Þú ert hér://Tag: Árni Kristjánsson

Skuldadagar

2022-09-30T14:25:08+00:0020. ágúst 2022|

Það er býsna djarft að skíra óperu eftir þögninni, fátt virðist óskyldara en þær tvær. En þetta gera Árni Kristjánsson handritshöfundur og Helgi Rafn Ingvarsson tónskáld því ný ópera þeirra, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundanna og á vegum sviðslistahópsins Hófstillt og ástríðufullt, heitir einfaldlega Þögnin. Það er ekki bókstafleg þögn [...]

Getur þetta gerst hér?

2019-03-13T17:11:18+00:004. september 2018|

Hannesarholt troðfylltist óvænt í gærkvöldi þegar nýtt verk var leiklesið þar, Fáir, fátækir, smáir, eftir höfund sem ekki vildi láta nafns síns getið. Árni Kristjánsson leikstýrði og hafði hóað saman stórum hópi fagmanna til að flytja verkið. Helga Björnsdóttir sá um útlit sýningarinnar og Guðni Franzson um tónlistina. Fólk sem ólst upp við útvarpsleikritin sem [...]

Pas de deux

2019-04-30T14:00:54+00:0020. maí 2017|

Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne er vissulega leikrit fyrir tvo leikara en á frumsýningunni í Tjarnarbíó í gærkvöldi fannst mér oft að ég væri að upplifa danssýningu, myndlistargjörning eða tónverk, svo sérkennilega margslungin er þessi sýning sem Árni Kristjánsson stjórnar af öryggi. Árni þýðir verkið líka á þjált talmál þó oft fjalli orðræðan [...]

Kjötkveðjuhátíð á Rifi

2019-05-03T15:50:53+00:004. janúar 2017|

Það er einkar viðeigandi að setja upp leiksýningu byggða á skáldsögu franska rithöfundarins Jules Verne um leyndardóma Snæfellsjökuls í Frystiklefanum á Rifi undir Jökli. Journey to the Center of the Earth var frumsýnd milli jóla og nýárs undir stjórn Árna Kristjánssonar og við fórum í gær í kyrru og fallegu vetrarveðri að sjá hana. Leikið [...]

… en maður verður að rækta garðinn sinn

2019-05-20T17:29:16+00:0015. mars 2015|

Birtíngur eftir franska heimspekinginn Voltaire (útg. 1759) er eitt frægasta verk franskra bókmennta og við vorum svo heppin hér á landi að Halldór Laxness eyddi tólf dögum af lífi sínu árið 1945 í að snara henni. Þýðingin ber þessum vinnuhraða nokkurt vitni en sennilega græðir verkið fremur en það tapar á hraðanum. Það er eitthvert [...]

Með staðfestunni hefst það

2019-05-20T16:51:38+00:003. mars 2015|

Finnbogi Þorkell Jónsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínu fyrsta leikverki, Þú kemst þinn veg, sem var frumsýnt á sunnudagskvöldið í Norræna húsinu undir stjórn Árna Kristjánssonar. Verkið byggir Finnbogi á samtölum við Garðar Sölva Helgason sem hefur glímt við geðklofa frá unga aldri en hefur þróað sitt eigið umbunarkerfi [...]

Út úr skápnum

2019-06-19T12:17:43+00:0018. maí 2012|

Það fór vel á því að sjá einleikinn Fastur næst á eftir Beðið eftir Godot. Bæði verkin eru dularfull, segja lítið á yfirborðinu en þeim mun meira undir niðri. Munurinn er þó talsverður. Til dæmis er mikið mas í síðarnefnda verkinu en hitt er orðalaust, og Beðið eftir Godot er þrír tímar með hléi en [...]

Doktorinn og dansandi daman

2019-08-23T15:49:20+00:0029. ágúst 2011|

Í gær var frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Norðurpólnum: Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig eftir Árna Kristjánsson leikstjóra og leikhópinn Fjöður í hatti. Þar kynnumst við doktor Flosa sem rannsakar hlátur og kitl og „litlu” frænku hans Vönju sem kann ekki að banka og er sennilega með túrett því hún dansar með mikilli sveiflu [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]

Hin máttuga sagnalist

2020-01-24T15:39:14+00:0016. ágúst 2010|

Það var merkileg sögustund sem áhorfendur áttu með Árna Kristjánssyni á ArtFart síðdegis í dag í Útgerðinni við Grandagarð. Hann notaði enga leikmuni nema einn stól, engan búning eða gervi, bara eigin rödd og líkama. Þar að auki var hann að segja okkur sögu sem hann hafði upplifað sjálfur í fyrra þegar hann vann á [...]