Sviðslistahópurinn Spindrift sýnir nú í Tjarnarbíó kammeróperuna Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett eftir tónskáldið Önnu Halldórsdóttur og ljóðskáldið Elísabetu Jökulsdóttur. Leikstjóri er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir en tónskáldið er sjálf tónlistarstjóri. Sara Hjördís Blöndal hannaði leikmynd og búninga en Juliette Louste lýsingu.

Ljóðabókin Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur vakti óvenju mikla athygli af ljóðabók að vera þegar hún kom út 2014 enda áhrifamikið verk. Ljóðin segja dramatíska sögu og henta því vel í sviðsverk þótt ekki virtist óperuformið eins upplagt og það reynist vera. Að vísu skiptast hér á talaður og sunginn texti sem er kostur því að talaði textinn skilst betur og ljóðin eru svo sterk að maður vill ekki missa af einu orði.

Tinna Þorvalds Önnudóttir messósópran flytur textann við sellóleik Júlíu Mogensen. Tinna hefur sterka og aðlaðandi rödd sem hæfir ljóðunum vel og sellóið rímar vel við hana. Í einu atriði töluðu þau saman, mannsröddin og sellóið sem þá túlkaði rödd karlmannsins, það var skemmtilega gert. Tónlistin var mjúk og tilfinningahlaðin en dálítið endurtekningarsöm.

Sagan í ljóðunum segir af erfiðu ástarsambandi allt frá upphafi til hins beiska enda. Í byrjun leggur karlinn konuna að fótum sér með því að hæla henni fyrir að vera eins og hún er – en byrjar svo undir eins að breyta henni. Hún verður svo hugfangin að hún gleymir sjálfri sér og öllum heiminum, öllu nema ástmanninum. Mörg stök ljóð hafa setið í minningunni allt frá fyrsta lestri ljóðabókarinnar, til dæmis „Sýlindermaðurinn“ sem grætur yfir vonsku þeirra kvenna sem hafa skipt um sýlinder – „með köldu blóði“ – til að varna honum inngöngu í hús sín, en jafnvel þessi heiðarlega játning opnar ekki augu ástföngnu konunnar nægilega til að hún flýi. Sambandið gengur upp og niður, ýmist í takt við geðhvörfin hennar eða skapsveiflur hans. Hún fréttir að hann sé þekktur ofbeldismaður en neitar að horfast í augu við það. Svo verður hún fyrir ofbeldinu sjálf en augun neita áfram að opnast. Konan er ástsjúk og getur ekki losnað við fíkn sína.

En þrátt fyrir ofbeldi og dramatík er þetta ekkert melódrama. Elísabet sér hið gráthlægilega í þessum hörmulegu aðstæðum og Tinna ber fullt skynbragð á það. Túlkun hennar er oftast hæfilega hæðin um leið og hún virkjar tilfinningar áheyrenda.

Tinna og Júlía eru báðar svartklæddar, búningur Júlíu er skreyttur bláum blómum en búningur Tinnu er skreyttur rauðum blómum og þráðum sem eru eins og utanáliggjandi hjartaþræðir. Leikmyndin er í góðu samræmi við verkið og ljóðskáldið, litríkt hús í gömlum stíl og þvottur á snúrum. Margar skemmtilegar leikhúslausnir gáfu uppsetningunni aukinn lit og lýsingin tók líka virkan þátt í leiknum. Öll ber uppsetningin með sér djúpa virðingu fyrir verki Elísabetar og gleður jafnt augu sem eyru.

Silja Aðalsteinsdóttir