Þú ert hér://2026

Harmur manneskjunnar

2026-03-14T10:46:42+00:0014. mars 2026|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á Nýja sviði leikritið Mömmó eftir bandaríska leikskáldið Paulu Vogel. Þjála og munntama þýðingu gerir Ingunn Snædal en Agnar Jón Egilsson leikstýrir. Leikmynd og búninga hannar Guðný Hrund Sigurðardóttir en Þorbjörn Steingrímsson sér um hljóðhönnun og tónlist. Lýsingin var hönnuð af Pálma Jónssyni sem til dæmis beitti henni af góðri ... Lesa meira

Gullin húð og hrokkið hár

2026-03-13T09:31:32+00:0013. mars 2026|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviðinu Gæðablóð eftir Davíð Þór Katrínarson, Jónmund Grétarsson og Unnstein Manuel Stefánsson, sem allir leika í sýningunni, og Þóru Karítas Árnadóttur sem líka leikstýrir. Ingibjörg Jara Sigurðardóttir skapar verkinu litríka umgjörð með skemmtilega gamaldags baktjaldi og klæðir ungu mennina í jakkaföt í mjög afgerandi litum. Tónlistin er eftir Kristofer ... Lesa meira

Hrista, skvetta, fljúga

2026-02-28T14:24:11+00:0028. febrúar 2026|

Sviðslistahópurinn Miðnætti frumsýndi í morgun í samstarfi við Þjóðleikhúsið verk sitt Hreiðrið sem ætlað er börnum frá þriggja mánaða aldri til þriggja ára plús. Verkið er sýnt á Litla sviðinu undir Kassanum og er að mestu setið á gólfi þótt einnig séu stólar meðfram veggjum fyrir þá sem vilja. Agnes Wild leikstýrir, Leikmynd, búninga og ... Lesa meira

Allt er alltaf alls staðar í allra besta lagi?

2026-02-28T14:10:15+00:0027. febrúar 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi í Samkomuhúsinu í höfuðstað Norðurlands leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar af Birtíngi Voltaires undir leikstjórn sama. Birtíng þýddi á sínum tíma Halldór Laxness (1945). Snjalla og marghliða leikmynd hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir; Björg Marta Gunnarsdóttir skapaði endalausa gnótt bráðskemmtilegra búninga en Petr Hloušek teiknaði lifandi myndir á baktjaldið þegar mikið lá ... Lesa meira

Söguleg vandræði: samtal um skáldskap

2026-02-19T13:35:44+00:0019. febrúar 2026|

Sigrún Pálsdóttir, Blái pardusinn - hljóðbók Mál og menning 2025 Sagnfræði og skáldskapur hafa átt í margvíslegum tengslum í gegnum aldirnar og þeirra samband gjarnan mótast af viðtekinni vísindalegri hugsun hvers tíma. Bilið á milli þeirra breikkaði við vísindavæðingu húmanískra greina á 18. og 19. öld og svo mætti segja að þær hafi nálgast aftur ... Lesa meira

„Þar sem kærleikur milli manna og dýra ríkir“

2026-02-19T13:50:32+00:0019. febrúar 2026|

Nína Ólafsdóttir: Þú sem ert á jörðu Mál og menning, 2025. Voru þessar vesælu verur, sem gengu þreyttar hjá í sorglegri fylkingu, einu leifar mannkyns sem, eins og flóð, hafði eitt sinn breiðst út og tekið yfir alla jörðina? Það hafði fallið hreint og óhindrað frá fjallsupptökum sínum í Ararat og vaxið úr litlum læk ... Lesa meira

Velheppnað prakkarastrik

2026-02-19T11:37:34+00:0019. febrúar 2026|

  Fríða Ísberg: Huldukonan Benedikt. 2025 „Húslestur tíðkaðist í samkomuhúsinu á kvöldin; þjóðsögur, draugasögur, Íslendingasögur. Ingibjörg hékk á hverju orði og hana hryllti við og hana þyrsti í meira. Þetta var afþreying, í orðsins fyllstu merkingu, leið þeirra allra til að þreyja veturinn, þau þröngu göng.“ (30) Þessa tilvitnun má finna í nýjustu skáldsögu Fríðu ... Lesa meira

Listin að þræða einstigi

2026-02-19T11:37:25+00:0019. febrúar 2026|

Oddný Eir Ævarsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Snæfríð Þorsteins: Bláleiðir. Eirormur, 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2026: Síðastliðinn áratug hefur orðið mikil aukning í útgáfu yfirlitsrita um verk núlifandi myndlistarkvenna á Íslandi. Listasafn Reykjavíkur, undir stjórn Ólafar K. Sigurðardóttur, hefur þar staðið fremst í flokki og gefið út bækur um Önnu Líndal, Borghildi Óskarsdóttur, ... Lesa meira

„Dauðinn trompar allt“

2026-02-14T12:45:28+00:0014. febrúar 2026|

Kammeróperan frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó „eina af vinsælustu óperum sögunnar í glænýjum búning“ eins og segir í kynningartexta, nefnilega Carmen eftir Georges Bizet í kammerútsetningu Tscho Theissing. Adolf Smári Unnarsson leikstýrir og þýðir líka texta Meilhacs og Halévys en söguna skrifaði Prosper Mérimée upphaflega. Andri Unnarson skapar hugkvæma umgerð utan um óperuna og hannar ... Lesa meira

Tvær fiðlur – tvær stúlkur

2026-02-08T12:52:05+00:008. febrúar 2026|

Upphafsatriðið í sýningu Unnar Aspar Stefánsdóttur á eigin leikgerð af Sölku Völku eftir Halldór Laxness í Landnámssetrinu í Borgarnesi var bæði frumlegt og áhrifaríkt. Hún lék af bandi flutning Halldórs sjálfs á texta sem að vísu fjallaði um tónlist J.S Bachs en mér fannst hann tengjast beint því sem framundan var: að einn leikari drægi ... Lesa meira