Þú ert hér://Tag: Harpa

Um eilífð?

2021-01-27T15:23:55+00:0025. janúar 2021|

Það var fremur dapurlegt að koma í Hörpu í gærkvöldi – þetta glaða hús liggur nú í eins konar dvala. Þó ekki steinsofandi því að ungir kraftar frumsýndu um helgina í Kaldalóni ameríska söngleikinn Fimm ár eftir Jason Robert Brown, tuttugu ára gamlan söngleik sem hefur verið sýndur víða um heim. Satt að segja dálítið [...]

Fjölskylduskemmtun

2019-03-12T17:21:54+00:0030. nóvember 2018|

Fyrsta verk Íslensku óperunnar á nýju leikári er sýning fyrir alla fjölskylduna og á annarri sýningu í gær var fólk á öllum aldri, allt frá litlum börnum upp í afa og ömmur. Þetta er vel til fundið og full ástæða til að hvetja óperuunnendur til að nota tækifærið og kynna listina fyrir börnum og barnabörnum. [...]

Sungið um ástir og grimmileg örlög

2019-03-18T11:15:15+00:006. nóvember 2017|

Efnið í óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini virðist mun nær manni núna en áður; kannski vegna þess hvað ofbeldi gegn minni máttar hefur verið mikið í umræðunni. Greg Eldridge bendir líka á í grein í leikskrá að pólitísk ólga í heiminum núna minni á aðstæðurnar í óperunni. Í Toscu er listmálari fangelsaður fyrir að leyna [...]

Tvíraddað

2019-05-03T13:45:02+00:0010. febrúar 2017|

Það er rúm hálf öld síðan ég sá fyrst leikverk þar sem aðalpersónan var tvöföld á sviðinu og talaði við sjálfa sig. Það var fyndni harmleikurinn Philadelphia, Here I Come eftir Írann Brian Friel í Gaiety leikhúsinu í Dublin. Minnisstæðast slíkra verka er Ofvitinn hans Kjartans Ragnarssonar í Iðnó þar sem tveir leikarar á ólíkum [...]

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-03T17:02:19+00:0023. október 2016|

Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi glæsilega uppsetningu Benjamins Levy hljómsveitarstjóra og Anthonys Pilavachi leikstjóra á óperunni Évgení Onegin eftir Tchaikovsky. Þetta er upphaflega söguljóð eftir þjóðskáld Rússa, Alexander Púshkin (1799–1837), sem var geysilega vinsælt meðal landa hans en lifir utan Rússlands fyrst og fremst í þeirri mynd sem Tchaikovsky gaf því. Texti óperunnar er eftir [...]

Sjá hér hve illan endi …

2019-05-08T16:21:43+00:0028. febrúar 2016|

Það var mikil hátíð í Íslensku óperunni í gærkvöldi þegar Benjamin Levy hljómsveitarstjóri og Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri frumsýndu uppsetningu sína á Don Giovanni eftir W. A. Mozart og textahöfundinn Lorenzo da Ponte. Snorri Freyr Hilmarsson gerði smekklega leikmyndina og tókst furðuvel að stækka sviðið með háum baktjöldum og hallandi gólfi. Á hvort tveggja var listilega [...]

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Tálkvendið og hermaðurinn

2019-06-12T14:20:17+00:0020. október 2013|

Önnur gamalkunn saga var frumsýnd í óperuformi í Eldborg Hörpu í gærkvöldi, Carmen eftir Georges Bizet sem frumflutt var í París 1875 – við lítinn fögnuð almennra áheyrenda, skilst mér. Fólki fannst ástæðulaust að setja svona pakk á svið – verkalýð, portkonur og hermenn. Síðan hefur þetta orðið ein allra vinsælasta ópera í heimi og [...]

Bræður munu berjast …

2019-06-18T18:02:20+00:005. nóvember 2012|

Það er engu logið á uppsetningu Íslensku óperunnar á Il trovatore Verdis í Eldborgarsal Hörpu. Hljómsveitin leikur skínandi vel undir stjórn Carol I. Crawford, einsöngvararnir syngja hver öðrum betur og kórinn er flottur undir stjórn Halldórs E. Laxness. En eiginlega fannst mér sviðið hans Gretars Reynissonar stela senunni hvað eftir annað í göldróttri lýsingu Björns [...]

Ósköp er litla höndin þín köld

2019-08-08T16:19:49+00:0018. mars 2012|

Óperuleikstjórinn Jamie Hayes setti upp nokkrar sýningar hjá Íslensku óperunni í Gamla bíó og það er greinilegt á nýrri uppsetningu hans á La Bohème í Eldborgarsal Hörpu að hann hefur verið orðinn ansi leiður á þrengslunum á gamla staðnum. Þeir sem sáu uppsetningu hans á La Traviata fyrir um fjórum árum kannast við aðferðir hans [...]