Þú ert hér://Tag: Norðurpólinn leikhús

Út úr skápnum

2019-06-19T12:17:43+00:0018. maí 2012|

Það fór vel á því að sjá einleikinn Fastur næst á eftir Beðið eftir Godot. Bæði verkin eru dularfull, segja lítið á yfirborðinu en þeim mun meira undir niðri. Munurinn er þó talsverður. Til dæmis er mikið mas í síðarnefnda verkinu en hitt er orðalaust, og Beðið eftir Godot er þrír tímar með hléi en [...]

Ný Lokasenna

2019-08-08T15:35:01+00:0028. mars 2012|

Ég sá í gærkvöldi leikritið Gálmu (= ólag, vandræði) eftir Tryggva Gunnarsson sem leikhópurinn Sómi þjóðar sýnir nú í Norðurpólnum. Tryggvi stýrir verkinu sjálfur. Við erum stödd í íslenskri sveit en óljóst er nákvæmlega hvenær. Málfar persóna er yfirleitt fremur gamaldags og framan af hélt ég að ég væri stödd einhvers staðar um miðja tuttugustu [...]

Doktorinn og dansandi daman

2019-08-23T15:49:20+00:0029. ágúst 2011|

Í gær var frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Norðurpólnum: Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig eftir Árna Kristjánsson leikstjóra og leikhópinn Fjöður í hatti. Þar kynnumst við doktor Flosa sem rannsakar hlátur og kitl og „litlu” frænku hans Vönju sem kann ekki að banka og er sennilega með túrett því hún dansar með mikilli sveiflu [...]

Gamli maðurinn og risaskjaldbakan

2019-08-23T15:57:11+00:0026. ágúst 2011|

Það er klassískt fyrirbæri að listamannsefni fari út í heim, mennti sig og fullnumi sig í list sinni og snúi svo aftur heim í bæinn sinn, þorpið eða sveitina og sýni hvað þau hafa lært. Flytji með því þakkir sínar til þeirra sem ólu þau upp eða sýndu þeim stuðning um leið og þau segja: [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]

Draumur í dós

2019-08-24T13:25:36+00:009. mars 2011|

Herranótt MR tekur þátt í Shakespeareveislu vetrarins með uppsetningu á Draumi á Jónsmessunótt undir stjórn Gunnars Helgasonar. Sýningin er í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og hefur verið afar vinsæl, jafnvel svo að fólk hefur orðið frá að hverfa. Það má tína til margt til að skýra vinsældirnar. Fyrst það að þetta er eitt alskemmtilegasta leikrit meistarans, [...]

Kvenmynd eilífðarinnar

2019-08-24T14:35:34+00:0016. janúar 2011|

Þeir sem sáu rómaða sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar fyrir nokkrum áratugum á viðamiklu, natúralísku sviði Steinþórs Sigurðssonar með hátimbruðum baðstofum, fjöllum sínum og jöklum eiga eflaust bágt með að ímynda sér þetta sama verk á þröngu, nöktu verksmiðjugólfi þar sem engir litir lífga umhverfið og engin hjálpartæki er að sjá önnur en [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]

Einu sinni var prinsessa

2020-01-24T16:44:12+00:0023. maí 2010|

Ung hvítklædd stúlka liggur á hvítum börum. Í kringum hana er allt hvítt, veggirnir klæddir hvítum tjöldum, gólfið þakið hvítu efni, jafnvel fólkið sem situr í kring er klætt í hvíta kyrtla. Umgjörðin um dansverkið “Kyrrju” sem Ragnheiður Bjarnarson samdi og dansar sjálf á Norðurpólnum þessa dagana er bæði fögur og áhrifarík. Upp úr dauðaþögn [...]