Einar Kárason: Sjá dagar koma.
Mál og menning, 2025.
Skáldsaga Einars Kárasonar, Sjá dagar koma er ekki öll þar sem hún sýnist. Söguefnið kann að minna á aðrar nýlegar skáldsögur höfundarins en frásagnartæknin og allar þær brellur sem höfundurinn nýtir sér til að búa þessu efni skáldsagnaform gera hana gerólíka þeim og raunar flestu því sem Einar hefur skrifað fram að þessu.
Síðustu bækur Einars, Stormfuglar (2018), Þung ský (2021) og Opið haf (2022), eru allt stuttar og snarpar skáldsögur sem hverfast um einn sögulegan atburð og tvær þeirra hafa mannraunir á sjó sem meginviðfangsefni. Sjá dagar koma fjallar sannarlega líka um sjómennsku að hluta til, og hefur allan búning sögu sem er byggð á sönnum atburðum líkt og þær sem á undan komu, en þar er sem sagt ekki allt sem sýnist.
Sagan hefst á „Inngangi höfundar“ þar sem Einar tekur sjálfur til máls og er í meira lagi sjálfum sér líkur. Grandalaus lesandi getur vart annað en trúað því að þar sé talað í fyllstu einlægni en í raun og veru hefst þar slunginn blekkingaleikur sem stendur söguna alla.
Sá höfundur sem tekur til máls í innganginum segir frá „forsetatilskipun“ sem honum barst á sínum tíma frá Ólafi Ragnari Grímssyni um að skrifa skáldsögu byggða á sögum af lúðuveiðum amerískra sjómanna út af Vestfjörðum. Einar bregst seint við þessum tilmælum forsetans, sem hann kallar raunar „El Señor Presidente“, en verður þó hugsað til „vinar“ síns og uppáhaldshöfundar, Sturlu Þórðarsonar, sem þótti sér virðing sýnd þegar konungur leitaði til hans um bókarskrif, það verður honum meðal annars tilefni til að takast á við verkefnið. Hér er Einar lifandi kominn og aðdáun hans á Sturlu og verkum hans, þar með talinni sjálfri Brennu-Njáls sögu (ef marka má Einar sjálfan), er löngu kunn.
Inngangurinn hefur það hlutverk að kynna söguna sem á eftir fer, en ekki síður að efla traust okkar lesenda á höfundinum sem leiðir okkur í gegn um hana. Það er líka auðvelt að staðfesta fleira af því sem kemur fram í þessum inngangi en aðdáun Einars á Sturlu Þórðarsyni. Jóhannes Ólafsson, alþingismaður og póstmeistari á Þingeyri var vissulega langafi Einars og sonur hans, Gunnar Andrew Jóhannesson, sem fæðist og hlýtur sitt óvenjulega millinafn í sögunni, var föðurafi Einars rétt eins og greinir frá í formálanum. Fyrir þann sem varði drjúgum hluta æsku- og unglingsára í skátaheimilinu á Ísafirði þar sem mynd af Gunnari Andrew skipaði heiðursess er sérstaklega lítil ástæða til að efast um sannsögli sögumanns, ekki heldur þegar hann segir frá því að í fórum langafa síns hafi fundist kistill með bréfum og dagbókum merktum manni sem hét Salvar Bernódusson. Nafnið er svo rammvestfirskt að slíkur maður hlýtur einhvern tíma að hafa verið uppi á Vestfjörðum. Sá lesandi sem þekkir vel til verka Einars Kárasonar veit líka að hann hefur áður skrifað bækur sem byggðar eru á heimildum, bæði leynt og ljóst.
Í lok inngangsins er sleginn sá varnagli að rétt sé að geta þess að eftirlátnar heimildir Salvars séu ekki samhangandi texti heldur „margt sundurlaust og jafnvel illskiljanlegt“, en höfundur hafi „með venjulegum aðferðum skáldsögunnar og höfunda slíkra sagna spunnið uppúr þessu textann sem hér fer á eftir.“(14)
Það er sem sagt ýmislegt gert til að fá lesandann til að gangast inn á forsendur sögumanns og trúa því að hann sé að lesa sögu sem byggð er á heimildum og „sönnum atburðum“ og að inngangi loknum er líklegt að hann sé tilbúinn að leggja í ferðalag með sögumanni um ævi og störf Salvars.
Það ferðalag hefst í Dýrafirði, á kotbýli sem nefnist Brimnes. Þar hefur Salvar búið hjá vandalausum frá því faðir hans fórst í róðri og er nú, kominn á sautjánda ár, skráður húsmaður. Yfir lífinu í kotinu ríkir deyfð, fólkið sem hefur fóstrað Salvar er ekki vont fólk, líkt og algengt er um húsbændur í íslenskum skáldsögum, en það er furðu áhugalítið og framtakslaust og myndar þannig sterka andstæðu við þá framtíð sem Salvar dreymir um.
Sagan gerir þó stuttan stans í kotinu, Salvar er áræðinn og höfðingjadjarfur og það líður ekki á löngu þar til hann hefur komið sér um borð í amerískt lúðuveiðiskip þar sem hann leysir af sem háseti. Þegar búið er að aflúsa hann og snoða og klæða á viðeigandi hátt er hann orðinn fullgildur háseti undir stjórn Andrews flotaforingja á skonnortunni Cape Ann. Í hönd fer ævintýralegt sumar þar sem Salvar lærir ekki einungis handtökin við lúðuveiðar heldur einnig ensku og ýmsa nýja siði, eins og til dæmis að sitja við borð og borða með hníf og gaffli.
Lúðuveiðin á Vestfjarðamiðum er fyrsta ævintýri Salvars en þau verða fleiri í sögunni. Sagan hefst árið 1895 og henni lýkur vorið 1912. Þetta er tímabil mikilla umskipta og framfara á Íslandi og í heiminum öllum. Á þessum tíma hefja Íslendingar togaraútgerð og stórhuga áform um virkjanir komust á dagskrá – Salvar kemst í snertingu við hvort tveggja. Framfaratrúin nær þó ekki bara til efnislegra gæða og fjárfestinga. Veturinn eftir lúðuvertíðina fær Salvar starf við verslun og hótelrekstur Jóhannesar velgerðarmanns síns og á heimili hans og fjölskyldu hans kynnist hann enn nýjum siðum og fær áhuga á framfaramálum. Úr verður að hann stofnar ungmennafélag ásamt fleira ungu fólki í sveitinni sem hefur meðal annars á stefnuskránni að skipuleggja sundkennslu.
Þátttaka Salvars í endurreisn Íslands varir þó stutt því eftir aðra vertíð á lúðuveiðum verður úr að hann verður samferða Andrew flotaforingja vestur um haf þar sem bíða ný ævintýri. Í Ameríku dvelur Salvar í rúmlega sex ár og fæst við margvísleg störf, hann byrjar sem hafnarverkamaður en gerist einnig skógarhöggsmaður um stund og verður að lokum sterkefnaður eftir að hafa tekið þátt í grefti eftir silfri upp á hlut. Saga Salvars í Vesturheimi er reyfarakennd í meira lagi, hann verður t.d. vitni að því þegar maður dregur upp skammbyssu og skýtur annan til bana á miðri götu og er hengdur í kjölfarið rétt eins og í villta vestrinu – þótt hann sé raunar staddur á austurströndinni. Annað er eftir þessu, Salvar, eða Sal Benson eins og hann kallar sig vestra er iðinn við að sækja drykkjubúllur á þessu tímabili og þá verður líf hans býsna keimlíkt því sem sum okkar þekkja vel úr vestrum af ýmsu tagi; kvikmyndum, bókum og teiknimyndasögum.
Lífi Salvars heima á Íslandi og vestanhafs er lýst í meginfrásögn sögunnar en sú frásögn er fleyguð með innskotum sögumanns og einnig koma við sögu dagbókarbrot og bréf frá Salvari, allt styrkir þetta tilfinningu lesandans fyrir því að hann sé að lesa sögu sem byggir á raunverulegum heimildum.
Einhverjum kynni að þykja þeir atburðir sem hér hefur verið tæpt á nægt efni í langa skáldsögu en saga Salvars er þó ekki nema hálfnuð þegar hann snýr aftur til Íslands með fulla vasa fjár. Síðari hluti bókarinnar er einnig atburðaríkur þótt söguhetjan sé þegar hér er komið sögu fullþroska maður eða þar um bil. Við heimkomuna, árið 1903, gerir hann stuttan stans í höfuðborginni en heldur síðan á heimaslóðir, raunar til Ísafjarðar, þar sem blasir við honum breytt staða:
Það var að sama skapi á allan hátt gleðileg upplifun að koma þarna til bæjarins, því alls staðar fann maður fyrir einhverri bjartsýni, uppgangi og athafnaþrá, sem var ólík því sem ég hafði upplifað á Íslandi áður en ég hélt utan. Bærinn var á skömmum tíma orðinn miklu stærri og fjölmennari en Þingeyri, í rauninni mun líkari Reykjavík hvað það varðaði, og bar öll merki hugsunarháttar hinnar nýju aldar; þarna var verið að stofna skóla, þar voru virk ungmennafélög og íþróttafélög; doðinn, sóðaskapurinn og uppgjöfin sem mér fannst áður hafa einkennt þjóðlífið var greinilega á undanhaldi, að minnsta kosti á Ísafirði. (129–30)
Það er eiginlega óhjákvæmilegt að hugsa til 60 kílóa þríleiks Hallgríms Helgasonar við lestur sögunnar þótt frásagnaraðferðin sé gerólík. Það er fyrst og fremst sögutíminn sem kallar á samanburð. Raunar mætti líka tengja Ísafjarðarkafla sögunnar við þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar sem hófst með Himnaríki og helvíti (2007). Tilvitnunin hér að ofan er til marks um þetta.
Það mætti segja að tengslin við þessa sagnabálka birti tvo þræði í þeirri söguskoðun sem birtist í Sjá dagar koma. Í inngangi höfundar er stuttur kafli þar sem sagt er frá því að hann hafi hitt tvo sagnfræðinga í samkvæmi sem hafi leitt honum fyrir sjónir hversu skakka mynd hann hafi sjálfur haft af hlut ungmennafélaganna í endurreisn íslensks samfélags undir lok nítjándu aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu. Því mikilvægi er komið til skila í sögunni en fleira er þar gert til að endurskoða ýmislegt í Íslandssögunni. Líkt og í bókum Hallgríms er lesandi staddur á umbrotatímum í sögu Íslands þar sem erlend áhrif og erlendir athafnamenn umbreyta þjóðlífinu og Íslendingar hrífast með. Amerískir lúðuveiðarar hafa áhrif á heimaslóðum Salvars en þau áhrif eru skammvinn, enda er veiðin byggð á rányrkju eins og gefið er í skyn í bókinni (65). Á hinn bóginn kemst Salvar í kynni við bæði togaraútgerð og stórtæk virkjanaáform í seinni hluta sögunnar.
Sá Ísafjörður sem birtist í sögunni minnir á hinn bóginn um margt á mynd kaupstaðarins í Himnaríki og helvíti. Það gæti verið fróðlegt að bera saman þá mynd sem birtist af kaupstað í upphafi tuttugustu aldarinnar í þessum nýlegu skáldsögum annars vegar og í eldri skáldsögum hins vegar, til dæmis í verkum Halldórs Laxness, Jóns Trausta og Einars H. Kvaran. Bæði í þríleik Jóns Kalmans og þessari sögu Einars birtist kaupstaður sem er fullur af lífi og nýjungum og sem er í góðum tengslum við umheiminn.
Þótt Salvar sé sterkefnaður og Ísland sé óðum að verða að landi tækifæranna festir hann ekki yndi þar nema í um það bil sex ár. Ein skýringin á því liggur í því hvernig persóna hans er mótuð í sögunni. Þótt hann efnist vel og læri að klæða sig að heldri manna hætti og haga sér í samræmi við það; og jafnvel þótt hann virðist yfir meðallagi klókur í viðskiptum eins og sést bæði af sæmilegu gengi hans í kauphöllinni í New York og í nokkuð djörfu braski sem felst í timburinnflutningi frá Svíþjóð, þá finnur hann sig ekki í viðskiptum eða öðrum störfum sem ekki krefjast líkamlegrar áreynslu. Hann heillast af togurunum, ekki bara vegna þess að þeir afla mikilla tekna heldur ekki síður vegna þess að hann klæjar í lófana að verða einn af hásetunum um borð.
Í síðasta hluta sögunnar liggur leið Salvars til Englands þar sem hann lendir í enn nýjum ævintýrum. Hann kemst í náin kynni við enska yfirstétt og snobbið sem henni fylgir og kynnist líka íslenskum aðalsmanni, sjálfum Einari Benediktssyni. Einar er aukapersóna í sögunni og tekur ekki mikið pláss eins og gagnrýnandi Kiljunnar kvartaði raunar yfir. En það finnst mér á misskilningi byggt. Einar er leikmunur í sögu Salvars eins og næstum allar aðrar persónur sögunnar. Hlutverk hans felst í því að bæta við enn fleiri þáttum nútímans sem Salvar kemst í kynni við, áformum um rafmagnsvirkjanir annars vegar og gullgröft hins vegar. Eftirminnilegasti hlutur Einars í bókinni er þó ekki hann sjálfur sem birtist nokkrum sinnum, heldur miklu frekar kvæði hans „Tínarsmiðjur“ sem Salvar segir að sé „kannski [það] kvæði sem er í allra mestum metum hjá sjálfum mér af heimsins kvæðum.“ (171) Í einum eftirminnilegasta kafla bókarinnar fléttast saman kvæðið sjálft og hrifning Salvars á því, reynsla hans af því að sjá með eigin augum stálsmiðjurnar í Newcastle sem kvæðið fjallar um og uppgjör hans við sjálfan sig og ensku yfirstéttarkonuna sem hann er ástfanginn af. Þar má svo sannarlega segja að „venjulegum aðferðum skáldsögunnar“ sé beitt af mikilli list.
Það sama á raunar við um sögulokin, þau verða ekki upplýst hér en eru enn eitt dæmi um þátt í sögunni sem gerir að verkum að forvitinn lesandi getur auðveldlega gengið úr skugga um að hvorki Salvar Bernódusson né Sal Benson eru til í þeim skjölum sem sögumaðurinn þykist hafa vitneskju sína um líf hans úr.
Salvar segir sögu sína sjálfur í fyrstu persónu að mestu leyti en frásögnin er fleyguð með brotum úr bréfum Salvars til vinar síns sem áður voru nefnd, auk þess sem höfundurinn tekur stöku sinnum til máls og „upplýsir“ lesandann um vinnubrögð sín. Hann segir meðal annars frá því að honum hafi tekist, með „aðstoð internets og upplýsingafræðinga“, (113) að grafa upp nokkrar blaðagreinar sem Salvar hafi sjálfur skrifað. Þessar greinar, líkt og persóna Salvars, eru vitanlega hreinn skáldskapur, enda vitnar sögumaður hvergi til þessara greina.
Það má með hæfilegri einföldun halda því fram að Einar Kárason hafi áður skrifað sögur sem lesandanum var talin trú um að væru hreinn uppspuni þótt þær byggðu á ýmsum mistraustum heimildum. Hér má eiginlega segja að þetta hafi snúist við, sögumaður Sjá dagar koma gerir allt til að láta líta út fyrir að sagan sem hann er að segja sé samkvæmt bestu fáanlegu heimildum á meðan hann skáldar sögu sem er, eins og margar góðar sögulegar skáldsögur, sennileg án þess að vera sönn í neinum venjulegum skilningi þess orðs. Það er ekki síst þetta sem gerir söguna að mikilli og marglaga sagnaskemmtun, hér er að verki brögðóttur höfundur sem hefur fullkomin tök á formi skáldsögunnar, hann skemmtir lesandanum (og sjálfum sér) með ævintýralegri sögu og æsilegum atburðum, en ekki síður með því að leyfa honum að fylgjast með því hvernig hann beitir sínum klækjabrögðum.
Jón Yngvi Jóhannsson