Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

Mamma hetja í stríðinu

2019-05-22T10:33:45+00:0017. maí 2019|

Listaháskólinn hefur staðið fyrir mikilli leikhúsveislu undanfarið því útskriftarnemendur á sviðshöfundabraut hafa frumsýnt tíu verk víðsvegar í Reykjavík í maímánuði auk þess sem nýju leikararnir frumsýndu Mutter Courage eftir Bertolt Brecht norður á Akureyri í þýðingu Ólafs Stefánssonar og undir stjórn Mörtu Nordal. Þau frumsýndu svo aftur í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Mér tókst ekki [...]

Skó-fetish

2019-05-27T12:55:39+00:0029. mars 2019|

Mér skilst að það þyki ekkert svo voðalega undarleg árátta að safna skóm og ástæðan sé einkum sú að þetta sé ekki óalgengt. Sjálf hef ég ekki vott af þessari áráttu, á gjarnan eina hversdagsskó og eina spariskó (tvenna ef ég lendi í að kaupa skó sem eru ekki nógu þægilegir til að ganga í) [...]

Leikhús með bíói

2019-03-12T16:31:05+00:002. febrúar 2019|

Í gærkvöldi frumsýndi Smartílab Það sem við gerum í einrúmi í Tjarnarbíó. Verkið fjallar um fjórar manneskjur sem búa einar í einstaklingsíbúðum á sömu hæð í fjölbýlishúsi og hafa lítið samband sín á milli. Þó eru tvær þeirra mæðgin en sonurinn er á stöðugum flótta undan móður sinni – nema þegar hann þarf á einhverju [...]

„Þetta reddast alltaf fyrir rest“

2019-03-12T17:01:35+00:006. janúar 2019|

Það er ys og þys í Ævintýraskóginum í Tjarnarbíó þar sem Leikhópurinn Lotta frumsýndi í dag Rauðhettu sína, tíu árum eftir að hún var fyrst sýnd í Elliðaárdalnum. Enn er Rauðhetta litla (Andrea Ösp Karlsdóttir) að reyna að komast til ömmu sinnar (Anna Bergljót Thorarensen) með kökur og vín en úlfurinn slyngi (Árni Beinteinn Árnason) [...]

Sumir ferlar eru þannig

2019-05-27T15:56:24+00:003. desember 2018|

Lakehouse-hópurinn frumsýndi nýtt íslenskt leikrit eftir splunkunýjan höfund í Tjarnarbíó á föstudagskvöldið, Rejúníon eftir Sóleyju Ómarsdóttur, undir stjórn Árna Kristjánssonar. Umfjöllunarefnið er óvenjulegt, fæðingarþunglyndi og afleiðingar þess, þó var oft hlegið á annarri sýningu sem við sáum í gær, enda margt smátt og stórt á sviðinu sem leikhúsgestir tengdu við. Þó að þetta sé raunsæisverk [...]

Blekkingin afhjúpuð

2019-03-13T16:04:15+00:0029. október 2018|

Það er dýrmætt af Óperudögum í Reykjavík að rifja upp gömul meistaraverk eins og Þrymskviðu, sem ég missti af, því miður, og ekki síður að sýna okkur verk eins og Trouble in Tahiti eftir Leonard Bernstein sem við höfum ekki fengið að sjá hér á landi áður. Þessi stutta háðsópera/-söngleikur frá 1952 var frumsýnd í [...]

Dauðleikinn er uppstillt baðherbergi

2019-03-13T16:50:50+00:004. október 2018|

Leikhópurinn Allir deyja frumsýndi í gærkvöldi Griðastað eftir Matthías Tryggva Haraldsson í Tjarnarbíó. Verkið er að uppruna útskriftarverkefni Matthíasar úr Listaháskólanum og hann leikstýrir sjálfur. Ég varð fyrst vör við Matthías Tryggva fyrir þrem árum á Ungleik í Borgarleikhúsinu, þar átti hann metnaðarfullt verk um heimsendi og sannleikann (hvorki meira né minna) en hafði ekki [...]

Er hlæjandi að þessu?

2019-05-27T15:57:07+00:0024. september 2018|

Það fer ekkert milli mála að efniviður háðsádeilu Guðmundar Brynjólfssonar, Svartlyngs, sem leikfélagið GRAL sýnir nú í Tjarnarbíó, er „Höfum hátt“-hreyfingin sem felldi ríkisstjórn í fyrra. Leikstjóri er líka Bergur Þór Ingólfsson sem stóð í miðju átakanna. Þessi efniskjarni er þó dulinn framan af. Vandræði Svartlyngs ráðherra (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og ráðstýru hans (Sólveig Guðmundsdóttir) [...]

Smánun og niðurlæging á netinu

2019-03-13T17:26:20+00:0026. maí 2018|

Við hjónin erum ekki beinlínis markhópurinn sem nýja íslensk-enska óperan Bergmálsklefinn í Tjarnarbíó miðar að. Það er tón-leikfélagið Aequitas Collective sem að henni stendur í samstarfi við Alþýðuóperuna og hún freistar þess að birta í tali, tónum og á stórum hengitjöldum á sviðinu það áreiti sem nútímamaðurinn verður fyrir. Einn miðill verksins er samskiptafyrirbærið Twitter [...]

Fimm áttavilltar sálir með biskví í boxi

2019-03-15T10:01:59+00:0013. apríl 2018|

Mæðgurnar Auður Ava Ólafsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir leggja saman krafta sína í poppóperunni Vakúm sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi á opnun hátíðarinnar Vorblóts þar á bæ. Hugmyndin er Melkorku og útfærslan hennar og leikhópsins undir leiðsögn eða eftirliti Dóra DNA. Textinn er Auðar Övu en tónlistin er eftir Árna Rúnar Hlöðversson. Magnús [...]