Þjóðleikhúsið frumsýndi í síðustu viku í Kassanum nýtt verk eftir Kriðpleirsliðann Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli. Björn Thors leikstýrir en leikmynd og búninga sjá þær um Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir. Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu, Margrét Bjarnadóttir um sviðshreyfingar,  tónskáld  er Örvar Smárason en þeir Þóroddur Ingvarsson skapa saman sérkennilegan og áleitinn hljóðheim sýningarinnar.

Daníel (Hilmar Guðjónsson) er kvæntur Soffíu (Ilmur Kristjánsdóttir), faðir tveggja telpna og  heimavinnandi húsfaðir en hefur fram að þessu líka stundað vinnu úti í bæ, aðallega í fjarvinnu. Hann sér um heimilið af ástríðu eins og við fáum að sjá strax þegar við göngum í salinn, þá stendur hann í eldhúsinu sínu og brýtur saman þvott af einstakri natni. Þetta er hans eldhús því að hann sér um matseld eins og önnur heimilisstörf, hann er meira að segja talsvert metnaðarmikill ástríðukokkur. En hann er ekki ánægður með eldhúsinnréttinguna eins og hann segir okkur, enda er hún óttalega sviplaus og leiðinleg, og hann dreymir stóra drauma um nýja innréttingu með borðplötu úr marmara. Meðan hann bíður þess að draumar hans rætist skoðar hann innréttingar í öllum tiltækum verslunum og finnur bæði draumainnréttinguna og búðarkonu (Salka Gústafsdóttir) sem skilur hann betur en Soffía. Eftir það fjörgast draumalíf hans, einkum í vöku, og voru senurnar með Daníel og búðarkonunni gráthlægilegar, ekki síst eftir að maðurinn í skápnum (Ólafur Ásgeirsson) bættist við. En um leið stækkar gapið milli raunveruleikans með Soffíu og ímyndaða lífsins, og þó að hann reyni hvað hann getur til að fá Soffíu til að skilja vonir sínar og væntingar koma æ meiri brestir í undirstöðuna.

Nýtt eldhús eftir máli er snjöll taka á kynhlutverk í samtímanum og vekur ótalmargar spurningar, jafnvel fleiri og flóknari en saga Svövu Jakobsdóttur sem Friðgeir vísar til í titli leikritsins. Textinn er auðugur og bæði vel hugsaður og skrifaður. Einstaklega frumlegt er að hafa uppgjör hjónanna í viðtengingarhætti – þá getur maður spurt sig hvort þetta gerðist eða hvað gerðist yfirleitt!

Leikurinn er jafn, spennandi og góður. Hilmar og Ilmur skapa eftirminnilegar og sannfærandi persónur úr hjónunum. Hann er tuskulegur til fara eins og hver annar heimilisþræll, öruggur í sínu en óöruggur út á við, og vakti bæði aðhlátur og innilega samúð. Stjörnuleikur. Ilmur er hin dæmigerða framakona, vel klædd, sjálfsörugg og hæðin, óhamingjusöm í einkalífinu en glöð í vinnunni. Í fyrsta viðtalinu í nýju starfi þýfgar yfirmaðurinn (Ólafur) hana um framtíðardrauma hennar en ólíkt manni sínum reynist hún ekki eiga neina, þar skilur milli þeirra, og myndin af henni verður óvænt hrollvekjandi. Glæsilega gert. Salka er kynþokkinn holdi klæddur í hlutverki draumadísar Daníels og Ólafur er bæði fyndinn og hallærislegur sem Ingó yfirmaður. Tælingardans hans var verulega athyglisverður. Ennþá merkilegri var þó lokadans verksins – en þar er sjón sögu ríkari.

Öll umgjörð var vandlega útfærð. Sviðið alltaf óvænt með talandi uppþvottavél og eldhúsinnréttingunni sem var svo skemmtilega laus í sér. Hljóðheimurinn var fjölbreyttur – vel unnið með öll hljóðin sem angra okkur og stríða í nútímanum, bling hér og ýl þar. Tónlistin var mögnuð og beitt á réttum stöðum. Lýsingin var líka listilega hönnuð. Það var óhugnanlegt að vera allt í einu stödd með Daníel úti á opnu hafi og fylgjast með honum fara á kaf … Alger galdur!

Það hefur væntanlega ekki verið einfalt fyrir Friðgeir sem sjálfur er vanur leikari og skapari leiksýninga að sleppa hendinni af þessu verki sínu í hendur Björns Thors og annars leikara í „sitt“ hlutverk, en hann má vera hamingjusamur með þá ákvörðun, þetta er ekta leikhús.

Silja Aðalsteinsdóttir