Það er skammarlegt að hafa fyrst núna séð sumarsýningu Leikhópsins Lottu í Elliðaárdal, en mun betra er seint en aldrei. Í sumar sýna þau sína útgáfu af Hróa hetti og ég veit að það kemur ykkur stórlega á óvart að frétta að í rauninni þekktust þau Hrói og Þyrnirós og voru ágætir vinir! Í útgáfu höfundarins, Önnu Bergljótar Thorarensen, er Þyrnirós (Rósa Ásgeirsdóttir) einkadóttir Ríkharðs ljónshjarta Englandskonungs (Stefán Benedikt Vilhelmsson) og það er hinn öfundsjúki bróðir hans, Jóhann prins (Sigsteinn Sigurbergsson), sem veldur því að Þyrnirós og pabbi hennar sofna bæði á afmælisdaginn hennar þegar hún verður átján ára þannig að hann, Jóhann, geti orðið konungur. Jóhann er auðvitað andstyggilegt yfirvald sem skattpínir alþýðuna svívirðilega með hjálp Fógetans í héraðinu (Andrea Ösp Karlsdóttir) en Hrói höttur (Stefán Benedikt) og besta vinkona hans Þöll (Anna Bergljót) ræna fénu jafnharðan af honum og dreifa meðal almúgans.
Ekkert getur vakið Þyrnirós nema sannur ástarkoss og Þöll vill endilega að Hrói kyssi hana svo að hún þurfi ekki að sofa í heila öld. En Hrói bendir á að hann sé bara ekki ástfanginn af prinsessunni og þess vegna muni koss hans ekki duga. Hann hefur því miður rétt fyrir sér og þá er vinunum vandi á höndum. En lausnin er nærri!
Þetta er stórskemmtileg sýning, fjörug og litrík eins og vænta má bæði af leikhópnum og ekki síður leikstjóranum, Ágústu Skúladóttur, skreytt mörgum hressum heimafengnum lögum við smellna texta Sævars Sigurgeirssonar. Leiksviðið var einfalt og skýrt og búningarnir ævintýralega fjölbreyttir eins og sjá má á myndunum. Sérstaklega var búningur Jóhanns prins vandaður og vel heppnaður og hæfði vel frábærri túlkun Sigsteins á þessum leiða karakter. Leikurinn var yfir línuna mjög aðlaðandi og lifandi eins og aðdáendur Lottu eiga líka von á.
Kannski er þetta verk sniðið að aðeins eldri krökkum en venjan er – þar sem ástin er í svona stóru hlutverki. En snjallt var að flétta saman mörg helstu dægurlög okkar um ástina á hápunkti sýningarinnar – og gaman að heyra hvað þau eru mörg og hvað þau eru fín! Þetta gerir sýninguna líka einkar aðlaðandi fyrir foreldra, afa og ömmur sem sjá mátti að skemmtu sér afar vel!
Silja Aðalsteinsdóttir