Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

Við lifum það af

2019-05-08T15:47:34+00:0018. mars 2016|

Tveir ungir leikarar sem saman kalla sig Vandræðaskáld sýndu í gærkvöldi í Tjarnarbíó frumsamið leikverk með söngvum (sem einnig voru frumsamdir, bæði lög og ljóð) sem þau kalla Útför – saga ambáttar og skattsvikara. Þetta voru Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason, bæði menntuð í leiklist í Englandi, og nafnið á stykkinu útskýra þau svona [...]

Aftur og aftur

2019-05-08T16:05:21+00:009. mars 2016|

Nemar við Sviðslistadeild Listaháskólans sýndu í gærkvöldi leikritið Þvott í Tjarnarbíó. Þetta er einþáttungur, einfaldur í ytri gerð en lúmskur. Höfundur og leikstjóri er Matthías Tryggvi Haraldsson sem hefur áður vakið athygli fyrir leiktexta. Bak við stóra frítt standandi glerrúðu á sviðinu stendur Jens (Árni Beinteinn) við vinnu sína. Hann ber sápulög á alla rúðuna [...]

Hin nýja búfjárrækt Íslendinga

2019-05-08T16:47:46+00:0027. febrúar 2016|

Bjartmar Þórðarson leikari og leikstjóri frumsýndi nýtt leikrit í Tjarnarbíó í gær ásamt leikhópnum Þurfandi: svörtu kómedíuna Gripahúsið sem hann leikstýrir sjálfur. Þetta er fyrsta verk hans í atvinnuleikhúsi og lofar nokkuð góðu. Stíllinn rambar á barmi fáránleikans en þegar undir er meinleg árás á lífshætti Íslendinga á það vel við. Samtölin eru ágætlega skrifuð [...]

Við áttum okkur á því

2019-05-08T17:13:36+00:005. febrúar 2016|

Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvers konar fólk fyllir raðir ofstækismanna sem nú vaða uppi víða um lönd og mótmæla móttöku flóttamanna og öðrum skyldum mannúðarmálefnum þá ættuð þið að sjá sýninguna Old Bessastaðir í Tjarnarbíó. Þetta er nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur sem æpir beint inn í samtímaumræðuna og það er Sokkabandið [...]

Stúlka ein

2019-05-08T17:20:04+00:0030. janúar 2016|

Það mátti ímynda sér í upphafi sýningarinnar Samfarir hamfarir í Tjarnarbíó í gærkvöldi að ljósameistari og leikmyndahönnuður væru stoltir af sínu verki, svo lengi fengu marglit ljósin að leika um flókinn vefinn sem myndar sviðið áður en persónur komu á vettvang. Fyrst dettur manni í hug kóngulóarvefur, svo hugsar maður um net sem lokast um [...]

Persónuleikapróf Prómeþeifs

2019-05-10T14:29:16+00:0030. nóvember 2015|

Leikhópurinn Sómi þjóðar spyr spurninga um raunverulega siðmenningu mannkynsins í nýju gagnvirku leikverki í Tjarnarbíó sem er kallað Láttu bara eins og ég sé ekki hérna. Eftir stutta gönguferð utanhúss hefst sýningin á því að Prómeþeifur (Tryggvi Gunnarsson) stígur á stall og flytur innblásna tölu yfir sínum örfáu áheyrendum – því aðeins sex manns komast [...]

Leikur að steinum

2019-05-10T15:08:43+00:0031. október 2015|

Við fórum loksins að sjá Petru, sýningu hópsins Dansaðu fyrir mig, í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Sá sem hefur séð fyrri sýningu hópsins, sem heitir einmitt Dansaðu fyrir mig, veit að það þarf að koma í leikhúsið með ákveðið hugarfar. Ekki búast við neinu sem flokkast undir venjulegt eða hefðbundið. Hópurinn vinnur á einhverjum mörkum veruleika [...]

Heimsendahelt dúkkuheimili

2019-05-10T15:28:10+00:0025. október 2015|

Lokaæfing Svövu Jakobsdóttur, sem Háaloftið sýnir núna í Tjarnarbíó undir stjórn Tinnu Hrafnsdóttur, er hátindurinn á leikritaskrifum höfundar. Glæsilega byggt verk og fantalega vel skrifuð samtöl sem kafa æ dýpra í huga og sálarlíf persónanna um leið og þau afhjúpa þeirra innsta eðli. Og það eðli er ekki einfalt. Verkfræðingurinn Ari (Þorsteinn Bachmann) er hugmyndaríkur [...]

Listamaðurinn býr enn í helli sínum

2019-05-16T15:56:56+00:0018. september 2015|

Kolbeinn Arnbjörnsson skapar flókinn en þó heillegan og trúverðugan karakter í einleiknum Frama eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýndur var á Lókal og Reykjavík Dance Festival en er nú sýndur í Tjarnarbíó á vegum hópsins TAKATAKA. Björn Leó leikstýrir sjálfur og sér líka um tónlistina í sýningunni en sér til aðstoðar við sviðsetninguna hefur hann [...]

Saga pólitísks flóttamanns

2019-05-16T16:51:59+00:0031. ágúst 2015|

Við skrópuðum á Lókal á laugardag en sáum í staðinn þrjár bráðgóðar nýjar íslenskar heimildarmyndir í Bíó Paradís. En í gær hlýddum við á írönsku stúlkuna Nazanin Askari segja frá lífi sínu, landi sínu og kjörum þjóðar sinnar á Lókal, í sýningu sem hún vann með Mörtu Nordal og undir stjórn hennar. Þetta er í [...]