Þú ert hér://Tag: Þjóðleikhúsið

Dýrðin í grasinu

2023-06-21T13:37:28+00:0010. júní 2023|

Í gærkvöldi var á stóra sviði Þjóðleikhússins gestasýning frá Stefan Żeromski leikhúsinu í Kielce í Póllandi í tilefni af pólskri menningarhátíð. Þau sýndu leikritið Wiosenna bujność traw (Gróskuna í grasinu) sem byggt er á bíómyndinni Splendor in the Grass (1961) eftir Elia Kazan en leikskáldið William Inge skrifaði handritið. Bíómyndin segir söguna í einfaldri tímaröð [...]

Geðveikt ferðalag

2021-03-25T15:06:11+00:0023. janúar 2021|

Eitt af því sem lengi mun sitja eftir í huganum úr leiksýningunni Vertu úlfur er myndlíking Héðins Unnsteinssonar og Unnar Aspar Stefánsdóttur, höfundar leikverksins og leikstjóra, á lífinu sem ferðalagi á árabáti. Við róum og róum en af því að við snúum baki í áttina sem róið er í vitum við aldrei alveg hvert við [...]

Geimferðalag Völu

2021-01-18T14:13:23+00:0017. janúar 2021|

Leikhópurinn Miðnætti, sem færði okkur hina eftirminnilegu brúðusýningu Á eigin fótum í Tjarnarbíó fyrir fáeinum misserum, frumsýndi í gær sýninguna Geim-mér-ei í Kúlu Þjóðleikhússins. Þetta er brúðusýning þar sem japönsku bunraku-brúðutækninni er beitt eins og í Á eigin fótum. Brúðu- og leikmyndarhönnuðurinn er Eva Björg Harðardóttir, tónlistin er eftir Sigrúnu Harðardóttur og flutt af henni [...]

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

Ég er Kópavogur

2020-09-28T21:18:18+00:0026. september 2020|

Kópavogskrónika – til dóttur minnar með ást og steiktum eftir Kamillu Einarsdóttur er sennilega sérkennilegasta ástarjátning sem ég hef á ævi minni lesið. Og nú bætir Þjóðleikhúsið um betur og leyfir mér að horfa og hlusta á Krónikuna í Kassanum, í uppsetningu Silju Hauksdóttur. Leikgerðin er eftir Silju og aðalleikkonuna, Ilmi Kristjánsdóttur, og tónskáldið Auður [...]

Maður og kona á 21. öldinni

2020-09-22T12:19:11+00:0021. september 2020|

Það er grímuskylda í Þjóðleikhúsinu og mér fannst það talsverð reynsla að sitja heila leiksýningu með grímu fyrir vitunum. En maður gerir hvað sem er, þegjandi og hljóðalaust, ef það stuðlar að því að leikhúsin haldist opin. Vissulega varð mér dálítið þungt um andardráttinn undir sýningunni en kannski var það ekki gríman heldur tilfinningaspennan á [...]

Erum við búin að fá nóg?

2020-02-24T13:50:47+00:0022. febrúar 2020|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu leikritið Útsendingu sem Lee Hall vann upp úr handriti Paddys Chayefsky að kvikmyndinni Network frá 1976. Leikstjóri Útsendingar er Guðjón Davíð Karlsson, Kristján Þórður Hrafnsson þýðir en Egill Eðvarðsson á heiðurinn af viðamikilli og glæsilegri leikmyndinni sem sýnir okkur króka og kima sjónvarpsstöðvar auk einkaheimila. Helga I. Stefánsdóttir [...]

Anna og Hanna á tímaflakki

2020-02-17T09:46:51+00:0015. febrúar 2020|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í Kúlunni Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson undir stjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Þar gefst lítill tími til að halla sér aftur og slaka á því hvað eftir annað þurfa áhorfendur að taka ákvörðun um framhald atburðarásarinnar og sýna vilja sinn með því að styðja á hnapp [...]

Eftir flóðið

2020-01-21T12:02:20+00:0021. janúar 2020|

Eyður / Mynd: Owen Fiene Samkvæmt verki Marmarabarna, Eyðum, sem ég sá á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi, byrjar maðurinn aftur sem safnari eftir Flóðið. Á sviðinu eru fimm mannleg reköld á eyðilegri strönd þegar tjaldið er dregið frá, ekkert er að sjá í umhverfi þeirra nema misjafnlega stórir plastbútar í ýmsum litum. [...]

Ævintýri Djöfulsins í Moskvu

2019-12-27T16:36:07+00:0027. desember 2019|

Rithöfundar eru öfundsverðir, sérstaklega skáldsagnahöfundar. Þeir geta búið til nýjan veruleika og haft hann algerlega eins og þeim sýnist, látið hvað sem er gerast og notið þess. Þetta nýtti rússneska sagnaskáldið Mikhaíl Búlgakov sér rækilega í Meistaranum og Margarítu, en leikgerð Niklas Rådström af þeirri sögu var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir [...]