Þú ert hér://Tag: Björn Thors

Tekist á í viðtengingarhætti

2026-10-16T14:18:52+00:0023. september 2026|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í síðustu viku í Kassanum nýtt verk eftir Kriðpleirsliðann Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli. Björn Thors leikstýrir en leikmynd og búninga sjá þær um Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir. Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu, Margrét Bjarnadóttir um sviðshreyfingar,  tónskáld  er Örvar Smárason en þeir Þóroddur Ingvarsson skapa saman sérkennilegan og [...]

Tvær fiðlur – tvær stúlkur

2026-02-08T12:52:05+00:008. febrúar 2026|

Upphafsatriðið í sýningu Unnar Aspar Stefánsdóttur á eigin leikgerð af Sölku Völku eftir Halldór Laxness í Landnámssetrinu í Borgarnesi var bæði frumlegt og áhrifaríkt. Hún lék af bandi flutning Halldórs sjálfs á texta sem að vísu fjallaði um tónlist J.S Bachs en mér fannst hann tengjast beint því sem framundan var: að einn leikari drægi [...]

Átök um íbúð 10B

2025-10-18T15:43:57+00:0018. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikritið Íbúð 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson undir stjórn Baltasars Kormáks. Gyllta og glæsta leikmynd hannaði Ilmur Stefánsdóttir; búninga hannaði Sunneva Ása Weisshappel en lýsingu Björn Bergsteinn Guðmundsson; tónlistina átti Gísli Galdur Þorgeirsson og sá líka um hljóðhönnun með Aroni Þór Arnarssyni. Ásta Jónína Arnardóttir sá um myndbandshönnun. Við erum stödd [...]

Böl barnleysisins

2024-12-29T15:50:52+00:0027. desember 2024|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikverkið Yermu sem Simon Stone byggir á samnefndu leikriti Federico Garcia Lorca frá 1934. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir; glæsileg leikmyndin er verk Barkar Jónssonar; Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir sá um búninga en Garðar Borgþórsson um lýsingu. Mikið reyndi á þýðingu Júlíu Margrétar Einarsdóttur í hröðum, orðmörgum samtölum en hún hljómaði alltaf eðlilega [...]

Að skilja er að fyrirgefa

2024-02-16T12:06:46+00:0016. febrúar 2024|

Einleikurinn Saknaðarilmur var frumsýndur í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Höfundur og leikari er Unnur Ösp Stefánsdóttir en texta verksins byggir hún á bókum Elísabetar Jökulsdóttur, verðlaunaverkinu Aprílsólarkulda (2020) og Saknaðarilmi (2022). Björn Thors leikstýrir konu sinni af hlýju og innsæi; meistaralega leikmyndina hannaði Elín Hansdóttir og lýsingin sem lék sér svo listilega að henni er [...]

Er ímynd raunveruleiki?

2022-10-12T15:36:20+00:009. október 2022|

Það hafa heldur betur orðið umskipti á Kassa Þjóðleikhússins. Þar hafa veggir verið fjarlægðir í anddyri og rýmið opnað þannig að maður trúði varla sínum eigin augum. Ekki spillir skemmtileg notkun rimla úr Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar eins og þetta hús hét á sinni tíð. Það fór því einkar vel á því að fyrsta frumsýning eftir [...]

Örleikrit hversdagsins

2022-05-17T09:45:29+00:007. apríl 2022|

Það er engu logið á Ást og upplýsingar, uppsetningu Þjóðleikhússins á verki Caryl Churchill í Kassanum. Þetta er ljómandi skemmtilegt verk og vel unnin sýning hjá Unu Þorleifsdóttur leikstjóra. Einfalt en spennandi svið hannar Daniel Angermayr og Eva Signý Berger sér um búningana sem urðu æ litríkari og fjörlegri því lengra sem leið á sýninguna. [...]

Geðveikt ferðalag

2021-03-25T15:06:11+00:0023. janúar 2021|

Eitt af því sem lengi mun sitja eftir í huganum úr leiksýningunni Vertu úlfur er myndlíking Héðins Unnsteinssonar og Unnar Aspar Stefánsdóttur, höfundar leikverksins og leikstjóra, á lífinu sem ferðalagi á árabáti. Við róum og róum en af því að við snúum baki í áttina sem róið er í vitum við aldrei alveg hvert við [...]

Norðanstúlka kemur suður

2019-11-15T11:51:16+00:0015. nóvember 2019|

Ég hef alltaf haldið upp á Atómstöðina, kannski vegna þess að ég var norðanstúlka eins og Ugla og mér var strítt svolítið á því í skólanum mínum fyrir sunnan. Þetta er skemmtilega galin saga í stíl, Halldór Laxness leikur sér að því að sjá höfuðborgina með augum lítt reyndrar rúmlega tvítugrar stúlku norðan úr afdal [...]

„Við viljum sjá heiminn brenna“

2019-04-29T14:02:59+00:0029. apríl 2019|

Ærslaleikurinn Bæng! eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg var frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudagskvöldið í prýðilegri þýðingu Hafliða Arngrímssonar, og ég sá aðra sýningu í gærkvöldi. Það sem ég hef áður séð eftir Marius hefur vissulega verið ærslakennt og fyndið en líka absúrd og vakið hugmyndir og hugrenningatengsl í allar áttir. En Bæng! [...]