Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

Segðu mér að ástin sé sönn

2019-05-16T17:15:54+00:0025. ágúst 2015|

Eins og leik- og dansáhugamenn vita standa nú yfir tvær samtengdar hátíðir í borginni, leiklistarhátíðin Lókal og danslistahátíðin Reykjavík Dance Festival. Glöggir lesendur mínir hafa líka tekið eftir því að ég hef ekki reynt að skrifa um neinn dansviðburð þótt þar hafi mátt velja á milli margra athyglisverðra sýninga. Þetta stafar ekki af því að [...]

Það dýrmætasta

2019-05-16T17:32:03+00:0029. maí 2015|

Norski leikhópurinn Jo Strømgren kompani sýndi Eldhúsið í Tjarnarbíó í gærdag við góðar undirtektir. Þetta er verk um umburðarlyndi og kærleika og var fyrsta sýning leikhópsins sem ætluð var börnum sérstaklega. Leikararnir, Ívar Örn Sverrisson og Hanne Gjerstad Henrichsen, fluttu textann á íslensku og íslenskuskotinni norsku en þulartexti var á íslensku. Minn sjö ára leikhúsvani [...]

Landamæraerjur

2019-05-16T17:36:25+00:0020. maí 2015|

Þeir sem hafa saknað Ívars Arnar Sverrissonar af íslensku leiksviði ættu að grípa tækifærið í vikunni og sjá sýningarnar tvær sem norski leikhópurinn hans sýnir nú í Tjarnarbíó. Við sáum aðra þeirra í gærkvöldi, dansleiksýninguna The Border, þar sem Ida Holten Worsøe leikur á móti Ívari Erni en höfundur, hönnuður leikmyndar, leikstjóri og danshöfundur er [...]

Vandinn að leika við áhorfendur

2019-05-17T16:16:54+00:0010. apríl 2015|

Spindrift Theatre hefur lagt undir sig Tjarnarbíó í rúma viku fyrir sýningu sína Carroll berserkur sem Bergdís Júlía Jóhannsdóttir leikstýrir, og þegar ég segi „leggja undir sig“ eru það ekki bara orðin tóm. Mig hefði aldrei grunað að það væru svona margar ólíkar vistarverur í því litla húsi. Þetta er svonefnt þátttökuleikhús sem ég hef [...]

Sjónarspilið samtíminn

2019-05-20T17:22:37+00:0014. mars 2015|

Minnisvarði 16 elskenda í Tjarnarbíó er skrautlegur gjörningur með fallegu fólki en sýningin hefur ekki eins skýrt afmarkað efni og tilgang og fyrri sýningar hópsins sem ég hef séð. Satt að segja datt mér í hug í gærkvöldi að ég væri orðin of gömul fyrir þau. Sýningin hefur fengið talsvert mikið hól frá gagnrýnendum, enda [...]

Í afahúsi

2019-05-22T10:53:51+00:001. mars 2015|

Það var snilldarhugmynd hjá Elínu Gunnlaugsdóttur að búa til söngleik utan um ljóð Þórarins Eldjárn í bókinni Gælur, fælur og þvælur og útkoman er bæði skemmtileg og elskuleg eins og gestir í Tjarnarbíó fengu að sjá í gær á sýningunni Björt í sumarhúsi. Ágústa Skúladóttir leikstýrir, Kristína R. Berman sér um leikmynd og búninga og [...]

Hamfaraleikrit fyrir börn

2019-05-22T11:19:57+00:0022. febrúar 2015|

Pétur Eggerz gerir það ekki endasleppt við Skaftárelda og Móðuharðindi. Haustið 2013 frumsýndi hann einleikinn Eldklerkinn um séra Jón Steingrímsson, sem hann byggði á ævisögu Jóns, og núna fyrir viku frumsýndi hann í Tjarnarbíó frumsamda verkið Eldbarnið um örlög lítillar stúlku í þeim voðalegu hamförum. Leikstjóri hans er sem fyrr Sigrún Valbergsdóttir. Eldbarnið [...]

Tvær konur á Akureyri

2019-05-22T11:59:37+00:0010. janúar 2015|

Lísa og Lísa Tjarnarbíó tekur vel á móti Lísu og Lísu frá Akureyri, endurraðar í salnum þannig að áhorfendur sitja allt í kringum þær. Þær eru umkringdar gestum sínum og fer vel á því. Á myndum frá Akureyrarsýningunni má sjá að þessi uppröðun breytir nokkru, hér hafa þær til dæmis enga veggi til [...]

Sómi að Sóma þjóðar

2019-05-22T13:02:05+00:006. desember 2014|

Það er rífandi skemmtileg leiksýning í Tjarnarbíó núna á vegum Sóma þjóðar, stutt og snöfurleg sýning sem heitir eftir hríðskotabyssunum sem bárust til landsins á dögunum: MP5. Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson skrifuðu verkið og leika í því saman auk þess sem þeir leikstýra sér í sameiningu. Við erum stödd úti í geimi eftir um [...]

Þegar Dóri litli var dæmdur vanhæfur Íslendingur

2019-05-22T13:38:47+00:0016. nóvember 2014|

Aldursbilið milli barns og unglings er ekki langt og ekki vel afmarkað en spennandi vegna þess hvað við erum opin, óræð og óráðin einmitt þá. Það er til dæmis þá sem við fáum gjarnan þá þráhyggju að við séum ekki í alvörunni þau sem okkur er sagt að við séum. Við getum ómögulega verið börn [...]