Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hið heilaga orð.

Benedikt bókaútgáfa, 2018. 272 bls.

Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2019

Það er hlýr og bjartur morgunn í lok ágúst þegar Edda gengur út af heimili sínu og hverfur. Drengurinn hennar er þriggja daga gamall þegar hún skilur hann eftir sofandi í vöggunni, og lögreglumaðurinn sem talar við fjölskylduna segir henni að þakka fyrir það. Oft sé ástæða til að hafa áhyggjur af öryggi nýfæddra barna þegar mæður þeirrar hverfa svona, þær taki þau stundum með sér ef þær missa vitið. (9)

Hið heilaga orðÞessi orð marka upphafið að annarri skáldsögu Sigríðar Hagalín Björnsdóttur, Hið heilaga orð. Kona lætur sig hverfa frá nýfæddu barni og eftir situr fjölskylda hennar agndofa. Fjölskyldan er reyndar ekki í hefðbundnari kantinum því Edda elst upp hjá tveimur konum og bróður sínum, Einari.  Konurnar, Júlía og Ragnheiður, urðu ófrískar eftir sama manninn, sjarmerandi óbermi sem yfirgaf þær báðar, og tóku þá praktísku ákvörðun að ala börnin upp saman.

Systkinin Einar og Edda eru afar ólík en þrátt fyrir það mjög náin. Einar er lesblindur en Edda er haldin því sem er kallað oflæsi, ákveðinni tegund einhverfu sem gerir að verkum að viðkomandi nær einungis sambandi við texta. Edda lifir og hrærist í textum og spinnur upp sögur í sífellu en hún er ekki flink í að eignast vini. Lesblindan gerir Einari vissulega erfitt fyrir en hann á ekki í erfiðleikum með að umgangast fólk og það er í raun hann sem sér um mannleg samskipti systurinnar þegar hann er til staðar. En það er hann ekki alltaf og þá er Edda ólýsanlega einmana því enginn skilur hana nema Einar. Þegar hún er á sautjánda ári upplifir hún sig sem ófreskju, „viðrini, félagslegt viðundur, og henni finnst hún verða að brjótast út úr þessari skurn, ná sambandi við umheiminn, finnst líf sitt liggja við.“ (171) Og til þess að brjótast út og ná sambandi þiggur hún boð í partí sem endar með ósköpum, ekki vegna þess að hún kann ekki að tala við fólk og ekki heldur vegna þess að hún kann ekki að drekka, þótt hún kunni hvorugt. Hana grunaði nefnilega ekki hversu skelfilegir hlutir geta dunið yfir mann í lífinu og á leiðinni heim úr partíinu hefur hún aldrei verið jafn ein, aldrei jafn berskjölduð. Hún „heyrir ekki raddir vina sinna úr bókunum í höfði sér, finnur ekki Einar.“ (174)

Bæði eru systkinin leitandi og virðast hafa fundið sig um tíma. Einar er kominn á kaf í ferðaþjónustuna og leiðsegir í tengslum við veiðimennsku í ám og vötnum. Edda hefur komið sér vel á framfæri sem áhrifavaldur og er með mörg þúsund fylgjendur á Snapchat og Instagram. Í stað rykugra bókastafla á bernskuheimilinu blasir við stafræn, stílhrein tilvera sem Einar á erfitt með að átta sig á. En tilvera Eddu er ekki fullkomnari en svo að hún lætur sig hverfa, meðal annars vegna þess að hún treystir sjálfri sér ekki til þess að hugsa um nýfætt barn sitt.

Í ljós kemur að Edda hefur farið til New York og Júlía fær Einar til þess að fara á eftir henni. Honum er það þvert um geð í fyrstu, finnst að hún eigi bara að fá að vera frjáls ef það er það sem hún vill. „Edda hefur aldrei verið í lagi,“ segir Júlía. „Fyrst þessi algera einangrun og áfallið, og svo þetta glanslíf hennar – hún hefur reynt að fela sig undir þessu yfirborði, en hún er þarna ennþá. Og hún er ekki í lagi.“ (37) Það veit Einar manna best en hann veit ekkert hvernig hann á að finna systur sína innan um milljónir manna í ókunnri borg. „Þú ert veiðimaður. Þú finnur hana,“ segir Júlía. (37) Og hann finnur hana að lokum en ekki fyrr en hann er búinn að feta sig eftir ýmsum krákustígum sem meðal annars færa hann á vit ástarinnar.

Aðalpersónur sögunnar eru heillandi hver á sinn hátt. Hin ljúfa Ragnheiður, mamma Einars, sem alltaf er með blíðuorð á vörum, tilbúin til þess að hugga og hughreysta, og töffarinn Júlía, mamma Eddu, sem heldur heimilinu saman og lætur engan segja sér fyrir verkum. Júlía er sú sem öllu bjargar og reddar og Einar er bjargvættur Eddu en er samt í æsku engu minna háður henni en hún honum. Höfundur hefur einkar góð tök á persónusköpun og gefur góða innsýn í tilfinningalíf persónanna, einkum ungmennanna. Lýsingar á brothættu og flóknu sálarlífi þeirra eru afar næmar og trúverðugar og umkomuleysi þeirra, einkum Eddu, sker í hjartað.

Stærsti hluti sögunnar fjallar um systkinin, uppvöxt þeirra, líf og samskipti – og svo leit Einars að Eddu sem hverfist á endanum um sjálfsleit þeirra beggja og leitina að hamingjunni. Inn í sögu þeirra fléttast svo óhjákvæmilega saga mæðranna, sem og hliðarsaga um föðurinn en hann er afhjúpaður á óvæntan og ömurlegan hátt í lok bókar.

Í frásögn sinni flakkar höfundur frá einni sögu til annarrar og blandar saman ólíkum tímabilum í lífi persónanna sem að mínu mati eykur á spennu sögu sem er grípandi frá fyrstu síðu. Sigríður hefur frábær tök á íslensku máli, textinn er ljóðrænn og fallegur og höfundur missir hvergi marks í einstakri og afar spennandi sögu um litríkar og lifandi persónur.

Hið heilaga orð er margslungin saga þar sem tekist er á við ýmis mál sem snerta okkur í samtímanum og er eitt aðalviðfangsefnið ritmál, lestur, læsi, orð og orðleysi. Í forgrunni höfum við stúlkuna Eddu sem fram á unglingsár þrífst einungis í heimi orða en rífur sig lausa þaðan og finnur sér nýja tilveru í hinum stafræna heimi þar sem allt snýst um að fá sem mesta athygli fljótt og vel. Í stað þess að týna sér í orðum og búa til ævintýraheim sem skemmtir bæði henni og Einari gengur hún inn í heim yfirborðsmennsku þar sem allt snýst um tísku, vinsældir og „læk“. En Edda þarf að leggja mikið á sig til þess að verða gjaldgeng í þessum heimi, „hún hlustar og hrósar og smjaðrar og daðrar og kyssir … og allan tímann er hún svo einmana að hjartað í henni er að bresta.“ (214) Og hún hættir alveg að lesa.

Höfundur Hins heilaga orðs tekur enga beina afstöðu, hvorki til lesturs sem slíks né takmarkaðs ritmáls í heimi samfélagsmiðla, heldur fléttar inn í sögu sína heimspekilegum hugleiðingum um að tilgangur ritmáls sé fyrst og fremst að hneppa fólk í ánauð. (182) Einnig hugleiðingum sem snúast um að hugsanlega sé læsi hættulegur sjúkdómur sem dreifi sér um heilann eins og krabbamein, leggi „undir sig hluta hans sem eiga að sjá um aðra hluti, eins og að þekkja andlit, mynda tengsl við annað fólk, elska.“ (234) Þessar pælingar rugla lesanda dálítið í ríminu, því þótt Edda hafi einangrast á þeim eina almennilega heimavelli sem hún átti, bókunum, farnast henni síst betur í sviðsljósi samfélagsmiðlanna. Þannig dregur höfundur lesanda á tálar þar til hann veit ekki sitt rjúkandi ráð. Og titill bókar er tvíræður. Hið heilaga orð er vitanlega orð guðs, ljós lífsins, eitthvað sem aldrei slokknar. En ein af persónum bókarinnar fær heilablóðfall í miðri útvarpsmessu einmitt þegar presturinn segir: Þannig hljóðar hið heilaga orð. (177) Persónan steypist ofan í niðadimm göng þaðan sem hún á aldrei afturkvæmt, hún skynjar umhverfi en missir málið og þar með hið heilaga orð.

Í þessum tvíræðu pælingum felst enn einn styrkur bókarinnar því lesandinn verður, einn og óstuddur, að taka afstöðu til orðsins.

 

Sigríður Albertsdóttir