Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða ein hnífstunga.
Jacob Dunne varð fyrir því nítján ára gamall að bana ungum manni, James Hodgkinson, sem hann þekkti ekki neitt, hafði aldrei séð áður. Hann var dæmdur fyrir verknaðinn til tveggja og hálfs árs fangelsis. Eftir að hann losnaði úr fangelsinu höfðu foreldrar James samband við hann gegnum samtök um uppbyggilega réttvísi til að reyna að skilja það sem hafði gerst. Smám saman hafa kynni við foreldrana, Joan og David, þau áhrif á Jacob að hann rís úr rústum síns unga lífs, menntar sig, verður að manni og skrifar bók um reynslu sína. Á þeirri bók, Right from Wrong, er leikritið byggt.
Í leikritinu segir Jacob (Jakob van Oosterhout) okkur áhorfendum sögu sína á tiltölulega beinan hátt. Hann fer fyrst hratt yfir kvöldið örlagaríka og endar á högginu; svo byrjar hann á byrjuninni og rekur bernsku- og æskuárin fram að því kvöldi. Hann ólst upp í erfiðu hverfi í borginni Nottingham, sonur einstæðrar móður (Edda Björg Eyjólfsdóttir) sem vann fyrir sér sem dagmamma. Það var gæfa Jacobs að hann átti ástríka móður sem elskaði hann og bróður hans (Sigurbjartur Sturla Atlason) og innrætti honum góð gildi – þótt hann hafnaði þeim gildum fyrir vinsældir í félagahópnum þegar hann komst á unglingsár. Til að halda áliti félaganna varð hann sífellt harðari nagli, duglegri að selja dóp, fljótari til að beita afli í slagsmálum, uns hann kemur eitt kvöld að sínum hóp í slagtogi við ókunna stráka og ákveður að hann þurfi að grípa til hnefans. Það er þó ekki hnefahöggið sem drepur James heldur skellur hann svo harkalega í götuna að höfuðið hlýtur banvænan áverka.
Þessi fyrri hluti sýningarinnar var hraður og fjörmikill. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur er geggjuð smíð, minnir á brú með tröppum upp á hana báðum megin sem hægt var að hlaupa upp og niður og undir henni skot og port sem hægt var að skjótast inn og út úr. Lifandi svið sem bauð upp á mikla hreyfingu sem leikstjórinn, Magnús Geir þjóðleikhússtjóri sjálfur, nýtti sér vel. Undir dunaði tónlist Gísla Galdurs Þorgeirssonar eins og hjartsláttur borgarlífsins.
Eftir höggið dettur allt í dúnalogn og seinni hluti sýningarinnar var í allt öðru tempói og anda. Fangelsi, úrræðaleysi að því loknu, ekkert blasir við nema endurtekning. Þangað til Joan og David (Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson) hafa samband gegnum fulltrúa samtaka um uppbyggilega réttvísi (Selma Rán Lima) og stuðningsfulltrúa Jacobs (Þuríður Blær Jóhannsdóttir) og sársaukafull endurreisn hefst.
Ég ítreka: þetta var þrátt fyrir einfaldleikann í frásögninni ótrúlega áhrifamikil sýning og þar kemur fyrst og fremst til fantagóður leikur Jakobs van Oosterhout í aðalhlutverkinu. Hann lifði sig inn í persónu sína, andaði með henni, tók andköf með henni, var hún. Það er sjaldgæft að upplifa svo djúpa persónusköpun. Og það snart mann djúpt að sjá fyrirmyndina, Jacob Dunne sjálfan, faðma nafna sinn að sér í sýningarlok. Þvílík stund í leikhúsi!
Þau voru ekki síðri Unnur Ösp og Guðjón Davíð í hlutverkum foreldranna. Maður skynjaði með allri sálu sinni angist þeirra og ólýsanlegan harm. Einkum trúi ég að leikur beggja verði minnisstæður í hápunkti verksins þegar Jacob spyr Joan og David hvort þau geti einhvern tíma fyrirgefið honum.
Edda Björg dró upp skýra og einlæga mynd af konu sem reynir að halda í gildi sem henni voru innrætt í bernsku í umhverfi fjandsamlegu þeim og finnur sárt til þegar sonur hennar fjarlægist þau æ meir. En hann átti þau til að grípa til þegar hann var tilbúinn, ekki má gleyma því. Aðrir leikarar brugðu sér í ýmis hlutverk og fylltu sviðið af sannfærandi lífi í ólíku umhverfi sögunnar. Hallgrímur Ólafsson fór létt með bæði ruddann föður Rafs og fangelsisprestinn; Jónmundur Grétarsson var félaginn Derek og Kristinn Óli S. Haraldsson lék Raf, félagann sem „sveik“. Það var átakanlegt atriði þegar þeir hittast eftir fangavist Jacobs og Jacob er ákveðinn í að hefna sín.
Þetta var oft flókinn dans og má hrósa bæði leikstjóra og Conor Doyle. hönnuði dans og sviðshreyfinga fyrir þétta og spennandi kóreógrafíu. Þarna var sköpuð sterk mynd af samfélagi þar sem reiði og æsingur eiga stóran þátt í stemningunni.
Þýðing Kristjáns Þórðar Hrafnssonar er afbragðsgóð. Búningar Filippíu I. Elísdóttur voru vandlega hugsaðir; einkum var eftirtektarvert hvernig hún klæddi persónu Joan sem Unnur Ösp lék. Loks þarf að geta lýsingar Björns Bergsteins Guðmundssonar sem var algerlega göldrótt. Raunar má hafa það orð um sýninguna í heild sinni: hún var galdur.
Silja Aðalsteinsdóttir