Þú ert hér://Leikdómar

Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.

Ljótar sögur af óþekkum krökkum

2019-08-24T12:24:40+00:0026. mars 2011|

Fyrsta sögubókin sem var gefin út handa íslenskum börnum hét Sumargjöf handa börnum og kom út 1795. Í henni voru margar móralskar sögur af óþekkum börnum sem hefndist grimmilega fyrir að hrekkja, heimta, vera matvönd eða frek, lygin, forvitin, fælin og þver. Bókin var þýdd úr þýsku og það er einmitt uppeldisfræði af hennar tagi ... Lesa meira

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt ... Lesa meira

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst ... Lesa meira

Draumur í dós

2019-08-24T13:25:36+00:009. mars 2011|

Herranótt MR tekur þátt í Shakespeareveislu vetrarins með uppsetningu á Draumi á Jónsmessunótt undir stjórn Gunnars Helgasonar. Sýningin er í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og hefur verið afar vinsæl, jafnvel svo að fólk hefur orðið frá að hverfa. Það má tína til margt til að skýra vinsældirnar. Fyrst það að þetta er eitt alskemmtilegasta leikrit meistarans, ... Lesa meira

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í ... Lesa meira

Líkagrín

2019-08-24T13:47:32+00:0026. febrúar 2011|

Það er þannig með farsa – eins og Nei, ráðherra sem LR frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins – að það má eiginlega ekkert segja um ganginn í þeim. Allt sem gerist verður að koma áhorfendum á óvart, annars gæti hláturinn látið á sér standa. Þetta gerir heldur ekkert til því það sem gerist ... Lesa meira

Þrjár konur í einum karli

2019-08-24T14:00:35+00:0020. febrúar 2011|

Það var mikið húrrað og bravóað í Tjarnarbíó í gærkvöldi að lokinni frumsýningu Árna Péturs Guðjónssonar á einleiknum Svikaranum undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar enda sannarlega mikið sjónarspil sem áhorfendur höfðu orðið vitni að. Árni Pétur hafði þá sungið og dansað, æpt og stunið, skipað og skammað, hlegið og grátið samfellt í fimm korter, líka skipt ... Lesa meira

Balalalalalalalallið – á Bessastöðum

2019-08-24T14:00:23+00:004. febrúar 2011|

Það hefur verið svolítið í tísku undanfarin ár að búa til þjóðhöfðingja í sviðsverkum eða sjónvarpi, ég minnist sérstaklega bandarísku seríunnar West Wing þar sem Martin Sheen bjó til nær fullkominn forseta handa Könum (og sem hafði áreiðanlega áhrif á síðustu forsetakosningar vestra) og dönsku seríunnar Borgen þar sem Sidse Babett Knudsen skapar Dönum nær ... Lesa meira

Vandamál unga fólksins

2019-08-24T14:12:19+00:0028. janúar 2011|

Hugleikur sýnir nú nýtt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur (sem samdi hinn minnisstæða sjónleik Unga menn á uppleið um árið) í húsnæði sínu við Eyjarslóð. Verkið heitir Helgi dauðans og lýsir viðburðaríkri helgi, frá föstudagskvöldi til sunnudags, í lífi hóps háskólanema. Unga fólkið virðist vera að mynda sig til að taka Hugleik yfir því síðasta ... Lesa meira

Minna rugl – meira tempó

2019-08-24T14:29:38+00:0017. janúar 2011|

Ung kona fer í fjarlæga eyjarbyggð til að rannsaka kafla í sögu staðarins og skrifa fræðiritgerð um hann. En hún fær óljós svör við spurningum sínum, allir hafa einhverju að leyna, og loks kemur upp úr dúrnum að hún leikur líka tveim skjöldum sjálf. Þetta efni hljómar kunnuglega, það endurómar spennusögur af ýmsu tagi. Enda ... Lesa meira