Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Örlögsímu

2019-05-23T16:46:03+00:0020. desember 2016|

Einar Már Guðmundsson. Hundadagar. Mál og menning, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2016 Svo hafa ýmsir söguspekingar sagt að fortíð mannsins sé ótæmandi, ekki aðeins atburðirnir bæði stórir og smáir að viðbættum gerendum þeirra, sem geta vitanlega leikið fjölmörg hlutverk hver og einn, heldur og hin ýmsu tengsl sem hægt sé að [...]

Margfeldi merkingar

2019-05-24T13:43:03+00:0014. október 2016|

Linda Vilhjálmsdóttir. Frelsi. Mál og menning, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2016 við höfum margfaldað frelsið „Frelsi“ er eitt þessara stóru orða – kannski það stærsta – sem ekki verður skilgreint í eitt skipti fyrir öll því merking þess breytist í sífellu eftir því í hvaða samhengi það er notað (og misnotað), [...]

Whiss-bang, whiss-bang, whiss-bang

2019-05-24T13:11:24+00:0014. október 2016|

Gunnar Þór Bjarnason. Þegar siðmenningin fór fjandans til: Íslendingar og stríðið mikla 1914–1918. Mál og menning, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2016 Á okkar tímalausu tímum þegar búið er að stroka út fortíðina, sagan er horfin út í veður og vind og sjóndeildarhringurinn nær lítið út fyrir stundlegan rembihnút hins glórulausa „nú“, [...]

Sturlaður gleðileikur

2019-05-24T15:39:28+00:0010. mars 2016|

Einar Kárason. Skálmöld; Óvinafagnaður; Ofsi; Skáld. Mál og menning 2014; 2001; 2008; 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2016 Skálmöld (2014) Einar Kárason hefur staðið upp frá mögnuðu skáldverki um helstu persónur og atburði Sturlungaaldar; eða öllu heldur staðið upp frá mögnuðu skáldverki um listina að umbreyta atburðum í merkilegar sögur [...]

Sjálfhverful framtíð

2019-05-24T14:36:43+00:0010. mars 2016|

Eiríkur Örn Norðdahl. Heimska. Mál og menning, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2016 „Stóra breytingin er sú að við erum sjálfviljug að gefa eftir persónuupplýsingar og fáum á móti aðgang að þessu tæki til þess að geta fylgst með fólki í kringum okkur,“ segir Andrés. „Ég kalla þetta stafræna nánd. Það er [...]

Kynferðislegt ofbeldi: krabbamein á þjóðarlíkama

2019-05-24T16:05:08+00:0030. nóvember 2015|

Steinar Bragi. Kata. Mál og menning 2014. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2015 Þegar þessi orð eru skrifuð geisar í íslenskum blöðum og á bloggsíðum umræða um nýjar bækur íslenskra karla sem segja frá ofbeldi, andlegu og líkamlegu. Tekist er á um hugtökin sannleika og lygi, staðreyndir og skáldskap, og ýmis vanhugsuð og [...]

Allt heitir einhverntímann eitthvað annað

2019-05-24T16:25:54+00:0014. september 2015|

Ófeigur Sigurðsson. Öræfi. Mál og menning, 2014. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2015 Sérhæfingin óendanlega er vangæf skepna og næsta viðsjárverð tilhneiging í allri þekkingarsköpun. Þegar hana skortir heyrast brigsl um ónákvæmni en gerist hún of ríkuleg má búast við að orðið „rörsýn“ beri á góma. Í samhengi skáldskapar má leggja þessa þversögn [...]

Tímakistan krosslesin

2019-05-28T12:12:39+00:0010. mars 2015|

Andri Snær Magnason. Tímakistan. Mál og menning, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2015 Síðustu tvo áratugi hafa skáldsögur sem voru skrifaðar fyrir börn og unglinga iðulega verið efst á sölulistum bókabúða og bíómyndir byggðar á þeim slegið öll aðsóknarmet. Nægir að nefna Harry Potter bækur J.K. Rowlings, Ljósaskiptabækur Stephanie Meyer, Hungurleikana eftir [...]

Maðurinn og jörðin

2019-06-14T09:48:23+00:002. október 2014|

Þorsteinn frá Hamri. Skessukatlar. Mál og menning, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2014 Þorsteinn frá Hamri hefur átt sér tryggan lesendahóp í rösklega hálfa öld, rúm 55 ár eru liðin frá því hans fyrsta bók Í svörtum kufli kom út árið 1958 þegar hann var aðeins tvítugur að aldri, og vakti þegar [...]

Til varnar náttúrunni / Gegn verksmiðjuvæðingu lífsins

2019-06-14T16:00:38+00:009. desember 2013|

Ófeigur Sigurðsson. Landvættir: Skáldsaga. Mál og menning, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013 I Ég er ekki frá því að Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar og nýrra tíma (Mál og menning 2010) eftir Ófeig Sigurðsson sé ein [...]