Eftir Anton Helga Jónsson

Úr Tímarit Máls og menningar 2. hefti 2010

1.

það er bara óreiðufólk sem notar ekki smokk
það var hún amma mín vön að segja
bara óreiðufólk

við afi þinn notuðum alltaf smokk
það sagði hún amma mín oft og tíðum
alltaf smokk

við sýndum alltaf fyrirhyggju
útí skemmu
inní búri
uppá lofti
á morgnana í hádeginu um sólarlagsbil
smokk smokk smokk

grandvarar manneskjur notuðu smokk
við afi þinn notuðum alltaf smokk
það var hún amma mín vön að segja

2.

það er svo mikið af hval í hafinu að hann étur allan þorskinn
það er svo mikið af þorski í hafinu að hann étur alla loðnuna
það er svo mikið af loðnu í hafinu að hún étur allt sandsíli
það er svo mikið af sandsíli í hafinu að það étur allan fiskifræðing
það er svo mikið af fiskifræðingi í hafinu að hann étur allan sægreifa
það er svo mikið af sægreifa í hafinu að hann étur allan íslending
það er svo mikið af íslendingi í hafinu að hann étur allan hvalinn

3.

mig langar í sparnað
mig langar í lífeyrissjóð
mig langar svo mikið í lífeyrissjóð
ó gvuð hvað mig langar í lífeyrissjóð

mig vantar svo handsmíðað úr
mig vantar svo brekku í ölpunum
mig vantar svo fótboltalið
mig vantar svo nýja klósettpappírinn frá gucci

mig vantar svo vantar svo
vantar svo vantar svo vantar svo
vantar svo vantar svo vantar svo
vantar

4.

ég bið ekki um þakklæti
en vissulega fyllist ég stolti
yfir framlagi mínu til samfélagsins
ég finn til skyldleika með alþýðunni
hef ekkert á móti því að mínar hægðir
blandi geði við vandalausa í holræsum borgarinnar

öll erum við íslendingar

við erum eina þjóðin í heiminum sem les njálu á frummálinu
segir forsetinn

sagði forsetinn
fyrrverandi

við erum eina þjóðin í heiminum
segir forsetinn

við erum stolt þjóð
við erum dugmikil þjóð
við erum menntuð þjóð og stefnum alltaf hærra
við þurfum ekki að skeina gamalmenni einsog taílendingar
við þurfum ekki að verka fisk eins og einhverjir pólverjar
við látum ekki kúga okkur
við íslendingar

5.

ekki hafa þeir dauðu miklar áhyggur
ekki kvíða þeir dauðu morgundeginum
samt eru þeir alltaf í fréttunum

en hér ligg ég
andvaka og ein
hálfsjötug óbyrja
lýðveldið ísland
lýðskrumið ísland
vörumerkið ísland
ungfrú ísland í vetrargarðinum
hver ef ekki ég er fjallkonan sjálf
hálfsjötug óbyrja með talsverðar áhyggjur

hvað verður um barnabörnin mín

heimspressan fjallar ekkert um það
bara eitthvert fólk að deyja í bagdað

hvernig eiga barnabörnin mín
nokkurn tíma að geta borgað sínar stöðumælasektir
ekkert fjallar heimspressan um það

hvar eru meðulin mín
hvar eru náðarmeðulin mín
núna eru liðnir fjórir dagar
síðan ég fékk að heyra í hagfræðingi
ég veit ekki hvort ég þoli þetta ástand mikið lengur

6.

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
það er gífurlega mikilvægt að reiði almennings fái útrás

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
enginn mannlegur máttur bætir krónuna en réttlætið sigrar

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
þjóðin fær kost á því að koma með beinum hætti að refsingum

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
líkt og fyrrum verður eiginkonum þeirra gert skylt að bera auðkenni

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
allar bænaskrár fara til franeks landstjóra og jafnvel beint til evu sjálfrar

lýðheilsustofnun gjörir kunnugt
guð blessar ísland og refsar hann refsar hann refsar hann refsar og refsar og refsar

7.

samkvæmt áreiðanlegum heimildum á blogginu
gekk kona frá grenivík niður strikið á fimmtudaginn
núna á fimmtudaginn
niður strikið
í mesta sakleysi

þá glotti danskur kaupmaður

það glotti danskur kaupmaður
það hata allir íslendinga

það hata allir íslendinga
það grætur enginn íslending
yst á ránar slóðum

yst á ránar slóðum er sumarnóttin hörð
yst á ránar slóðum er lengi vakað frameftir
yst á ránar slóðum finnst öllum erfitt að lifa daginn eftir

jafnvel í hefðbundnu kaffisamsæti okkar framsóknarmanna
hafa silfurskeiðarnar bauga undir augum

ég lenti bara í því að vera í flokki
ég lenti bara í því að segja já og amen
ég lenti bara í því að eiga frændur og vini
ég lenti bara í því að gera tæknileg mistök

hvar ertu hekla
það vantar svo samúð
það vantar svo samband
það vantar svo samtaka þjóð

nú væri gott að fá eldgos
vaknaðu vinan
drífðu þig hekla að gjósa