Þú ert hér://Tag: Silja Aðalsteinsdóttir

Að finna til með fjalli

2026-09-17T09:52:54+00:0017. september 2026|

Sunna Dís Másdóttir: Postulín. Mál og menning 2025 Sunna Dís Másdóttir gaf út ljóðabókina Postulín haustið 2025. Hún vakti talsverða athygli og var tilnefnd bæði til Fjöruverðlaunanna og Maístjörnunnar. Postulín er heildstæð bók, ljóðin segja ákveðna sögu og þó að þau séu knöpp verður sú saga smám saman býsna stór. Bókin skiptist í þrjá hluta. [...]

Kónguló sem spinnur inn í tómið

2024-03-25T15:07:07+00:0025. mars 2024|

Viðtal Silju Aðalsteinsdóttur við Matthías Johannessen   Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 1996         Matthías Johannessen um 1958 þegar Borgin hló kom út Matthías Johannessen skáld og ritstjóri er fæddur í Reykjavík 3. janúar 1930. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1950 og hóf nám í íslenskum fræðum [...]

Engin venjuleg stelpa

2022-10-04T10:21:20+00:004. október 2022|

Þórunn Rakel Gylfadóttir: Akam, ég og Annika. Angústúra 2021. 353 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2022.   Unglingasagan Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barnabóka fyrir síðasta ár. Þetta er fyrsta bók höfundar sem var bæði nemandi (við HÍ) og kennari (við Hagaskóla) í ritlist [...]

Þegar jarðskorpan rís

2021-05-12T22:24:27+00:0012. maí 2021|

Sigríður Hagalín. Eldarnir: Ástin og aðrar hamfarir. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 287 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2021 Sigríður Hagalín er ekki í neinum feluleik í þriðju skáldsögu sinni, Eldunum. Sagan hefst í lokuðu rými þar sem sögukona okkar liggur og berst við að ná andanum, reynir að láta síðustu súrefnisdreggjarnar endast meðan [...]

„Ég enn er ung í anda“

2020-09-28T22:17:42+00:0029. september 2020|

Una Margrét Jónsdóttir. Gullöld revíunnar. Íslensk revíusaga fyrri hluti: 1880–1957. Skrudda 2019. 480 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2020   Gullöld revíunnar. Íslensk revíusaga fyrri hluti: 1880–1957 Revíur brugðu ekki lengur lit á lífið í höfuðstaðnum þegar ég komst á aldur til að fara á slíkar skemmtanir en samt var [...]

Kvöldstund með listamönnum

2019-10-23T13:43:00+00:0023. október 2019|

Andri Snær Magnason hefur sama hátt á með nýja bók sína, Um tímann og vatnið, og Draumalandið fyrir rúmum áratug, að kynna efni hennar á samkomu í aðalsal Borgarleikhússins. Hér er samt mun meiri sýning á ferðinni, enda frumkvæðið hjá Borgarleikhúsinu og kvöldið partur af sýningaröð þeirra, „Kvöldstund með listamanni“. Það er erfitt að hugsa [...]

Þegar ágætir menn breytast í grasasna

2019-04-29T15:23:20+00:0028. apríl 2019|

Loddarinn (Tartuffe) hans Molières var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi í nýrri bráðskemmtilegri þýðingu Hallgríms Helgasonar og undir stjórn Stefans Metz. Sean Mackaoui sér um leikmynd og búninga eins og áður þegar Stefan hefur leikstýrt hér og Ólafur Ágúst Stefánsson hannar lýsinguna. Manni verður strax hugsað til síðasta verkefnis þeirra þriggja sem var [...]

Hvað sem er getur orðið að kláða

2019-05-16T11:34:35+00:0016. apríl 2019|

Fríða Ísberg. Kláði. Partus, 2018. 197 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2019 Skýringin á óvæntu heitinu á smásagnasafni Fríðu Ísberg, Kláði, fæst í síðustu sögunni, „Undanhlaupi“, sem birtist reyndar fyrst í þessu tímariti í fyrra (TMM 2 2018): „En svo er hitt,“ segir kerlingin á neðri hæðinni við sögukonu, „að hvað sem [...]

Skó-fetish

2019-05-27T12:55:39+00:0029. mars 2019|

Mér skilst að það þyki ekkert svo voðalega undarleg árátta að safna skóm og ástæðan sé einkum sú að þetta sé ekki óalgengt. Sjálf hef ég ekki vott af þessari áráttu, á gjarnan eina hversdagsskó og eina spariskó (tvenna ef ég lendi í að kaupa skó sem eru ekki nógu þægilegir til að ganga í) [...]

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-16T11:47:15+00:0019. febrúar 2019|

Fjodor Dostojevskí: Hinir smánuðu og svívirtu. Skáldsaga í fjórum hlutum með eftirmála. Gunnar Þorri Pétursson og Ingibjörg Haraldsdóttir þýddu. Forlagið 2018. 555 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Áður en Ingibjörg Haraldsdóttir, okkar dýrmætasti rússneskuþýðandi, lést var hún byrjuð að þýða enn eitt stórvirkið eftir Fjodor Dostojevskí, Hina smánuðu og svívirtu, og [...]