Þú ert hér://Tag: Þorgeir Tryggvason

Arfurinn endurunninn

2026-03-28T11:00:25+00:0028. mars 2026|

Hugleikur er enn kominn á stjá, nú í eigin húsnæði á Langholtsvegi þar sem hann sýnir Fjöllin vakna. Leikhópurinn semur textann í sameiningu ásamt Birgittu Björk Bergsdóttur en leikstjóri er María Björt Ármannsdóttir. Enginn er skráður fyrir leikmynd og búningum en hvort tveggja var grátt með slettum, væntanlega úr graut kerlingar sem hún ætlaði að [...]

Glettur og góðverk á Gjaldeyri

2025-03-24T14:43:11+00:0024. mars 2025|

Áhugaleikfélagið Hugleikur sýnir nú í leikhúsinu Funalind 2 leikritið Góðverkin kalla eftir þá Ljótu hálfvita Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið var upphaflega samið fyrir Leikfélag Akureyrar fyrir rúmum þrjátíu árum og hefur síðan verið sýnt víða um land en er nú í fyrsta sinn í höfuðborginni. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson; María Björt [...]

Tímarnir tvennir

2024-11-21T12:06:07+00:0028. nóvember 2024|

Jón Kalman Stefánsson: Himintungl yfir heimsins ystu brún. Benedikt, 2024. Ég las fyrir hana það sem komið var og sagði henni frá minni óvissu; af öllu því sem sótti að mér. Að það væru svo margar sögur, jafnvel óteljandi, sem vildu komast að. Og láta mig ekki í friði. Engu líkara en þær vilji þröngva [...]

Það er leikur að leika

2023-12-12T14:04:59+00:0011. desember 2023|

Áhugamannaleikfélagið Hugleikur hefur lengi verið meðal minna eftirlætisleikfélaga og þessa dagana er það að halda upp á fertugsafmæli sitt. Eins og það gjöfula félag sem það er gefur það okkur gjöf á afmælinu en væntir einskis á móti annars en að við komum og sjáum afmælissýninguna. Það gerði ég svikalaust í gær, fór í Gamla [...]

Af menningarástandi

2022-05-10T10:06:28+00:0012. maí 2022|

Eiríkur Örn Norðdahl: Einlægur Önd - ævisaga. Mál og menning, 2021. 283 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2022.   I „Ég get aldrei komið aftur á billann, ég er alveg viss um það. Eins og ég hafði nú gaman af því.“ (Dúddi rótari, Með allt á hreinu)   Hvernig er sambandi skáldskapar [...]

Ljósmóðir í Vesturbænum

2021-05-12T22:36:11+00:0012. maí 2021|

Auður Ava Ólafsdóttir. Dýralíf. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 205 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2021.   Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. (Matthías Jochumsson)   Það er óneitanlega ættarsvipur með aðalpersónunum í skáldsögum Auðar Övu Ólafsdóttur. Þær eru verulega færar á sínu sviði, ef [...]

En ég veit það er til annað líf …

2020-09-28T22:57:18+00:0029. september 2020|

Bergþóra Snæbjörnsdóttir: Svínshöfuð. Benedikt, 2019. 236 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2020   I Er maðurinn ekki meira en þetta? Hyggið vel að honum. Þú skuldar orminum ekkert silki, villidýrinu engan feld, sauðinum enga ull, kettinum ekkert des. Hvað? Þrír okkar hérna eru falsaðir. Þú ert hinn rétti sjálfur; tilhafnarlaus maður er [...]

Ó, þetta er indælt stríð

2019-12-02T16:57:17+00:001. desember 2019|

Í pistli sínum í leikskrá Gestagangs segir leikstjórinn, Þorgeir Tryggvason, að áhugaleikfélagið Hugleikur hafi verið stofnað til að „borgarbúum byðust loksins sömu tækifæri til listsköpunar og landsbyggðafólkið hafði notið eins lengi og elstu menn mundu“. Í nýju sýningunni má sjá þessa hugsjón í verki því alls taka þar þátt yfir þrjátíu manns, leikarar og hljómlistarmenn. [...]

Rauntímaraunir

2019-05-16T11:49:48+00:0027. nóvember 2018|

Jónas Reynir Gunnarsson. Millilending. Partus, 2017. 176 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2018 Innkoma Jónasar Reynis Gunnarssonar á skáldabekk 2017 var með eindæmum glæsileg. Leiðarvísir um þorp, lítið ljóðakver sem hverfist um Fellabæ, hinn dálítið óskáldlega heimabæ Jónasar, gaf strax til kynna að þarna væri komin ung rödd með skýrum persónueinkennum og [...]

Fjörugur og fyndinn hráskinnaleikur

2019-03-15T09:56:57+00:0021. apríl 2018|

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi sína fyrstu sýningu í nýju Hugleikshúsi við Langholtsveg í gærkvöldi. Húsið er þekkt sem Fóstbræðraheimilið en gestir Hugleikara ganga inn baka til. Þetta er góður staður og fer vonandi vel um félagið þar. Nýja verkið heitir Hráskinna og er eftir þekkt Hugleiksskáld, Ármann Guðmundsson, Ástu Gísladóttur, Sigríði Báru Steinþórsdóttur og Þorgeir Tryggvason, [...]