Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

„Glundroðamaskína í fjölkynja líkama“

2019-05-08T10:39:17+00:0015. mars 2018|

Óskabörn ógæfunnar frumsýndu í gærkvöldi leikritið Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl, verk sem hefur verið kynnt á nýstárlegan hátt með eintómum neikvæðum (en einkar skemmtilega orðuðum) lýsingum. Maður kveið eiginlega fyrir að hlusta á textann af ótta við að hlustum manns yrði misboðið á hverri mínútu. Það gerðist ekki og þá er spurningin hvort [...]

Ást á rauðum klæðissúlum

2019-03-15T16:38:45+00:0010. febrúar 2018|

„Einu sinni var stelpa sem var alltaf með tilfinningar. Hún var beinlínis að springa úr tilfinningum, sendi þær í allar áttir og notaði þær mest til að verða skotin í strákum og svoleiðis fuðraði hún upp í ást og losta …“ Þetta er upphaf lokaljóðsins í Galdrabók Ellu Stínu eftir Elísabetu Jökulsdóttur frá 1993 og [...]

Ævintýraskógurinn flytur í hús

2019-03-18T10:57:53+00:007. janúar 2018|

Leikhópurinn Lotta, sem hefur glatt börn og vini þeirra í Elliðaárdalnum á sumrin í áratug, frumsýndi í gær sína fyrstu „Lottusýningu“ frá árinu 2008 í Tjarnarbíó og var geysivel fagnað af troðfullu húsi. Verkið er ekki frumsamin ævintýrablanda eins og hópurinn byrjaði á strax 2009 (segir mér níu ára gamall sérfræðingur minn í Lottu) heldur [...]

Ástin á tímum tölvuleikjanna

2019-05-27T15:58:31+00:002. desember 2017|

Sá skemmtilegi og frumlegi leikhópur Sómi þjóðar frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó nýtt verk, SOL, byggt á sannri sögu. Höfundar eru að venju þeir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson sem leikstýrir að þessu sinni en leikur ekki í sýningunni. Hann á líka búningana og frábæra leikmynd ásamt Valdimar Jóhannssyni en Valdimar hannar ljós ásamt Hafliða [...]

Að fara náttfari um geiminn

2019-05-27T15:58:43+00:0029. október 2017|

Leikhópurinn Gára Hengó frumsýndi í dag barnaleiksýninguna Íó – Undirheimaferð stúlku og hrafns í Tjarnarbíó. Höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, leikstjóri er Aude Busson og Sigríður Sunna Reynisdóttir hannar leikmynd, búninga og brúður. Við komum inn til Hafrúnar þegar hún er háttuð og á að vera farin að sofa. Hún er óróleg, eirir ekki við [...]

Pas de deux

2019-04-30T14:00:54+00:0020. maí 2017|

Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne er vissulega leikrit fyrir tvo leikara en á frumsýningunni í Tjarnarbíó í gærkvöldi fannst mér oft að ég væri að upplifa danssýningu, myndlistargjörning eða tónverk, svo sérkennilega margslungin er þessi sýning sem Árni Kristjánsson stjórnar af öryggi. Árni þýðir verkið líka á þjált talmál þó oft fjalli orðræðan [...]

Ninna fer í sveit

2019-04-30T14:21:57+00:0030. apríl 2017|

Leikhóparnir Miðnætti og Lost Watch frumsýndu í gær brúðuleik sinn Á eigin fótum í Tjarnarbíó. Ég komst ekki þá vegna málþings um Jane Austen en sá aðra sýningu í dag. Þetta er svo til orðlaus sýning enda er ætlunin að ferðast með hana til annarra landa en ekki er hún þögul því í henni er [...]

„Og hér ertu þá aftur … Kvíðinn sjálfur …“

2019-04-30T14:29:34+00:0019. apríl 2017|

Kvíði er merkilegt fyrirbæri, svo nauðsynlegur manneskjunni en þó svo leiðinlegur, og vel gert hjá leikhópnum SmartíLab að búa til um hann leiksýningu sem sýnir, fræðir og örvar til baráttu. Hún heitir Fyrirlestur um eitthvað fallegt og er sýnd í Tjarnarbíó undir stjórn Söru Martí. Á snjöllu sviði Brynju Björnsdóttur er stór málmgrind að kúluhúsi [...]

Sýning gullna kjólsins

2019-04-30T16:20:26+00:0017. mars 2017|

Það hlýjar manni um hjartarætur að horfa á fullorðna karlmenn leika sér eins og börn, sprella – jafnvel kviknaktir – dansa, tala tungum, klæða sig í kjóla, stympast og stríða. Þetta gera þeir félagarnir Rúnar Guðbrandsson leikstjóri („direttore absoluto“) og Árni Pétur Guðjónsson, hans „actoro primo“ í sýningunni Endastöð – Upphaf sem frumsýnd var í [...]

Truntum runtum og tröllin í fjöllunum

2019-05-03T11:27:10+00:005. mars 2017|

Brúðuleikhúsið Handbendi sýndi í dag nýja sýningu sína, Tröll, í Tjarnarbíó. Höfundur, hönnuður, brúðusmiður og annar tveggja leikara í sýningunni er Greta Clough sem einnig rekur leikhúsið á Hvammstanga. Aldís Davíðsdóttir stjórnaði brúðunum með henni en Sigurður Líndal Þórisson leikstýrði. Tröll er því sem næst orðlaus sýning um viðbrögð tröllanna sem voru fyrir í landinu [...]