Þú ert hér://Tag: Tjarnarbíó

Líf með silfurskottu

2024-04-05T16:21:18+00:005. apríl 2024|

Gunnar Smári Jóhannesson frumsýndi í gærkvöldi einleik sinn Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíó undir stjórn Tómasar Helga Baldurssonar. Stílhreint leiksviðið sem nýtti rýmið á óvenjulegan hátt hannaði Auður Katrín Víðisdóttir en Íris Rós Ragnhildar sá um tónheiminn sem var óáreitinn. Lýsingin var viðamikil og flókin, breyttist eftir því hvar persónan var stödd í frásögnum [...]

Konur eru konum verstar

2023-02-20T13:13:32+00:0020. febrúar 2023|

Það er líf og fjör í Tjarnarbíó þetta misseri sem oftar og í gærkvöldi sá ég nýjustu sýninguna þar, Samdrætti eftir Mike Bartlett, tveggja kvenna verk undir stjórn Þóru Karítasar Árnadóttur. Kristín Eiríksdóttir þýðir, Sean Mackaout sér um leikmynd og búninga, lýsingin er á hendi Ólafs Ágústs Stefánssonar og Valgeir Sigurðsson sá um tónlist og [...]

„Í góðsemi vegur þar hver annan“

2022-12-30T10:36:38+00:002. desember 2022|

Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason frumsýndi í gærkvöldi leikrit sitt Hið ósagða í Tjarnarbíó, svartan gamanleik sem afhjúpar af miskunnarleysi sjálfselska beiskju nútímafólks. Sjálfur leikur Sigurður eitt hlutverkið í leiknum auk þess sem hann bæði leikstýrir og framleiðir sýninguna. Kvikmyndin sem við sjáum á baktjaldi er eftir hann líka, óteljandi klipp héðan og þaðan í ógnarhraðri framrás [...]

Ástarbréf yfir múrinn

2022-01-21T17:01:35+00:0021. janúar 2022|

Einleikurinn Það sem er, sem María Ellingsen frumsýndi í Tjarnarbíó í gærkvöldi, var upphaflega stutt skáldsaga, bréfasaga, sem þóttist kannski vera sönn: höfundurinn, Peter Asmussen, segist í inngangi hafa „fundið“ bréfin í fórum frænda síns eftir að hann lést. Þessi forsaga er ekki með í leiksýningunni, þar göngum við einfaldlega inn á bréfritarann, konuna Renate [...]

Hin fjögur fræknu

2021-10-16T16:37:46+00:0016. október 2021|

Ég hef ekki fram að þessu talið mig hafa mikinn smekk fyrir uppistand, en sannarlega skemmti ég mér í gærkvöldi i Tjarnarbíó þar sem fjögur frábær ungmenni koma nú fram, hvert með sína sýningu en undir yfirheitinu VHS krefst virðingar. Skammstöfunin stendur fyrir nöfnin þeirra: Vilhelm Neto, Vigdís Hafliðadóttir, Hákon Örn Helgason og Stefán Ingvar [...]

Hvernig er veðrið?

2021-05-19T10:57:42+00:0015. maí 2021|

Sirkuslistahópurinn Hringleikur frumsýndi í gær í Tjarnarbíó sirkuslistaverkið Allra veðra von í Tjarnarbíó í samstarfi við leikhópinn Miðnætti. Úr síðarnefnda hópnum koma m.a. leikstjórinn Agnes Wild, búninga- og sviðsmyndahöfundurinn Eva Björg Harðardóttir og tónlistarstjórinn Sigrún Harðardóttir, en höfundar verksins eru liðsmenn Hringleiks, Bryndís Torfadóttir, Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Meyvant Kvaran, Nick Candy og Thomas Burke. Eins [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]

Töfra töfra

2020-09-28T21:19:31+00:0028. september 2020|

Lalli töframaður (Lárus Blöndal Guðjónsson) kann ekki á klukku. Hann skammar alsaklausa áhorfendur fyrir að koma of snemma á sýninguna, þó að þeir séu á hárréttum tíma, af því að hann á alveg eftir að taka til á sviðinu og undirbúa töfrabrögðin. En við erum sest og ekkert annað í stöðunni en að leyfa okkur [...]

Ekkert er að, ekki neitt

2020-09-07T22:01:55+00:007. september 2020|

Aðstandendur nýju óperunnar, Ekkert er sorglegra en manneskjan, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi, hafa tekið áhorfendum sínum vara fyrir að sjá söguþráð út úr verkinu. Það er „póstdramatískt“, segja þeir Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Adolf Smári Unnarsson leikstjóri og textahöfundur. En það er hrikalega erfitt að byrja ekki undir eins að spinna sögu [...]

Hvað kemur með?

2020-09-07T21:55:19+00:005. september 2020|

Oft hef ég velt því fyrir mér á langri ævi hvað ég myndi hafa með mér ef ég þyrfti skyndilega að flýja að heiman vegna hamfara af einhverju tagi. Valið yrði sjálfsagt erfiðara hjá mér en Alex (Kjartan Darri Kristjánsson / Óðinn Benjamín Munthe), söguhetju barnaleikritsins Tréð eftir Söru Martí Guðmundsdóttur og Agnesi Wild sem [...]