Þú ert hér://2025

Apinn Lilli kemur í Tjarnarbíó

2026-01-09T17:20:41+00:0029. desember 2025|

Brúðubíllinn frumsýndi sýningu sína í Tjarnarbíó í gærdag, í fyrsta sinn innanhúss. Umsjónarmaður hans er Hörður Bent Steffensen en handritið er sem fyrr eftir Helgu Steffensen. Hún gerir líka brúður og búninga fyrir utan búning trúðsins Dúsks sem er eftir Lenu Dís Jónsdóttur. Lárus Blöndal (Lalli töframaður) leikur með Herði á sviðinu en raddir af ... Lesa meira

Vítahringur hefndarinnar

2025-12-27T16:51:27+00:0027. desember 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum endurgerð leikstjórans Benedicts Andrews á Óresteiu, þríleik gríska leikskáldsins Æskilosar (525 – 456 f.Kr). Kristín Eiríksdóttir hefur unnið vandaða þýðingu sem flæðir einstaklega vel og kemur skýrt til skila ólgandi og oft andstæðum tilfinningum og skilaboðum textans auk hnyttinna skírskotana til samtímans. Þó leiddist mér ákaflega klifun á blótsyrðinu ... Lesa meira

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur ... Lesa meira

Tragíkómískur sjálfshjálparsöngleikur

2025-11-28T13:00:03+00:0028. nóvember 2025|

Þær  Sigríður Eir Zophoníasardóttir (Sigga) og Vala Höskuldsdóttir, meðlimir Hljómsveitarinnar Evu, frumsýndu fyrir einum sex vikum eða svo sýninguna Kosmískt Skítamix í Tjarnarbíó og ég sá hana loksins í gærkvöldi ásamt fullu húsi af glöðum gestum. Enginn leikstjóri er nafngreindur (enda höfundar báðir útskrifaðir af sviðshöfundabraut LHÍ) en dramaturg er Egill Andrason. Smekklega bjarta leikmynd og ... Lesa meira

Fróðleg samantekt um líf Einars Jónssonar

2025-11-25T10:37:54+00:0027. nóvember 2025|

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir: Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum Forlagið, 2024 Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2025: Bókin Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum er skrifuð af Margréti Tryggvadóttur, með myndlýsingum eftir Lindu Ólafsdóttur og kom út fyrir jólin 2024, á hundrað ára afmælisári Listasafns Einars Jónssonar. ... Lesa meira

Fusion

2025-11-25T10:02:59+00:0027. nóvember 2025|

Brynja Hjálmsdóttir: Friðsemd Benedikt, 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2025: Eitt af því sem einkennir veitingaflóruna í Reykjavík þessi misserin, rétt eins og í flestum öðrum evrópskum, borgum eru sífelldar tilraunir til að búa til nýjar og óvæntar samsetningar þar sem matargerðarhefðum ólíkra landa eða landsvæða er blandað saman. Í borginni má ... Lesa meira

„Flest orkar tvímælis þá gert er“

2025-11-25T10:13:33+00:0027. nóvember 2025|

Þröstur Ólafsson: Horfinn heimur Mál og menning 2023 Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2025: Fyrir framan mig liggur bók Þrastar Ólafssonar (f. 1939), Horfinn heimur: minningaglefsur (2023), sem er – og er ekki – ævisaga höfundar. Þröstur hefur komið víða við á löngum ferli í bæði menningarlífi og stjórnmálum. Hann er hagfræðingur að ... Lesa meira

Að finna hinn sanna jólaanda

2025-11-22T18:45:08+00:0022. nóvember 2025|

Matthías Tryggvi Haraldsson og Melkorka Tekla Ólafsdóttir hafa samið leiksýningu sérstaklega ætlaða til að kynna töfra leikhússins fyrir ungum leikhúsgestum. Það heitir Jólagjöf Skruggu og var frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins fyrir viku. Leikstjóri er Guðjón Davíð Karlsson; María Th. Ólafsdóttir hannar búninga og fallega leikmynd sem býr yfir ýmsum leyndardómum; Friðrik Margrétar-Guðmundsson sér um ... Lesa meira

Illur fengur illa forgengur

2025-11-16T12:21:29+00:0016. nóvember 2025|

Ég ætla ekkert að játa á mig fávisku í dag, bara lýsa því yfir að ég lærði heila glás í gærkvöldi á snarpri yfirferð Hunds í óskilum og Kötlu Margrétar Þorgeirsdóttur yfir Niflungahringinn, óperurnar fjórar sem Richard Wagner samdi upp úr norrænum sagnaarfi, Rínargullið, Valkyrjuna, Sigurð Fáfnisbana og Ragnarök. Þær segja söguna af bölvun gullsins ... Lesa meira

Þar er efinn

2025-11-01T12:19:53+00:001. nóvember 2025|

Ætli sé ekki affarasælast að byrja á uppgjöf, kannski líka í anda Hamlets. Byrja á að játa að í sýningunni sem var frumsýnd í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins var margt sem ég skildi ekki – vísanir í menningu sem er mér framandi og sem mér fundust truflandi. En núna þegar játningin er frá get ... Lesa meira