Þú ert hér://2025

Átök um íbúð 10B

2025-10-18T15:43:57+00:0018. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikritið Íbúð 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson undir stjórn Baltasars Kormáks. Gyllta og glæsta leikmynd hannaði Ilmur Stefánsdóttir; búninga hannaði Sunneva Ása Weisshappel en lýsingu Björn Bergsteinn Guðmundsson; tónlistina átti Gísli Galdur Þorgeirsson og sá líka um hljóðhönnun með Aroni Þór Arnarssyni. Ásta Jónína Arnardóttir sá um myndbandshönnun. Við erum stödd ... Lesa meira

Var lífið betra þá?

2025-10-13T12:25:16+00:0013. október 2025|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á laugardagskvöldið í Samkomuhúsinu gamanleikinn Elskan, er ég heima? (Home, I‘m Darling) eftir enska leikskáldið Lauru Wade í ágætri þýðingu Vilhjálms B. Bragasonar. Leikstjóri er Ilmur Kristjánsdóttir. Börkur Jónsson hannar leikmyndina en Björg María Gunnarsdóttir búninga, Sigurjón Kjartansson sér um tónlist en Gunnar Sigurbjörnsson um hljóð og Lárus Heiðar Sveinsson um lýsingu. ... Lesa meira

Ef þið sjáið eitthvað, segið eitthvað

2025-10-10T15:32:19+00:0010. október 2025|

Leikhópurinn Stertabenda sýnir nú á Litla sviði Borgarleikhússins eigið sköpunarverk, Skammarþríhyrninginn. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir, stílhreina og fallega leikmynd og marga stórkostlega búninga hannaði Eva Signý Berger. Dulúðug og stundum ógnandi tónlistin var úr smiðju Axels Inga Árnasonar og Egils Andrasonar sem einnig sá um hljóðmynd. Ólafur Ágúst Stefánsson hannaði lýsingu, Cameron Corbett skapaði ... Lesa meira

„Ég ætla bara …“

2025-10-10T14:56:34+00:0010. október 2025|

Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp ... Lesa meira

Heimssaga litlu manneskjunnar

2025-10-10T14:57:42+00:005. október 2025|

Það rifjaðist upp fyrir mér í gærkvöldi meðan ég hlustaði á Jón Hjartarson fara með og leika Sálminn um blómið eftir Þórberg Þórðarson á Söguloftinu í Borgarnesi hvað það var óheyrilega gaman að lesa þessa bók fyrir dætur mínar ungar. Það er upplagt að byrja snemma að lesa valda kafla úr henni fyrir litla krakka, ... Lesa meira

Gullæði

2025-10-03T17:57:42+00:003. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi einleikinn Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur fyrir viku síðan en aðstæður ollu því að ég sá það ekki fyrr en í gærkvöldi. Kolbrún leikstýrir verki sínu sjálf og þýðir það ásamt móður sinni, Friðriku Benónýsdóttur, því að leikritið er skrifað á ensku og var upprunalega sýnt í Skotlandi. Leikmynd og búninga ... Lesa meira

„Ég ætla bara …“

2025-09-29T11:10:27+00:0029. september 2025|

Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp ... Lesa meira

Elskaðu – og vertu elskaður

2025-09-28T14:38:18+00:0028. september 2025|

Mér er nær að halda að það hafi orðið tímamót í íslensku leikhúsi í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Moulin Rouge á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Fyrst og fremst var það dansinn og hópatriðin sem þar gerðu útslagið – fimin, aginn, samhæfingin, fagmennskan, innlifunin, ástríðan, allt var þetta svo fullkomlega heillandi ... Lesa meira

Feðraveldið fær á baukinn

2025-09-27T16:09:46+00:0027. september 2025|

Leikfélagið Silfurskeiðin frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare í úrvalsþýðingu Þórarins Eldjárn. Leikstjórar eru María Ellingsen og Magnús Thorlacius, og Eyja Gunnlaugsdóttir kom til aðstoðar þegar Magnús þurfti að hverfa frá; búninga og leikmynd sér Íris Ólafsdóttir um, Sóley Ólafsdóttir samdi sviðshreyfingar, Ronja Jóhannsdóttir samdi tónlistina og skapaði hljóðmyndina en Fjölnir Gíslason ... Lesa meira

Óður til ímyndunaraflsins

2025-09-18T10:15:40+00:0018. september 2025|

Um Vigdísar (Gríms)Ævintýrið eftir Guðrúnu Steinþórsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2025 Ævintýrið (2023) er nýjasta skáldsaga Vigdísar Grímsdóttur. Líkt og titillinn ber með sér dregur sagan dám af ævintýrum því eins og þau, gerist hún á ótilgreindum stað, fjallar um fáar persónur, er í réttri tíma- og orsakaröð og segir frá yfirnáttúrulegum ... Lesa meira