Þú ert hér://Tag: Una Þorleifsdóttir

Maðurinn er alltaf einn

2024-04-20T14:08:58+00:0020. apríl 2024|

Það er orðið talsvert langt síðan Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi verkið X eftir Alistair McDowall á Nýja sviði en atvikin hafa hagað því þannig að ég sá það ekki fyrr en í gær. Jón Atli Jónasson hefur gert á því ágæta þýðingu; hæfilega geimskipslega leikmynd og búninga hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir en ágeng lýsingin er verk [...]

Mútta fer í stríð

2023-11-08T12:48:24+00:005. nóvember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi á stóra sviðinu fyrir rúmri viku leikritið Múttu Courage og börnin eftir Bertolt Brecht og Margarete Steffin í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar. Verkið var sýnt áður á því sviði fyrir nærri því sextíu árum (1965) og hefur sú sýning orðið ein af goðsögnum íslensks leikhúss. Skemmra er síðan ég sá sýningu Mörtu Nordal [...]

Þrjár prinsessur

2023-03-20T10:17:45+00:0019. mars 2023|

Síðastliðinn föstudag var leikritið Prinsessuleikarnir eftir Elfriede Jelinek frumsýnt í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Raunar voru það ekki nema þrír fimmtu hlutar af verki Jelinek sem rötuðu á Nýja sviðið. Verkið, sem heitir Prinzessendramaen á frummálinu og byggir á skáldsögu höfundarins, Dauðinn og stúlkan, fjallar um fimm prinsessur, Mjallhvíti, Þyrnirós, Jackie Kennedy, Díönu og [...]

Sæunn fær orðið

2022-10-29T11:00:43+00:0029. október 2022|

Besti vinur minn sór þess snemma dýran eið að verða leiðinlegt og erfitt gamalmenni. Auðvitað hlógum við að honum en stundum tekst honum ætlunarverkið, það verð ég að viðurkenna, oftar samt ekki. Sæunn (Guðrún S. Gísladóttir) í nýju leikriti Matthíasar Tryggva Haraldssonar, sem frumsýnt var á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, veit að það eru [...]

Örleikrit hversdagsins

2022-05-17T09:45:29+00:007. apríl 2022|

Það er engu logið á Ást og upplýsingar, uppsetningu Þjóðleikhússins á verki Caryl Churchill í Kassanum. Þetta er ljómandi skemmtilegt verk og vel unnin sýning hjá Unu Þorleifsdóttur leikstjóra. Einfalt en spennandi svið hannar Daniel Angermayr og Eva Signý Berger sér um búningana sem urðu æ litríkari og fjörlegri því lengra sem leið á sýninguna. [...]

Fangar stórborganna þrá hafið

2021-09-17T14:43:39+00:0017. september 2021|

Fátt veit ég skemmtilegra en að horfa á brakandi ferskt íslenskt leikrit sem talar skýrt og skemmtilega beint inn í samtímann. Þannig verk frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins: Þéttingu hryggðar eftir Halldór Laxness Halldórsson eða Dóra DNA. Leikstjóri var Una Þorleifsdóttir. Eva Signý Berger gerði fráhrindandi og fremur ólíklega leikmynd en [...]

Norðanstúlka kemur suður

2019-11-15T11:51:16+00:0015. nóvember 2019|

Ég hef alltaf haldið upp á Atómstöðina, kannski vegna þess að ég var norðanstúlka eins og Ugla og mér var strítt svolítið á því í skólanum mínum fyrir sunnan. Þetta er skemmtilega galin saga í stíl, Halldór Laxness leikur sér að því að sjá höfuðborgina með augum lítt reyndrar rúmlega tvítugrar stúlku norðan úr afdal [...]

Nóra snýr aftur

2019-05-08T10:35:51+00:0022. september 2018|

„Hvert ætli þú hefðir svo sem getað farið?“ spyr Vilborg Dagbjartsdóttir Nóru Ibsens í ljóðinu „Erfiðir tímar“ (Kyndilmessa 1971) og áreiðanlega hefur þessi spurning sótt á huga margra undanfarin tæp 140 ár. Varð hún vændiskona í Kristjaníu? Skúringakona? Vinnukona? Eða gekk hún í sjóinn? Svo litla trú höfðum við á hugmyndaflugi hennar og seiglu og [...]

Viðsjáll sonnettusveigur

2019-03-14T15:50:42+00:0019. maí 2018|

Það gefst fremur nöpur innsýn í líf ungs fólks í Aðfaranótt Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem útskriftarnemar af leikarabraut LHÍ sýna í Kassanum þessar vikurnar. Ókeypis er inn á sýninguna og full ástæða til að hvetja alla – og kannski einkum ungt fólk – til að slá þarna tvær flugur í einu höggi, sjá splunkunýtt verk [...]

Sterkastur er sá sem stendur einn

2019-05-27T11:27:10+00:0023. september 2017|

Fyrsta frumsýning haustsins á stóra sviði Þjóðleikhússins, ein hátíðlegasta stund ársins. Freyðivín í fordrykk, forsetinn í húsinu, margir í sínu besta pússi. Eiginlega leitt að ekki skyldi vera hlé til að maður gæti notið þess betur að horfa á hátísku haustsins 2017 allt í kringum sig. Og svo var verkið klassískt og þó brýnt: Óvinur [...]