Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

„Rómantíkin er stækkun á lífinu“

2019-05-03T12:15:41+00:0024. febrúar 2017|

Mér finnst sennilegt að Edda Björg Eyjólfsdóttir hjá Edda Productions hafi ákveðið að setja upp verkið um Þórberg Þórðarson, sem frumsýnt var í Tjarnarbíó í gærkvöldi, vegna þess að hún vilji halda nafni þessa merka höfundar á lofti. Finnist jafnvel ekki nóg að gert til þess. Það er prýðileg ástæða, jafnvel göfug. Aldrei er of [...]

Lífið er línurit

2019-05-03T16:30:19+00:0013. nóvember 2016|

Það er rosalega gaman að horfa og hlusta á strákana í leikhópnum Kriðpleir (eða á maður að segja Kriðplei í þágufalli?) en það er meiri vandi að taka á verkum þeirra og skrifa um þau; einhvern veginn renna þau milli fingra … Kriðpleir frumsýndi nýtt verk, Ævisögu einhvers, í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Það er dálítil [...]

Dóri verður pabbi

2019-05-03T16:35:28+00:006. nóvember 2016|

Leikflokkurinn Pörupiltar treður nú upp með glænýja sýningu í Tjarnarbíó undir heitinu Who´s the Daddy! þótt textinn sé á íslensku (að mestu leyti). Raunar er þetta fræðslukvöld fyrir nýbakaða feður með fyrirlestri sem Dóri Maack (Sólveig Guðmundsdóttir) heldur en hann er einmitt nýlega búinn að eignast barn með sinni ástkæru Öldu Dís. Og það er [...]

… stundum er það líka verst

2019-05-03T17:01:34+00:0022. október 2016|

„Stundum er heima best, en stundum er það líka verst,“ söng Guðmundur Ingi Þorvaldsson háum karlaróm, sitjandi á hlálega litlum stól uppi á barborðinu, þegar gestir komu á frumsýningu Suss! í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Stundum tóku meðleikarar hans undir og smám saman fékk hann fleiri og fleiri frumsýningargesti með sér í viðlagið: „Heimilisofbeldi er mannréttindabrot, [...]

Hetjusaga Sóleyjar Rósar

2019-05-06T16:37:52+00:0023. september 2016|

Ég var búin að lesa mikið hrós um Sóley Rós ræstitækni sem Kvenfélagið Garpur sýnir nú í Tjarnarbíó þegar ég loksins sá hana í gærkvöldi. Þrátt fyrir ítarlegar lýsingar á efni og útliti sýningarinnar í umsögnum um hana tókst henni að koma mér rækilega á óvart. Það er fyrst og fremst leikurunum að þakka og [...]

Leikið á lofti

2019-05-06T16:47:02+00:0019. september 2016|

Írsk-íslensk samvinna ber fagran ávöxt í Fjaðrafoki, leiksýningu fyrir yngstu áhorfendurna eftir Chantal McCormick og Tinnu Grétarsdóttur sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um helgina á vegum Bíbí & blaka og írska sirkusflokksins Fidget Feet. Ég var svo heppin að fá að sjá hana með tveim leikskólabekkjum tveggja til þriggja ára barna núna á mánudagsmorgni og [...]

*Not the singer

2019-05-08T09:53:59+00:001. júlí 2016|

Við fórum aftur í leikhús í gærkvöldi, nú í Tjarnarbíó á The Greatest Show in Iceland starring Björk Guðmundsdóttir – not the singer. Ég hef ekki verið dugleg að sjá sýningar á ensku fyrir erlenda ferðamenn, var þó um daginn búin að ná í miða á sýninguna í Hörpu um Íslendingasögur en varð að senda [...]

Að taka síma í fóstur

2019-05-08T10:03:10+00:0024. maí 2016|

Það er alltaf gaman að fá að kynnast nýjum eða nýlegum erlendum leikverkum eftir okkur áður ókunna höfunda. Ekki er verra þegar eins vel tekst til með uppsetninguna og hjá Charlotte Bøving í gærkvöldi þegar leikritið Sími látins manns var frumsýnt í Tjarnarbíó. Það verk er að vísu að verða tíu ára (frumsýnt í Washington [...]

Hleyptu aðeins þeim rétta inn

2019-05-08T10:50:56+00:006. maí 2016|

Það er greinilegt hvað þeir njóta lífsins, geimfararnir okkar í Sóma þjóðar. Þeir hafa komist lífs af úr dvöl sinni um borð í geimstöðinni Pandóru í hittifyrra og eru nú á leiðinni til plánetunnar KOI í geimfarinu TF-VON. Þegar þeir leggja upp í könnunarleiðangurinn eftir nokkur hundruð ár er jörðin orðin óbyggileg en á KOI [...]

Þyngsta refsingin

2019-05-08T15:44:58+00:001. apríl 2016|

Leikhópurinn Artik frumsýndi nýtt íslenskt verk í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Það heitir Djúp spor og er eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur og Jóel Sæmundsson en Bjartmar Þórðarson leikstýrir. Nafnið á einkar vel við. Verkið snýst um einn atburð, eina örlagastund, sem hefur óafmáanleg áhrif á allt líf allra viðkomandi upp frá því: Atburðurinn markar sem sagt [...]