Leikfélag Akureyrar frumsýndi á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu Fasteignamartröðina eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar sem einnig þýðir verkið og staðfærir. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynd og búninga og Fjölnir Gíslason um ljósahönnun og myndbandagerð. Jóhannes Damian R. Patreksson samdi tónlistina en Gunnar Sigurbjörnsson sá um hljóðhönnun. Harpa Birgisdóttir ber ábyrgð á ótal gervum sem breyttu útliti leikaranna á augabragði. Dramatúrg var Júlía Gunnarsdóttir.

Arnrún og Auðunn (Urður Bergsdóttir, Jökull Smári Jakobsson) hafa búið saman í fimm og hálft ár þegar hann fær nóg – þrátt fyrir loforð um eilífa ást – og segir henni upp. Íbúðin er á hans nafni þótt hún hafi lagt föðurarfinn sinn í hana og hann vísar henni á dyr en segist ætla að greiða henni helming þess sem hún lagði fram. Veröld Arnrúnar hrynur til grunna á svipstundu. Hún á að því er virðist enga nána ættingja en hún á besta vininn Póló (Hjalti Rúnar Jónsson) og til hans flytur hún, sinnir ekki vinnu sinni heldur liggur uppi í sófa í þunglyndi dagana langa. Póló fær eðlilega líka nóg og hvetur hana til að kaupa sér fasteign. Hann klæðir hana upp og rekur hana í bankann til að sækja um lán. Þar tekur bankafulltrúinn Sylvía (Vigdís Halla Birgisdóttir) furðuvel á móti henni og hringekjan æðir af stað. Þau Arnrún og Póló skoða margar íbúðir saman og lenda í furðulegum uppákomum eins og nærri má geta – til dæmis er einn húseigandinn galinn (Hólmfríður Hafliðadóttir) og annar á barmi sjálfsvígs (Vigdís Halla).

Baráttan við að eignast eigið húsnæði er sameiginlegur vandi ungs fólks víða um heim og þess vegna leyfir höfundur staðfærslu þar sem verkið er sett upp, og það var gaman að hugsa sér verkið gerast á Akureyri. Þó er spurning hvort Akureyri er nógu stór staður fyrir ýmiss konar svindl – eða er það ímyndun gamals Akureyrings að þar viti allir allt um alla og erfitt sé að villa á sér heimildir? Jón og Jóna (Jökull Smári, Hólmfríður Hafliðadóttir) voru alls ekki sérlega traustvekjandi séð utan úr sal en Arnrún er óttalega auðtrúa. Raunar er Arnrún skelfing hrekklaus í túlkun Urðar, enda vansæl stúlka, og lætur vel að stjórn frekjuhundanna í kringum sig. En það breytist undir lokin þegar hún fær líka nóg.

Eins og nafnið bendir til er Fasteignamartröðin kolsvartur gamanleikur og leikurinn var á köflum ýktur farsaleikur. Þó vantaði snerpu og hraða til að farsinn og fyndnin nytu sín nógu vel en það getur lagast með fleiri sýningum. Hjalti Rúnar var öruggur í sínu hlutverki, enda gegndi hann aðeins einu hlutverki eins og Urður en þurfti ekki að skipta um gervi eins og þau hin. Vigdís Halla var sannfærandi sæt og andstyggileg í hlutverki Sylvíu og ruddi út úr sér tölum og reglum bankans af eitruðu öryggi. Jökull Smári var skíthællinn Auðunn og tók sig vel út á myndböndum Fjölnis þar sem hann spókaði sig á sólarströnd meðan gamla kærastan barðist í bönkum. Ábending: Sjónvarpið mætti standa hærra á sviðinu til að vel sjáist á það hvaðanæva. Tveim atriðum virtist vera skotið inn í sýninguna, annars vegar söngatriði húseigandans Stefaníu (Hólmfríður) og hins vegar dansi Jóns og Jónu. Fjarri sé það mér að kvarta undan söng Hólmfríðar, hún er svo góð söngkona, en atriðið var ótengt öllu öðru í verkinu og virkaði bara ruglandi.

Leikmyndin er vandasöm vegna þess hvað leikritið fer víða en sú lausn að loka sviðinu til hálfs með tjaldi þegar Arnrún var að skoða íbúðir virkaði dálítið klaufaleg. En stúka Sylvíu í bankanum var sniðug og íbúð Arnrúnar í lokin var líka fín. Gabrielé Labanauskaité var sjálf viðstödd frumsýninguna; ég vona að hún hafi skemmt sér vel við að hlusta á persónurnar sínar tala þetta framandi tungumál.

Silja Aðalsteinsdóttir