Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

Umbreyting í takt við Schubert

2020-08-07T00:04:56+00:006. ágúst 2020|

Þegar þau gengu inn á sviðið í Tjarnarbíó í gærkvöldi, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Tómas Guðni Eggertsson og Kristrún Hrafnsdóttir, voru þau ekkert áberandi frábrugðin félögunum á upptökunni með Fischer Dieskau og Eschenbach sem ég hafði horft á fyrr um daginn á netinu flytja ljóðaflokkinn um Malarastúlkuna fögru eftir Franz Schubert og Wilhelm Müller. Dieskau og [...]

Pólskt Ísland

2020-03-12T18:43:49+00:0012. mars 2020|

Fjölþjóðlegi hópurinn Reykjavík Ensemble frumsýndi í gær verkið Polishing Iceland undir stjórn Pálínu Jónsdóttur sem líka sá um búninga (þeir voru ansi fínir). Dramatúrg er Angela Rawlings. Heiti verksins er alger snilld, vísar bæði til algengra starfa Pólverja á Íslandi og þess hvað þeim hefur fjölgað hérlendis undanfarin ár. Sýningin er byggð á sjálfsævisögulegri smásögu [...]

Ástríða út yfir gröf og dauða

2020-03-06T13:06:14+00:006. mars 2020|

Í gærkvöldi sá ég túlkun leikhópsins Miðnættis á draugasögunni víðfrægu um Djáknann á Myrká. Handritið og bráðsmellna söngtexta samdi Agnes Wild í samvinnu við leikhópinn, hún leikstýrir einnig en tónlistina samdi Sigrún Harðardóttir. Söguna þekkja auðvitað allir en hún segir frá djákna nokkrum sem vingast við vinnukonu á bæ í næstu sveit. Hann býður henni [...]

Stúlkan frá hafinu

2020-02-29T15:31:28+00:0029. febrúar 2020|

Í fyrrakvöld sá ég einleik Gretu Clough Sæhjarta í Tjarnarbíó. Greta er bandarísk en rekur brúðuleikhúsið Handbendi frá Hvammstanga þar sem hún býr. Sýningin er á ensku. Egill Ingibergsson hefur búið verkinu undurfagra umgjörð sem hann gerði ennþá fegurri með mjúkri lýsingu en Sigurður Líndal Þórisson leikstýrir. Greta situr á sviðinu í hvítum, síðum náttkjól [...]

Þegar Hans klaufi hætti að vera klaufi

2020-01-20T13:10:20+00:0019. janúar 2020|

Leikhópurinn Lotta endurfrumsýndi í gær í Tjarnarbíó Hans klaufa eftir Snæbjörn Ragnarsson og leikhópinn undir stjórn Önnu Bergljótar Thorarensen og Þórunnar Lárusdóttur. Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen og Gunnar Ben tóku þátt í að semja lög og texta með leikhópnum en Þórður Gunnar Þorvaldsson sá um útsetningar. Einföld en þénug leikmyndin var í höndum leikaranna Andreu [...]

Táningar syngja um ást og kynlíf

2020-01-10T16:12:02+00:0010. janúar 2020|

Hópur fimmtán unglinga sem kallar sig Teenage Choir of Love and Sex endurfrumsýndi í gær dans- og söngvasýninguna The Teenage Songbook of Love and Sex í Tjarnarbíó. Hún var áður sýnd á Reykjavík Dance Festival síðastliðið haust þar sem hún vakti talsverða athygli. Enda er þetta bráðfjörug og skemmtileg sýning. Hún er eftir þau Ásrúnu [...]

Gætið að gleðinni

2019-12-05T14:05:33+00:002. desember 2019|

Leikhópurinn Miðnætti sem hefur glatt íslensk börn undanfarin ár (og er nú að teygja sig til barna annarra landa) frumsýndi í gær Jólaævintýri Þorra og Þuru í Tjarnarbíó. Handritið er eftir Agnesi Wild og Sigrúnu Harðardóttur sem einnig semja tónlistina og leika titilhlutverkin, en Sara Marti Guðmundsdóttir leikstýrir. Álfastúlkan Þura (Sigrún) er í heimsókn hjá [...]

Lúserinn snýr aftur

2019-10-20T10:04:12+00:0020. október 2019|

Það er umtalsvert afrek sem Sveinn Ólafur Gunnarsson vinnur á sviði Tjarnarbíós í verkinu Rocky sem Óskabörn ógæfunnar frumsýndu þar á föstudagskvöldið undir stjórn Vignis Rafns Valþórssonar. Sveinn er einn á sviðinu í um það bil 80 mínútur, talar allan tímann, lendir í hörkubardaga við ósýnilegan andstæðing og sýnir sjálfum sér að lokum þá dýpstu [...]

Inspired by Iceland?

2019-09-16T09:12:41+00:0014. september 2019|

Independent Party People / Mynd : Owen Fiene Þau gera grimmt en hollt gys að löndum sínum og sjálfum sér, ungu Sálufélagarnir í verki sínu Independent Party People í Tjarnarbíó (sem er að mestu leikið á íslensku þótt enskan sé annað tungumál verksins). Stofnendur hópsins og forsprakkar sýningarinnar eru þær Nína Hjálmarsdóttir sviðshöfundur [...]

Ef þetta er síðasta nóttin …

2019-05-27T15:41:53+00:0018. maí 2019|

Sviðslistahópurinn Óþekkt frumsýndi í gærkvöldi tón- og leikverkið Iður eftir Gunnar Karel Másson í Tjarnarbíó. Höfundur leikstýrði sjálfur en tónlistarstjóri var Helgi Rafn Ingvarsson. Gunnar Karel vill segja sögu óvenjulegs manns og til þess þarf hann óvenjulegar aðferðir. Maðurinn er Mark Kennedy, breskur lögregluþjónn sem gekk í mótmælahópa í dulargervi, þóttist vera róttækur aðgerðasinni, notaði [...]