Þú ert hér://Leikdómar

Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.

Doktorinn og dansandi daman

2019-08-23T15:49:20+00:0029. ágúst 2011|

Í gær var frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Norðurpólnum: Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig eftir Árna Kristjánsson leikstjóra og leikhópinn Fjöður í hatti. Þar kynnumst við doktor Flosa sem rannsakar hlátur og kitl og „litlu” frænku hans Vönju sem kann ekki að banka og er sennilega með túrett því hún dansar með mikilli sveiflu ... Lesa meira

Gamli maðurinn og risaskjaldbakan

2019-08-23T15:57:11+00:0026. ágúst 2011|

Það er klassískt fyrirbæri að listamannsefni fari út í heim, mennti sig og fullnumi sig í list sinni og snúi svo aftur heim í bæinn sinn, þorpið eða sveitina og sýni hvað þau hafa lært. Flytji með því þakkir sínar til þeirra sem ólu þau upp eða sýndu þeim stuðning um leið og þau segja: ... Lesa meira

Leikur einn

2019-08-23T16:27:03+00:0025. júní 2011|

Bárðar saga Snæfellsáss er safn ævintýralegra sagna af mönnum, tröllum og vættum. Við margar sagnanna kemur frændalið norska hálfrisans Bárðar Dumbssonar sem seinna fékk auknefnið Snæfellsás, en einkum hann sjálfur, Helga dóttir hans og Gestur sonur hans. Úr þessum sagnafans hefur Kári Viðarsson unnið einleikinn Hetju sem hann hefur sýnt á nokkrum stöðum og nú ... Lesa meira

Fyndin, fjörug og fögur

2019-08-23T16:39:41+00:004. júní 2011|

Klúbburinn / Mynd: Matthías Árni Ingimarsson Ég er ekki manneskja til að skrifa af þekkingu um sýninguna á Klúbbnum sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi á vegum Listahátíðar. Þetta var orðlaus sýning, einu mannlegu hljóðin voru stunur, más og dæs, túlkun efnisins fór fram gegnum dans og látbragðsleik og þó að ég ... Lesa meira

Leikhúslaugardagur

2019-08-23T16:44:56+00:008. maí 2011|

Ég sá tvær býsna ólíkar sýningar í gær. Önnur var Eldfærin uppi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu, hin frumsýning leikhópsins Ég og vinir mínir á fjöllistaverkinu Verði þér að góðu í Kassa Þjóðleikhússins. Sú fyrri er eins konar sögustund, þar sem tveir meistarar gamanleiksins láta eitt frægasta ævintýri H.C. Andersens lifna á sviðinu. Sú seinni ... Lesa meira

Hálf öld á Bessastöðum

2019-08-23T16:48:18+00:0028. apríl 2011|

Vesturport fylgir eftir Evrópsku leiklistarverðlaununum sem þau fengu fyrr í þessum mánuði með frumsýningu á Húsmóðurinni, farsakenndum gamanleik sem er sýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins. Salnum er alveg umbylt af þessu tilefni. Nærri salarbreitt sviðið er þar sem sæti áhorfenda eru venjulega og þaðan gengur pallur út og klýfur áhorfendasvæðið snyrtilega í tvennt. Á sviðinu ... Lesa meira

Vandinn að verða afi

2019-08-24T12:01:54+00:0016. apríl 2011|

Maður var farinn að halda að unga fólkið væri búið að taka Hugleik yfir en nú kemur gamla liðið aftur á vettvang og hefur aldrei verið betra. Í leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson sem var frumsýnt í húsnæði Hugleiks á Eyjarslóð í gærkvöldi undir stjórn Þorgeirs Tryggvasonar og Huldu B. Hákonardóttur er Rúnar Lund í ... Lesa meira

Ekkert elsku mamma

2019-08-24T12:32:41+00:0013. apríl 2011|

Krökkunum í Menntaskólanum í Kópavogi tókst merkilega vel að koma áhorfendum í Miðjarðarhafsstemningu í gærkvöldi þegar þau léku og sungu síðustu sýningu á Mamma mia! þó að fátt gæti minnt minna á gríska smáeyju en berangurslegt sviðið í húsnæði Leikfélags Kópavogs. Litleysi umhverfisins bættu þau upp með litríkum búningum, vel spilaðri músík, fjörugum söng og ... Lesa meira

Brestur á með söng

2019-08-24T12:53:13+00:009. apríl 2011|

Það er mótsögn í orðunum sígilt og dægurlag en þó er það svo að fátt er eins sígilt og dægurlag sem hefur lifað af. Það er ekki aðeins sígilt af því að það heldur áfram að vera vel samið, jafnvel snilldarlega gert, heldur getur það á augabragði kallað fram minningar, jafnvel um atvik sem við ... Lesa meira

Vaknandi vitund

2019-08-24T12:36:07+00:001. apríl 2011|

Vorið vaknar eftir þýska leikskáldið Frank Wedekind er hvalreki fyrir ungt áhugafólk um leiklist eins og nemendur í Kvennaskólanum sýna fram á þessa dagana. Leikfélag þeirra Fúría sýnir nú þetta rösklega aldargamla leikrit í skólanum sínum við Þingholtsstræti í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og undir stjórn Kára Viðarssonar og túlkun krakkanna á kvíða, kvöl og alsælu ... Lesa meira