Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp úr bókunum Engan asa, Einar Áskell og Flýttu þér, Einar Áskell eftir Gunillu Bergström. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Sara Martí Guðmundsdóttir, leikmynd og búninga hannaði Auður Ösp Guðmundsdóttir, tónlistina samdi Georg Riedel en Stefán Örn Gunnlaugsson útsetti og stjórnaði. Skemmtilegt myndband á vegg er eftir Usman Naveed.
Það er föstudagsmorgunn hjá feðgunum, Einar Áskell (Elísabet Skagfjörð) á að fara í skólann en áður en það gerist þarf hann að bursta tennurnar, borða morgunmat – og leika sér smávegis. Pabbi (Vilhjálmur B. Bragason) er ekki ánægður með hvað hann drollar en það teygist samt úr morgunverkunum hjá Einari Áskeli af því að það gerist svolítið óhapp – eða kannski stórt óhapp? Hann ætlar að leyna því fyrir pabba en pabbi er glúrinn og svo fer að Einar Áskell játar brot sitt, það er líka best. Þeir halda út í daginn og dagurinn líður hjá okkur í salnum með því að horfa á klukkuna telja tímana alveg til klukkan þrjú. Þá koma feðgarnir heim og af því að það er föstudagur stefnir í kósíkvöld með pítsu, ís og mynd. En ekki fer allt eins og ætlað er, það geta fleiri orðið fyrir óhappi en litlir strákar.
Þetta er indæl sýning, róleg, falleg fyrir augað og talar beint til ungra áhorfenda um hversdagsleg atvik og háttbundnar venjur sem þeir kannast vel við. Textinn er svolítið út undir sig, hann er kryddaður gagnlegum orðatiltækjum sem sjálfsagt er að reyna að fara eftir þótt það takist hreint ekki alltaf. Munurinn á ætlun og árangri setur hlýlegan húmorískan blæ á sýninguna, allir þekkja það til dæmis að pressa of margt í sömu mínútuna þótt reglan segi „Eitt verk í einu“!
Elísabet og Vilhjálmur eru eins og sköpuð í hlutverk sín og náðu fullkomlega til barnanna í salnum, æsingalaust og án tilgerðar. Eftir sýninguna streymdu börnin til þeirra niður á sviðið til að fá mynd af sér með þeim í stofustólnum hans pabba. Einar Áskell er ekki horfinn af sviðinu þótt hans ástsæli höfundur hafi yfirgefið sviðið 2021. Sem betur fer skildi hún eftir sig alls 26 bækur um Einar Áskel, nóg efni í margar leiksýningar!
Silja Aðalsteinsdóttir