustu, það var svei mér sjón að sjá!

Frjóvguninni fylgir að sjálfsögðu fæðing sem útfærð var á hinn litríkasta hátt, meira að segja fylgjan (Dana Abrassart) fékk sinn sérstaka dans og sorglega ljóð. Fæðingunni fylgir bæði brjóstagjöf og fæðingarþunglyndi sem Margrét Erla túlkaði af innlifun. Tíðahvörfin voru líka tekin fyrir og „Tíðahvarfatangóinn“ var skemmtilegasti söngtextinn; þar lögðu margir félagar sitt af mörkum. Hressilegur dans blöðruhálskirtilsins var síðasta atriði fyrir hlé, stiginn við lagið Everybody (Backstreet Boys) og eigin texta.

Fyrir hlé var sýningin eins og leikræn útfærsla á kennslubókum sem margir kannast við en eftir hlé var farið út í kimana sem ekki eru nefndir þar. Þá fengum við til dæmis að kynnast hormónunum, bæði kven- og karl-, flatlúsinni (Ryan Shinji Murray), fórnarlambi hennar (Jon Joni) og syni hennar (Jón Sigurður Gunnarsson), kynlífsdúkkum, munnmökum og skömminni (Freyja „Sparkle“ Möller) sem sannarlega skammaðist sín ekki hót! Ekki er ráð að fara nánar út í þetta síðasta því að ekki má ræna væntanlega áhorfendur spennunni.

Leikhópurinn er afar frjálslegur í fasi og öllum búnaði og ekki get ég ímyndað mér að ég eigi nokkurn tíma eftir að sjá jafnmarga rassa á sviði aftur. En þau eru bæði gríðarlega fær í sínu fagi og full af smitandi gáska svo að brosið var alveg fast á andlitinu mestallan tímann. Sýningar eru örfáar vegna þess að hluti hópsins fer úr landi eftir skamma hríð, þið verðið að hafa hraðar hendur ef þið ætlið ekki að missa af þessari einstöku skemmtun.

Silja Aðalsteinsdóttir