Þú ert hér://Tag: Una Þorleifsdóttir

„Mér endist ekki ævin til að syrgja þig …“

2019-04-30T15:36:01+00:001. apríl 2017|

Steinunn Sigurðardóttir er talsmaður ástarsorgarinnar í íslenskum bókmenntum. Í sögum og ljóðum hyllir hún þessa margræðu tilfinningu af slíkri snilld að lesandinn þráir um sinn ekkert heitar en fá að upplifa hana sjálfur. Og þó er þetta í grunninn eyðandi og banvæn kennd eins og Steinunn sýnir hvergi betur en í skáldsögunni Tímaþjófnum sem nú [...]

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-03T15:35:54+00:007. janúar 2017|

Eins og sjálfsagt flestar konur hef ég reynslu af karlmönnum eins og Sölva (Stefán Hallur Stefánsson) í leikritinu Gott fólk sem frumsýnt var í Kassanum í gærkvöldi (ég sá aðalæfingu kvöldið áður). Þetta er gasalega sætur strákur, orðheppinn og skemmtilegur, heillandi við fyrstu kynni, en þessir kostir valda því að hann er tregur til að [...]

Lífið er fokking ringulreið

2019-05-06T13:44:49+00:0016. október 2016|

Alveg er greinilegt strax í upphafi stutta leikritsins með langa nafnið sem var frumsýnt í Kúlu Þjóðleikhússins í gærkvöldi, Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti, að einu persónu þess líður bölvanlega. Stefán Hallur Stefánsson stendur á miðju sviði Kúlunnar, framarlega, í leikhúsþoku og kvelst. Hann hreyfir sig ekki [...]

Ekki er allt gull sem glóir

2019-05-10T13:45:19+00:0030. desember 2015|

Ég sá ekki nægilega vel yfir salinn í Kassanum í gærkvöldi til að vita hvort allir réttu upp hönd þegar Oddur Júlíusson hlémælir spurði hverjir hefðu einhvern tíma haft peningaáhyggjur. Sennilega allir sem tóku þátt í leik hans af fullri hreinskilni. Við burðumst öll með peningaáhyggjur, sumir stundum, aðrir oft, nokkrir alltaf. Og hvernig stendur [...]

Að lifa stríð

2019-05-27T13:35:19+00:0028. september 2014|

Ég hef verið stór aðdáandi Konunnar við 1000° síðan ég las hana nýútkomna en ekki bjóst ég við að hún myndi þola að fara á svið. Tíu tíma sjónvarpssería kannski eða að minnsta kosti ílöng tveggja kvölda leiksýning eins og Heimsljós og Sjálfstætt fólk en ekki eitt tveggja tíma leikrit. Þetta hefur þó verið gert. [...]

Skapað að skilja

2019-06-12T15:06:16+00:0021. september 2013|

Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason var frumsýnt i Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Unu Þorleifsdóttur. Eins og nafnið bendir til er þetta átakanleg og býsna nöturleg mynd úr íslenskum samtíma en því miður líka óþægilega sannferðug. Sigrún (Elma Stefanía Ágústsdóttir) er lögfræðinemi og Ragnar (Snorri Engilbertsson) vinnur á fasteignasölu sem hann á part í. [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]

Mala domestica

2020-01-30T15:15:42+00:0022. janúar 2010|

Heimilisböl er verra öðru böli, út á það ganga ófá leikrit og sögur, enda óhamingjusamar fjölskyldur óhamingjusamar hver á sinn hátt, eins og skáldið benti á. Í leikriti Sigtryggs Magnasonar, Bráðum hata ég þig, sem var frumsýnt í Nemendaleikhúsinu í gærkvöldi, hittum við fjórar húnvetnskar systur. Steinunn, Snæfríður og Anna búa enn á heimaslóðum, Halla [...]