Brúðubíllinn frumsýndi sýningu sína í Tjarnarbíó í gærdag, í fyrsta sinn innanhúss. Umsjónarmaður hans er Hörður Bent Steffensen en handritið er sem fyrr eftir Helgu Steffensen. Hún gerir líka brúður og búninga fyrir utan búning trúðsins Dúsks sem er eftir Lenu Dís Jónsdóttur. Lárus Blöndal (Lalli töframaður) leikur með Herði á sviðinu en raddir af bandi eiga Helga Steffensen, Pálmi Gestsson, Steinn Ármann, Laddi og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Í sýningunni hitta börnin apann Lilla sem margar kynslóðir íslenskra barna kannast við. Þetta er hýr og elskulegur api, ósköp indæll og alveg hrekklaus. Meiri bragur var á hananum sem segir börnunum söguna af Seppa litla sem á að gæta bæjarins fyrir tófunni og öðrum meindýrum en á erfitt með að láta taka sig alvarlega af því hvað hann geltir aumingjalega. Hagur hans vænkast þegar hann uppgötvar að það heyrist margfalt hærra í honum ef hann geltir ofan í pott eða fötu. Rostungurinn Robbi segir líka frá lífinu í undirdjúpunum og syngur um það hve lífið verður miklu betra með hreifa eða ugga, en þegar úlfurinn mætir með kúta á upphandleggjunum og þykist vera sjávardýr ofbýður öllum!
Svo óheppilega vildi til að barnið sem ætlaði að fara með mér á sýninguna veiktist þannig að við vorum tvær rígfullorðnar sem sáum Brúðubílinn saman og okkur fannst sýningin satt að segja ansi þunnur þrettándi. En börnunum fannst greinilega gaman enda fengu þau bæði að taka svolítinn þátt í leiknum og syngja lokasönginn.
Silja Aðalsteinsdóttir